Fréttir

true

Kjöraðstæður til að njóta norðurljósanna

Fram eftir þessari viku verða kjöraðstæður fyrir þá sem vilja njóta norðurljósanna og mynda þau. Spáð er mikilli norðurljósavirkni í vaxandi góutungli. Meðfylgjandi er skjámynd af norðurljósaspá Veðurstofunnar fyrir miðnætti í kvöld. Græna svæðið sýnir skýjahulu og því verður heiðskýr himinn yfir vestanverðu landinu. Sama spá er a.m.k. til fimmtudagskvölds. Hægt er að sjá norðurljósaspána…Lesa meira

true

Sigruðu í sveitakeppni BB

Sveitakeppni Briddsfélags Borgarfjarðar lauk í gærkvöldi í Logalandi. Átta sveitir tóku þátt og var því spilað sjö kvöld. Úrslit urðu þau að sveit Ingimundar Jónssonar sigraði með nokkrum yfirburðum, eða 111,75 stigum. Makker Ingimundar er Jón H Einarsson en auk þess var Sigurður Helgason í Hraunholtum í sveitinni en makkerar hans í keppninni voru þrír,…Lesa meira

true

Skíðasvæði Snæfellsness loks opnað

Grundfirðingar og annað skíðaáhugafólk á Snæfellsnesi fagnaði langþráðum snjónum sem kyngdi niður aðfararnótt sunnudags. Strax var hafist handa við að troða snjóinn í brekkunum með snjótroðaranum og gekk það vel. Það var svo í gær að skíðalyftan fór loks í gang. Þar mátti finna glaðlega skíðagarpa renna sér á skíðum, snjóbrettum og jafnvel snjóþotum. Reyndar…Lesa meira

true

Víkingur kominn á blað í Lengjubikarnum

Víkingur Ólafsvík náði í sín fyrstu stig í Lengjubikar karla í knattspyrnu á móti ÍR síðastliðinn sunnudag. Bæði liðin voru án stiga fyrir leikinn en þau töpuðu fyrstu leikjum sínum í 3ja riðli A-deildar. Víkingur byrjaði leikinn vel en fyrsta markið koma á níundu mínútu þegar Pape Mamadou Faye skoraði frábært mark af 20 metra…Lesa meira

true

Formaður KÍA stígur til hliðar

Örn Arnarson hefur ákveðið að stíga til hliðar sem formaður Körfuknattleiksfélags ÍA. Tilkynningu þess efnis birti hann á Facebook-síðu félagsins síðastliðinn laugardag. „Ég hef tekið þá ákvörðun eftir töluverða umhugsun að láta af störfum sem formaður KÍA á næsta aðalfundi félagsins sem haldinn verður á þriðjudag [í dag]. Þau ár sem ég hef verið í…Lesa meira

true

Snæfellsbær styður áfram við Frystiklefann

Í síðustu viku var ritað undir nýjan samstarfssamning milli Frystiklefans í Rifi og Snæfellsbæjar. Samningurinn felur í sér að samfélagsverkefnin Frystiklefans í leikskólum bæjarins, á dvalarheimilinu og ókeypis leiklistarnámskeið fyrir grunnskólabörn verða öll á dagskránni í sumar. „Nýtt í samningnum er samstarf um tónlistarhátíðina „Rafmagnslaust í Rifi.“ Það verkefni er í hugmyndafasa og verður mjög…Lesa meira

true

Fjölmenni við útför Ríkharðs Jónssonar

Útför Ríkharðs Jónssonar fv. knattspyrnukappa, málarameistara og heiðursborgara Akraneskaupstaðar var gerð frá Akraneskirkju í dag að viðstöddu fjölmenni. Séra Eðvarð Ingólfsson jarðsöng og Kammerkór Akraness söng við undirleik Sveins Arnars Sæmundssonar. Bjarni Atlason söng einsöng og Kristín Sigurjónsdóttir lék á fiðlu. Heiðursvörð í kirkjunni stóðu félagar í Oddfellow reglunni en utan við kirkjuna stóðu heiðursvörð…Lesa meira

true

Keppt í tölti á KB mótaröðinni

Næstkomandi laugardag klukkan 10 hefst í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi keppni í tölti á KB mótaröðinni. Keppt verður í tölti T3 í ungmennaflokki og 1. flokki, T7 í barnaflokki, unglingaflokki og 2. flokki. Einnig verður keppt í skeiði í gegnum höllina. Skráningu lýkur í gegnum Sportfeng (mótshaldari er Skuggi) fyrir miðnætti miðvikudaginn 1. mars.Lesa meira

true

Snæfellsbær kaupir eignir á Gufuskálum og land á Ingjaldshóli

Snæfellsbær gekk um áramótin frá kaupum á hluta Ríkissjóðs í húsakosti á Gufuskálum og hluta úr landi Ingjaldshólsjarðarinnar. Að sögn Kristins Jónassonar bæjarstjóra kaupir sveitarfélagið alls um 3.300 fm húsnæði á Gufuskálum, þar með talið gistirými, íbúðarhúsnæði, skrifstofur og geymslur sem áður tilheyrðu gömlu lóranstöðinni. Starfsemi hefur verið lítil á staðnum eftir að Landsbjörg hætti…Lesa meira

true

Leitin að upprunanum vann til verðlauna

Eddan 2017, árleg uppskeruhátíð sjónvarps- og kvikmyndagerðarfólks, fór fram í gærkvöldi og var sýnt frá samkomunni á RUV. Kvikmyndin Hjartasteinn í leikstjórn Guðmundar Arnars Guðmundssonar var ótvíræður sigurvegari Eddunnar, hlaut alls níu verðlaun. Næstflestar Eddur hlaut kvikmyndin Eiðurinn í leikstjórn Baltasars Kormáks, eða sex verðlaun. Þriðja árið í röð var Ævar vísindamaður valið besta barna-…Lesa meira