Fréttir

true

Harður árekstur á Dílahæð í Borgarnesi

Um miðjan dag í gær varð allharður árekstur tveggja bíla á Þjóðvegi 1 við Dílahæð í Borgarnesi. Jeppa á suðurleið var ekið utan í jeppling sem kom úr gagnstæðri átt en skellur síðan framan á næsta bíl á eftir sem er fólksbíll. Í þeim bíl voru þrír erlendir ferðamenn sem allir voru fluttir á sjúkrahús…Lesa meira

true

Skagamenn enduðu tímabilið á toppnum

Meistaraflokkur karla í knattspyrnu hjá ÍA endaði tímabilið á jafntefli gegn Þrótti í gær í síðustu umferð Inkassodeildarinnar. Þrátt fyrir jafntefli á Skaganum náðu heimamenn að verða á toppi deildarinnar og fögnuðu því Deildarmeistaratitli í lok leiks. Skagamenn gátu ekki gengið að titlinum vísum áður en liðin mættust því þeir þurftu að ná annað hvort…Lesa meira

true

Víkingur endaði tímabilið með sigri

Víkingur Ólafsvík sigraði Fram á Laugardalsvelli í síðustu umferð Inkassodeildar í gær og kláraði þannig tímabilið í fjórða sæti deildarinnar með 42 stig. Liðin byrjuðu leikinn þétt til baka og náðu sóknir hvorugs liðs að skapa umtalsverða hættu. Leikurinn var með svipuðum brag þar til um miðbik hálfleiksins en á 25. mínútu sofnuðu Ólsarar á…Lesa meira

true

SSV skorar á viðskiptavini VÍS að endurskoða viðskipti við fyrirtækið

Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi skorar á sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga að endurskoða viðskipti sín við tryggingavélagið VÍS. Ályktunin kemur í kjölfar fregna af ákvörðun stjórnar VÍS og stjórnenda fyrirtækisins að loka fjölda þjónustustaða fyrirtækisins á landsbyggðinni strax um næstu mánaðamót. Það þýðir að tryggingaumboð VÍS sem og þjónustaðilar á fjölmörgum stöðum, svo sem í…Lesa meira

true

ÍA Íslandsmeistari í 2. flokki karla

Strákarnir í öðrum flokki í knattspyrnu hjá ÍA urðu í gær Íslandsmeistarar eftir frækinn 7:0 sigur gegn Fylki í Árbænum. Liðið er skipað piltum sem fæddir eru árabilið 2000-2002. Með ÍA spiluðu einnig í sumar drengir úr Kára og Skallagrími í Borgarnesi. Þetta er fyrsti Íslandsmeistarasigur liðsins í 13 ár. Þjálfari er Sigurður Jónsson og…Lesa meira

true

Helga Jónsdóttir leysir Bjarna af sem forstjóri OR

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur ákvað á fundi sínum síðastliðið miðvikudagskvöld að ráða Helgu Jónsdóttur í starf forstjóra næstu tvo mánuði. Bjarni Bjarnason forstjóri OR mun stíga til hliðar meðan fram fer óháð úttekt á vinnustaðarmenningu og málefnum tiltekinna starfsmanna sem verið hafa til umfjöllunar. Helga hefur gegnt ýmsum opinberum stjórnunarstörfum um tíðina; verið borgarritari, ráðuneytisstjóri, bæjarstjóri…Lesa meira

true

Reykjavatn í fyrri og seinni leit

Skjótt skipast veður í lofti. Meðfylgjandi myndir voru teknar á sama stað með réttu tveggja vikna millibili. Þá efri tók Höskuldur Kolbeinsson í fyrri leit Borgfirðinga við Reykjavatn á Arnarvatnsheiði. Þá neðri tók Ingimundur Jónsson í síðari leit í morgun, á sama staðnum, en Borgfirðingar smala nú eftirlegukindum í síðari leit. Nú hefur fyrsta haustlægðin…Lesa meira

true

Fataverslun Íslendinga jókst hér á landi

Kortavelta Íslendinga í innlendri fataverslun jókst um 13,1% í ágúst síðastliðnum og nam tæpum 2,2 milljörðum í ágúst nú samanborið við rúman 1,9 milljarða í ágúst í fyrra. Í samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar kemur fram að fataverslun hefur einnig vaxið undanfarna mánuði og kortavelta í flokknum aukist um 17% ef tímabilið apríl til ágúst á þessu…Lesa meira

true

Vetrarlegt á fjallvegum

Eftirstöðva lægðar sem snert hefur norðanvert landið undanfarna tvo daga gætir enn, þ.á.m. í færð á vegum. Í tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun segir að snjóþekja og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Hálkublettir eru á flestum fjallvegum á Vestfjörðum en hálka á Steingrímsfjarðarheiði. Snjóþekja er á Strandarvegi. Hálkublettir eru á Vatnsskarði, Öxnadalsheiði, í Héðinsfiðri, Ólafsfjarðarmúla og…Lesa meira

true

Borgfirskir briddsarar hefja vetrarstarfið

Næstkomandi mánudagskvöld hyggjast félagar í Briddsfélagi Borgarfjarðar setjast við spilaborðið eftir sumarfríið. “Við hefjum leik á mánudaginn kemur, stundvíslega klukkan 20. Það eru allir spilarar velkomnir til okkur, en við munum slípa saman mannskapinn með stökum tvímenningskvöldum til að byrja með,” sagði Ingimundur Jónsson fjölmiðlatengill BB í samtali við Skessuhorn. Sem fyrr verður spilað í…Lesa meira