Fréttir

true

Akranes keppir í Útsvari í kvöld

Næsta viðureign átta liða úrslita spurningaþáttarins Útsvars, sem sýndur er í sjónvarpi RÚV, fer farm í kvöld þegar lið Akraness mætir liði Kópavogs. Útsvar er vanalega á föstudögum en þátturinn verður ekki sýndur á föstudaginn langa. Því fer viðureign Skagamanna og Kópavogsbúa fram í kvöld og hefst kl. 20:35. Lið Akraness skipa sem fyrr þau…Lesa meira

true

Ofsakastur á Snæfellsnesvegi

Alls voru 63 ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi síðastliðna viku. Sá sem hraðast ók var ferðamaður sem var stöðvaður á Snæfellsnesvegi fyrir að aka á 129 km/klst. Varð hann að staðgreiða sekt upp á 52.500 krónur áður en hann hélt ferð sinni áfram. Sex umferðaróhöpp urðu í umdæmi Lögreglunnar…Lesa meira

true

Eignarhald Þörungaverksmiðjunnar breytist

Bandaríska stórfyrirtækið DuPont hefur eignast meirihluta í Þörungaverksmiðjunni hf. á Reykhólum í gegnum kaup sín á heilsuvöruframleiðslu bandaríska fyrirtækisins FMC Corporation. FMC Corporation er skráð fyrir 71,6% hlutafjár Þörungaverksmiðjunnar, en Byggðastofnun á 27,7% hlut. Aðrir hluthafar eru um 70 talsins. Morgunblaðið greinir frá. Þar er haft eftir Magnúsi Helgasyni, sem situr í stjórn Þörungaverksmiðjunnar fyrir…Lesa meira

true

Heimsfrumsýning Fast 8 á Akranesi

Kvikmyndin Fate of the Furious, einnig þekkt sem Fast & the Furious 8, eða Fast 8, verður heimsfrumsýnd í Bíóhöllinni á Akranesi í kvöld, miðvikudaginn 12. apríl klukkan 18:00. Myndin verður frumsýnd í öðrum bíóhúsum hér á landi síðar sama kvöldið, sem og víða í Evrópu og næstu daga verður hún frumsýnd í Bandaríkjunum, Suður-Ameríku…Lesa meira

true

„Það mótaði okkur að þurfa ung að skipuleggja lífið upp á nýtt“

Ólöf Guðmundsdóttir viðskiptafræðingur var nýverið ráðin úr hópi tæplega fjörutíu umsækjenda í starf atvinnuráðgjafa hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Ólöf stefnir nú að flutningi á heimaslóðir, en hún er fædd og uppalin í Borgarnesi og hefur starfað á höfuðborgarsvæðinu síðustu áratugina. Nú setja þau, hún og Alexander Hrafnkelsson eiginmaður hennar, stefnuna á flutning á Vesturland…Lesa meira

true

Rífandi gangur í húsgagna- og byggingavöruverslun

Aukin umsvif í byggingaframkvæmdum komu greinilega fram í sölutölum byggingavöruverslana í marsmánuði. Þetta á bæði við um almennar byggingavörur svo og sérhæfðar verslanir sem selja gólfefni. Í samantekt Rannsóknamiðstöðvar verslunarinnar kemur fram að sömuleiðis var umtalsverð veltuaukning hjá húsgagnaverslunum og verslunum sem selja stór heimilistæki. Velta húsgagnaverslana jókst um 21,2% frá mars í fyrra en…Lesa meira

true

Útþrá og kraftur Egils fái að njóta sín í listaverki í Borgarfirði

„Mér fannst vanta eitthvað til að draga fram sögu Borgarfjarðar við þjóðveg eitt hjá Borgarnesi. Borgarfjörðurinn er mjög merkileg söguslóð og hún mætti vera meira áberandi fyrir vegfarendur,“ segir listamaðurinn Hilmar Páll Jóhannesson sem vill reisa 9 metra hátt listaverk á Selskeri út af Seleyri við syðri enda Borgarfjarðarbrúarinnar. Um er að ræða hönd sem…Lesa meira

true

Læra hestamennsku í Grunnskóla Grundarfjarðar

Nú í vor hafa nemendur á unglingastigi Grunnskóla Grundarfjarðar sést á hestbaki á reiðvegi Grundfirðinga. Grunnskólinn hefur verið með val á hverju skólaári þar sem nemendur geta valið um allt frá heimilisfræði til Minecraft tölvuleiksins. Nú í ár var tilraunaverkefni hrundið af stað að frumkvæði Hesteigendafélags Grundarfjarðar um val í hestamennsku. Átta nemendur taka þátt…Lesa meira

true

Hvetja til lesturs af mælum

Nú stendur yfir árleg söfnun álestra af hitaveitumælum. Veitur vilja hvetja íbúa Borgarbyggðar til að lesa af mælumnum og skrá stöðuna á www.veitur.is/alestur. Þegar búið er að skila aflestri er hægt að sjá notkunina myndrænt á Mínum síðum Veitna og um leið sjá hvort hún er undir eða yfir meðallagi miðað við sambærilegt húsnæði og…Lesa meira

true

Gamla E-deild sjúkrahússins á Akranesi fær nýtt hlutverk

Eins og greint var frá hér á vef Skessuhorns í síðustu viku hefur verið lögð fram áætlun á Landspítalanum sem ætlað er að taka á fráflæðisvanda spítalans. Verður hafist handa við fyrstu skref áætlunarinnar nú um miðjan aprílmánuð. Einn liður þeirrar áætlunar er aukið samstarf við Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Að sögn Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur,…Lesa meira