Fréttir

true

Knúðu fram oddaleik

Viðureign Skallagríms og Keflavíkur í undanúrslitum kvenna í körfuknattleik virðist aðeins ætla að verða meira spennandi. Liðin mættust fjórða sinni í Borgarnesi í gær. Keflavík leiddi með tveimur sigrum gegn einum og því að duga eða drepast fyrir Skallagrímskonur. Þær þurftu á sigri að halda, ellegar væri liðið farið í sumarfrí. Og þær sýndu heldur…Lesa meira

true

Hestakona og atvinnuráðgjafi í opnuviðtali

Ólöf Guðmundsdóttir viðskiptafræðingur var nýverið ráðin úr hópi tæplega fjörutíu umsækjenda í starf atvinnuráðgjafa hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Ólöf stefnir nú að flutningi á heimaslóðir, en hún er fædd og uppalin í Borgarnesi og hefur starfað á höfuðborgarsvæðinu síðustu áratugina. Nú setja þau, hún og Alexander Hrafnkelsson eiginmaður hennar, stefnuna á flutning á Vesturland…Lesa meira

true

Syntu vel á Íslandsmeistaramótinu

Íslandsmeistaramótið í 50 metra laug fór fram í Laugardalslaug dagana 7.-9. apríl. Sundfélag Akraness átti sína fulltrúa á mótinu og sneri einn þeirra heim sem Íslandsmeistari, því Ágúst Júlíusson sigraði í 100 m flugsundi á tímanum 55,96 sek. Bætti hann þar með Akranesmet sitt frá árinu 2012. Einnig tóku sundkappar af Akranesi með sér þrjú…Lesa meira

true

Lionsklúbbur Akraness færði HVE nýjan blóðkornateljara

Síðastliðinn þriðjudag færði Lionsklúbbur Akraness, rannsóknastofu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi, að gjöf blóðkornateljara af gerðinni Sysmex XN 1000. Þetta nýja tæki leysir af hólmi mun eldri tækjabúnað og er töluvert fullkomnara. Tækið vinnur mikið sjálfvirkt og sparar þar með vinnu og tíma starfsfólks rannsóknastofunnar. Niðurstöður fara síðan inn í rafrænan gagnagrunn. Aðgang að þeim mæligögnum…Lesa meira

true

Gert að tína upp pissublautan pappír sinn

Lögreglumenn í eftirlitsferð á Vesturlandsvegi þurftu að hafa afskipti af spænskum ferðamönnum á tveimur bílaleigubílum á bílastæði við Hótel Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit. Atvikið átti sér stað fyrir nokkrum dögum en það voru lögreglumennirnir sjálfir sem tóku eftir því að fjórar stúlkur sem voru farþegar í bílunum sátu á hækjum sér og voru að pissa á…Lesa meira

true

Að duga eða drepast fyrir Skallagrím

Fjórði leikur undanúrslitaviðureignar Skallagríms og Keflavíkur fer fram í Borgarnesi í kvöld. Keflavík leiðir viðureignina 2-1 og Skallagrímskonur því komnar með bakið upp við vegg. Þrjá sigra þarf til að komast áfram og því er að duga eða drepast fyrir Skallagrím í leiknum í kvöld. Körfuknattleiksdeild Skallagríms hvetur Borgnesinga til að fjölmenna á völlinn, hvetja…Lesa meira

true

Daði og Marta í 6. sæti á HM

Dansararnir Daði Freyr Guðjónsson úr Borgarfirði og hin Skagaættaða Marta Carrasco höfnuðu í 6. sæti á Heimsmeistaramótinu í 10 dönsum sem haldið var í Sankti Pétursborg í Rússlandi um helgina. Daði og Marta dönsuðu vel á mótinu, komust í úrslit í fimm dönsum; quickstep, rúmbu, sömbu, cha-cha-cha og pasó og luku keppni í 6. sæti…Lesa meira

true

Úrkoma þegar líður á daginn – snjór til fjalla

Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni eru vegir að mestu auðir á Suður- og Vesturlandi en hálkublettir eru á Holtavörðuheiði. Í dag koma skil lægðar úr suðvestri með úrkomu um sunnan- og vestanvert landið.  Á láglendi hlánar samhliða slyddu eða rigningu en á fjallvegum mun snjóa.Lesa meira

true

Vill friða þrjá vestlenska vita

Húsafriðunarnefnd ákvað á síðasta fundi sínum að samþykkja tillögur að friðlýsingu ellefu vita víðs vegar um landið. Tillögur nefndarinnar byggja að mestu á mati Guðmundar L. Hafsteinssonar frá 2003, en árið 2015 bað núverandi húsafriðunarnefnd hann um að endurskoða þær og leggja fram að nýju. Voru þær kynntar stjórn Íslenska vitafélagsins sem tók undir þær…Lesa meira

true

Páskablað Skessuhorns kemur út á morgun

Til að Skessuhorn vikunnar berist áskrifendum í tæka tíð fyrir hátíðina sem í hönd fer, verður það sent í prentun í kvöld, mánudag. Blaðinu verður síðan dreift á þriðjudag og miðvikudag. Af þessum sökum er auglýsendum og þeim sem þurfa að koma efni á framfæri, bent á að panta þarf pláss í síðasta lagi í…Lesa meira