Fréttir

true

Kynntu skólann fyrir væntanlegum nemendum

Það var líf og fjör í Fjölbrautaskóla Akraness í gær. Þá tók starfsfólk og nemendur á móti nemendum úr 10. bekk á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. Nemendurnir komu saman á sal FVA þar sem flutt voru stutt ávörp. Að því loknu var gestunum skipt í litla hópa sem gengu um skólann í fylgd leiðsögumanna úr…Lesa meira

true

Undirbúningur fyrir sumarið í fullum gangi á Garðavelli

Nýverið var blaðamaður Skessuhorns á ferðinni á Garðavelli á Akranesi. Þá var Valdís Þóra Jónsdóttir við æfingar í golfherminum í inniaðstöðu klúbbsins. Hún tryggði sér sem kunnugt er þátttökurétt á LET Evrópumótaröðinni fyrir jól og keppti á fyrsta móti tímabilsins í Ástralíu í byrjun febrúar. Þar hafnaði hún í 51.-53. sæti á þremur höggum undir…Lesa meira

true

Sævar Freyr Þráinsson ráðinn bæjarstjóri á Akranesi

Á lokuðum fundi bæjarstjórnar Akraness 28. febrúar síðastliðinn var samþykkt samhljóða að ganga til samninga við Sævar Frey Þráinsson um starf bæjarstjóra á Akranesi. Sævar tekur nú við starfinu af Regínu Ásvaldsdóttur sem nýlega var ráðin sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Sævar Freyr hefur verið forstjóri 365 miðla frá árinu 2014 en tilkynnt var í Kauphöllinni í…Lesa meira

true

Vann til verðlauna á kvikmyndahátíð í Miami

Skagamaðurinn Knútur Haukstein Ólafsson vann á dögunum verðlaun fyrir stuttmynd sína INFERNO á hátíðinni WideScreen Film & Music Video Festival sem haldin var í Miami í Flórídafylki í Bandaríkjunum dagana 17. til 19. febrúar. „Það var dálítið skrítin tilfinning að taka við þessum verðlaunum. Ég hef alltaf litið á svona verðlaun sem einhvern veraldlegan hlut,…Lesa meira

true

Vilja geta stækkað kjúklingabúið að Hurðarbaki

Fyrirhuguð er stækkun kjúklingabús Matfugls að Hurðarbaki í Svínadal, úr 84 þúsund stæðum í allt að 192 þúsund stæði með byggingu fjögurra nýrra húsa austan við núverandi eldishús. Skipualagsstofnun hefur samþykkt matsáætlun vegna framkvæmdarinnar með athugasemdum og að sögn Sveins Jónssonar, framkvæmdastjóra Matfugls, er vinna við frummatsskýrslu að hefjast. „Við erum að huga að framtíðaráformum…Lesa meira

true

Blóðsöfnun í dag á Akranesi

Blóðbankabíllinn verður við Ráðhúsið Stillholti 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 14. mars frá kl. 10:00 – 17:00. Allir eru velkomnir, segir í tilkynningu frá Blóðbankanum.  Lesa meira

true

Teiknimynd byggð á smásögu eftir ungan Skagamann

Á morgun lýkur söfnun á síðunni Kickstarter.com til framleiðslu á íslenskri teiknimynd í japönskum stíl. Byggir myndin á handriti eftir tæplega þrítugan Skagamann, Kristján Má Gunnarsson. Verkefnið verður jafnframt hið fyrsta sem alþjóðlega framleiðslufyrirtækið Rengo Studio safnar fyrir með þessum hætti. Söfnuninni á Kickstarter lýkur á morgun, miðvikudaginn 15. mars. Framleiðsluheiti nýju teiknimyndarinnar er Paradise…Lesa meira

true

Fyrirlestrar í kvöld um kvíða barna og unglinga

Forvarnahópurinn Brúin á Akranesi gengst í kvöld fyrir fyrirlestri í Tónbergi, sal Tónlistarskóla Akraness við Dalbraut 1, um kvíða barna og unglinga og aðferðir sem gagnast hafa til að draga úr slíku. „Við í Brúnni höfum haft nokkar áhyggjur af vaxandi kvíða barna og ungmenna sem virðist vera ört vaxandi vandamál. Foreldrar standa margir hverjir…Lesa meira

true

Ronja Ræningjadóttir frumsýnd í Bíóhöllinni

Leikritið um Ronju Ræningjadóttur eftir Astrid Lindgren var frumsýnt fyrir fullu húsi í Bíóhöllinni á Akranesi síðastliðinn laugardag. Það er leiklistarklúbbur Nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands sem færir verkið á fjalirnar. Með hlutverk Ronju fer Aldís Eir Valgeirsdóttir, leikstjórn er í höndum Hallgríms Ólafssonar en alls koma milli 40 og 50 manns að sýningunni með einum eða…Lesa meira

true

Krefja Faxaflóahafnir um upplýsingar vegna landsölu

Á fundi stjórnar Faxaflóahafna sf. síðastliðinn föstudag var tekið fyrir erindi Akraneskaupstaðar þar sem óskað er eftir upplýsingum og gögnum vegna sölu lands Faxaflóahafna sf. í Geldinganesi og Gufunesi til Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnin er í raun framsending erindis Libra lögmanna fyrir hönd Ingólfs Árnasonar, íbúa á Akranesi, sem sent var bæjaryfirvöldum á Akranesi um miðjan febrúar.…Lesa meira