Fréttir

true

RUV sýnir beint frá tveimur leikjum stelpnanna okkar

Kvennalandsliðið í knattspyrnu kom til Algarve í Portúgal í gærkvöldi eftir langt og tafsamt ferðalag. Ytra keppir liðið um hinn árlega Algarve bikar en keppnin hefst á miðvikudag. RÚV sýnir beint frá tveimur fyrstu leikjum Íslands á mótinu, gegn Noregi klukkan 18:30 á miðvikudag og Japan klukkan 14:45 á föstudag. Mótið er einn stærsti liðurinn…Lesa meira

true

Káramenn fóru á kostum í úrslitaleiknum

Knattspyrnufélag Kára á Akranesi fagnaði í síðustu viku sigri í C-deild Fótbolta.net mótsins í knattspyrnu. Mættu þeir 2. deildar liði Víðis frá Garði í úrslitaleiknum sem fram fór í Akraneshöll og höfðu öruggan sigur; 4-1. Kári leikur sem kunnugt er í 3. deild en lið Víðis fór upp í 2. deild að loknu síðasta keppnistímabili.…Lesa meira

true

Tjaldað í Borgarnesi

Vegfarendur um Borgarvoginn í Borgarnesi ráku upp stór augu í gærmorgun þegar þeir sáu tjald á tjaldstæði bæjarins. Leiða menn að því líkur að tjaldbúarnir hafi þurft að berja snjó af tjaldþakinu því töluvert snjóaði þá um nóttina. Vafalaust hefur þó verið hlýtt á fólkinu því snjórinn einangrar vel. Umferð ferðafólks er mikil um landshlutann…Lesa meira

true

Óhöpp í umferðinni

Jeppi valt á þjóðveginum skammt frá Eiðhúsum í Eyja- og Miklaholtshreppi í gær. Sjúkrabíll með lækni var sendur á staðinn en betur fór en á horfðist í fyrstu því engin slys urðu á fólki. Á sama tíma fór smábíll útaf veginum á Vatnaleið við Selvallavatn.Lesa meira

true

Lífeyrisþegar borga fyrir mistök Alþingis

Alþingi hyggst leiðrétta afturvirkt mistök sem gerð voru við breytingar á lögum um almannatryggingar síðastliðið haust, sem þýðir að fjöldi lífeyrisþega mun nú þurfa að endurgreiða Tryggingastofnun umtalsverðar fjárhæðir. „Málið hefur verið afgreitt úr velferðarnefnd þingsins með miklu flýti án þess að nægilegt tækifæri hafi gefist til umræðu og umsagna,“ segir í yfirlýsingu frá Alþýðusambandi…Lesa meira

true

Fólk vill öflug verkalýðsfélög

Í nýrri alþjóðlegri skoðanakönnun um viðhorf til vinnu og vinnuaðstæðna, sem framkvæmd var hér á landi um mitt síðasta ár, kemur m.a. fram að 87% svarenda telja launafólk þurfa sterk verkalýðsfélög til að verja hagsmuni þess en aðeins 4% eru ósammála fullyrðingunni. Þegar spurt var hvað einkenni gott starf svöruðu 97% atvinnuöryggi og að starfið…Lesa meira

true

Sigur og tap hjá ÍA um helgina

Skagamenn léku tvívegis í 1. deild karla í körfuknattleik um liðna helgi. Á föstudaginn tóku þeir á móti liði Vestra og máttu sætta sig við tap. Nokkuð jafnræði var með liðunum í upphafi leiks. ÍA byrjaði betur en gestirnir létu ekki bíða lengi eftir sér og komust yfir snemma leiks. Skagamenn náðu forskotinu á nýjan…Lesa meira

true

Vestlendingar áttu gott innlegg í Eurovision

Fyrri hluti undankeppni Eurovision söngvakeppninnar fór fram í Háskólabíói á laugardagskvöldið. Sex lög voru flutt og komust þrjú þeirra áfram í úrslitakeppnina sem fram fer 11. mars. Seinna undankeppnin verður næstkomandi laugardag. Tvö af þeim lögum sem komust áfram á laugardaginn skarta vestlenskum flytjendum. Annars vegar er það ballaðan Til þín, eftir Hólmrfríði Ósk Samúelsdóttur,…Lesa meira

true

Fengu loðnunótina í hliðarskrúfuna

Skipverjar á Víkingi AK urðu fyrir því óhappi á föstudagskvöldið að fá hluta af loðnunótinni í aðra hliðarskrúfuna á skipinu. Var þá siglt með 1.150 tonna loðnuafla til Vopnafjarðar. Albert Sveinsson, skipstjóri á Víkingi, segir að þeir hafi þá verið staddir á um 20 faðma dýpi út af Landeyjum, vestan við Landeyjahöfn. Kaldafýla var af…Lesa meira

true

Taka í fyrsta skipti þátt í hönnunarkeppninni Stíl

Í Grundaskóla á Akranesi fór í síðustu viku fram undankeppni fyrir hönnunarkeppnina Stíl 2017, en það er árleg keppni Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi. Keppnin á Akranesi var haldin í samstarfi skólans og æskulýðsmiðstövarinnar Þorpsins en  nemendur gátu valið sér þetta viðfangsefni í vali í skólanum. Átta ár eru síðan keppnin var síðast haldin á…Lesa meira