Fréttir

true

Stúlkur í FIMA sigruðu í fyrsta flokki

WOW Bikarmótið í hópfimleikum fór fram um helgina í Ásgarði í Garðabæ. Var umsjón þess í höndum fimleikadeildar Stjörnunnar. Á mótinu er keppt í 2. flokki, 1. flokki og meistaraflokki og taldi það til stiga í GK deildarkeppninni. Mótið náði hápunkti þegar öll bestu lið Fimleikasambandsins mættu til leiks síðdegis í gær. Fimleikafélag Akraness sendi…Lesa meira

true

Þétt dagskrá fyrirlestra í boði OR á Pí-deginum

Orkuveita Reykjavíkur og dótturfélög halda sinn árlega Vísindadag á Pí deginum (3.14), á morgun þriðjudaginn 14. mars á Nauthóli í Reykjavík. Um er að ræða þétta dagskrá stuttra fyrirlestra þar sem kynnt verða áhugaverð rannsóknarverkefni sem unnin eru af starfsfólki Orkuveitunnar, Veitna, ON, GR eða samstarfsaðilum. “Segja má að OR samstæðan standi á tímamótum þessi…Lesa meira

true

Tap í lokaleiknum hjá ÍA

ÍA mætti Fjölni í lokaleik 1. deildar karla í körfuknattleik að kvöldi síðasta föstudags. Leikið var á Akranesi. Með sigri gat Fjölnir tryggt sér 2. sæti deildarinnar og þar með heimavallarrétt í úrslitakeppninni, sama hversu langt þeir ná í þeirri keppni. Skagamenn höfðu hins vegar að litlu að keppa, myndu enda í 8. sæti deildarinnar…Lesa meira

true

Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynning

Það verður líf og fjör í Laugardalshöllinni dagana 16. – 18. mars en þá fer fram í fjórða sinn Íslandsmót iðn- og verkgreina. Hátt í 200 ungmenni munu keppa um að hljóta nafnbótina Íslandsmeistari í 25 iðngreinum. Sigurvegarar eiga margir hverjir kost á að keppa síðan við þá bestu í sinni grein á Evrópumóti sem…Lesa meira

true

Fyrirlestur í Snorrastofu um borgfirska ljóðagerð

Þriðjudaginn 14. mars næstkomandi skoðar Guðmundur Þorsteinsson á Skálpastöðum borgfirska ljóðagerð á 20. öld og deilir hugmyndum sínum með gestum Snorrastofu. Hann nefnir fyrirlestur sinn „Ljóðmælendur í Borgarfirði á 20. öld“ og fjallar þar fyrst um ljóðagerð almennt og skiptar skoðanir um mismunandi ljóðform. Þá kynnir hann einnig drög sín að skrá yfir höfunda ljóðabóka,…Lesa meira

true

Matthías setti fjögur ný Íslandsmet

Um helgina fór fram forkeppni á Íslandsmóti einstaklinga í keilu með forgjöf í Egilshöll í Reykjavík. Fjögur Íslandsmet voru sett í mótinu í gær. Matthías Leó Sigurðsson ÍA spilaði fjóra leiki þennan dag og setti Íslandsmet í einum, tveimur, þremur og fjórum leikjum. Íslandsmetin eru sett í 5. flokki en í þeim eru leikmenn 10…Lesa meira

true

Gjaldeyrishöftin verða formlega afnumin á þriðjudag

Ríkisstjórnin, í samráði við Seðlabanka Íslands, hefur ákveðið að frá og með næsta þriðjudegi verði fjármagnshöft afnumin á einstaklinga, fyrirtæki og lífeyrissjóði. Slíkt er talið nauðsynlegt, ekki síst fyrir lífeyrissjóðina sem hafa í ljósi gríðarlegra tekna sinna, takmarkaða möguleika til fjárfestinga hér á landi. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði í dag, þegar ákvörðun þessi var kynnt,…Lesa meira

true

Kavíarveisla í fjöruborðinu

Undanfarna daga hefur loðnufrysting staðið sem hæst í vinnslu HB Granda á Akranesi. Eftir að hrygnan hefur verið skorin þarf að hreinsa og drena hrognin eins og kallað er, áður en þau eru fryst. Við þá aðgerð skolast alltaf lítilsháttar af hrognum með og berst út í frárennslislagnirnar og safnast upp við úthlaupið í fjöruborðinu…Lesa meira

true

Keiluspilarar af Akranesi gerðu það gott á Íslandsmóti

Íslandsmót unglinga í keilu fór fram helgina 4.-5. mars. Til leiks mættu 37 ungmenni frá fjórum keilufélögum; Keilufélagi Akraness, Keilufélagi Reykjavíkur, Þór og ÍR. Fyrirkomulagið er þannig að keppt er til úrslita í 1.-3. flokki ef fleiri en fjórir eru skráðir til leiks. Ekki er keppt til úrslita í yngri flokkum heldur raðast þeir eftir…Lesa meira