Fréttir

true

Unnur Ýr og Arnar Már valin best á lokahófi ÍA

Lokahóf Knattspyrnufélags ÍA var haldið á Akranesi síðastiðinn laugardag. Gerðu liðsmenn knattspyrnufélagsins sér glaðan dag að loknu góðu sumri, auk þess sem veittar voru viðurkenningar þeim leikmönnum sem þóttu skara fram úr á liðnu sumri. Arnar Már Guðjónsson og Unnur Ýr Haraldsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokkanna. Þau voru jafnframt valin best að mati ÍA…Lesa meira

true

REKO hringir um milliliðalaus viðskipti

Matarauður Íslands hefur í samstarfi við Bændasamtök Íslands unnið að því að koma REKO hugmyndafræðinni af stað hér á landi og nú hafa fyrstu hóparnir verið myndaðir. REKO stendur fyrir milliliðalaus viðskipti milli framleiðenda og kaupenda og fara sú viðskipti fram í gegnum Facebook. „Tilgangurinn er að efla nærsamfélagsneyslu og færa framleiðendur og kaupendur nær…Lesa meira

true

Hálkublettir víða á Vesturlandi

Á Vesturlandi eru hálkublettir nokkuð víða eins og til dæmis á Þjóðvegi 1 frá Borgarnesi og upp í Norðurárdal, á Mýrum, Bröttubrekku og á Borgarfjarðarbraut við Hvanneyri. Hálka er á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. Hálkublettir eru í Mývatnssveit, Mývatns- og Möðrudalsöræfum, Dettifossvegi, Fjarðarheiði og Vopnafjarðarheiði.Lesa meira

true

Málefni landshlutans rædd á haustþingi SSV

Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi var haldið á Bifröst sl. fimmtudag og föstudag. Að vanda var af mörgu að taka og farið yfir hin ýmsu mál sem snerta sveitarfélögin á Vesturlandi. Velferðarmál voru þema þingsins að þessu sinni og því voru haldnar yfirgripsmiklar pallborðsumræður um málaflokkinn, auk þess sem sagt var frá vinnu við velferðarstefnu…Lesa meira

true

Slátrun hefst í dag í Brákarey

Slátrun hefst í dag í Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi. Hópur áhugafólks um rekstur sláturhúss hefur tekið húsnæðið á leigu til tíu ára og er Þorvaldur T Jónsson bóndi í Hjarðarholti í forsvari fyrir hópinn. Stefnt er að rekstri þjónustusláturhúss allt árið. „Þar sem við byrjum nú að hausti verða verkefni okkar fyrstu vikurnar…Lesa meira

true

Óprúttnir aðilar á netinu

Lögreglan á Vesturlandi vill hvetja fólk til að sýna varúð í viðskiptum á netinu. „Nokkuð hefur borið á því að undanförnu að óprúttnir aðilar svara auglýsingum þar sem óskað er eftir ýmsum hlutum á sölusíðum með notaða muni. Segjast þeir eiga hlutinn sem óskað er eftir og vilja fá hlutinn greiddan að hluta eða að…Lesa meira

true

Helena og Aníta áfram með ÍA

Samningur Helenu Ólafsdóttur og Anítu Lísu Svansdóttur við Knattspyrnufélag ÍA um þjálfun meistaraflokks kvenna hefur verið endurnýjaður. Helena og Aníta hafa annast þjálfun liðsins undanfarin tvö ár, Helena sem aðalþjálfari og Aníta sem aðstoðarþjálfari. Munu þær því stýra liðinu í 1. deild kvenna í knattspyrnu næsta sumar. „Árangur liðsins í sumar var mjög góður en…Lesa meira

true

Grundargata lokuð vegna framkvæmda

Grundargatan í Grundarfirði er lokuð á gatnamótum Borgarbrautar þessa dagana vegna framkvæmda við nýja vatnslögn. Þetta er töluvert rask á umferð enda liggur Grundargatan þvert í gegnum bæinn og er fjölfarnasta akstursleið innan bæjarmarkanna. Reiknað er með að lokunin vari í eina viku en stefnt er á að malbika yfir skurðinn aftur á þriðjudaginn í…Lesa meira

true

HVE í tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma

Heilbrigðisstofnun Vesturlands hefur gert samkomulag um þátttöku í tímabundnu tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma hjá ríkisstarfsmönnum. Samkomulagið er gert í kjölfar viljayfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 2015 í tengslum við kjarasamninga ríkisins við aðildarfélög BSRB undir stjórn Elsu Láru Arnardóttir sem er formaður starfshóps sem velferðarráðuneytið skipaði til að vinna að framgangi verkefnisins. Heilbrigðisstofnun Vesturlands skuldbindur sig nú…Lesa meira

true

Reynsluboltar í sveitarstjórnarmálum heiðraðir

Boðið var til sérstaks hátíðarkvöldverðar sl. fimmtudagskvöld á haustþingi Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi, sem haldið var á Bifröst á fimmtudag og föstudag. Þar voru heiðraðir reynslumiklir sveitarstjórnarfulltrúar af Vesturlandi; Ása Helgadóttir Hvalfjarðarsveit, Björn Bjarki Þorsteinsson Borgarbyggð, Ingibjörg Pálmadóttir Akraneskaupstað, Kristján Þórðarson Snæfellsbæ og Sturla Þórðarson Stykkishólmsbæ. Öll eiga þau það sammerkt að hafa setið í…Lesa meira