Fréttir

true

Fundað með hestamönnum

Félag hrossabænda og Fagráð í hrossarækt byrjar í dag fundaferð um landið þar sem málefni hestamanna verða rædd. Á fundunum verður meðal annars rætt um félagskerfi hrossabænda, markaðsmál, þróun ræktunarmarkmiðs í hrossarækt og dómskala, nýjungar í skýrsluhaldi og fleira. Með fulltrúum Félags hrossabænda og fagráðs, þeim Sveini Steinarssyni formanni Félags hrossabænda og fagráðs og Þorvaldi…Lesa meira

true

Keppt í fimmgangi í Vesturlandsdeildinni á föstudaginn

Þriðja mót Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum verður föstudagskvöldið 3. mars í Faxaborg, Borgarnesi. Keppnisgrein kvöldsins verður fimmgangur og er kvöldið styrkt af Leikni Hestakerrum. Sem fyrr verður húsið opnað kl. 18.00 og keppni hefst á slaginu 19.00. Vesturlandsdeildin er einstaklings- og liðakeppni en 24 knapar mynda sex, fjögurra manna lið sem etja kappi í fimm greinum…Lesa meira

true

„Fórum að blómstra eftir að við tókum við kaffihúsinu“

Síðastliðið vor tók Olga Sædís Aðalsteinsdóttir við rekstri kaffihússins Kaffi Emil í Grundarfirði ásamt dóttur sinni, Elsu Fanneyju Grétarsdóttur. Þær standa saman að rekstri fyrirtækisins Svansskála ehf., sem heldur utan um rekstur Kaffi Emils. Kaffihúsið er staðsett í Sögumiðstöðinni sem einnig hýsir sögusafn, upplýsingamiðstöð og bókasafn. Samhliða kaffihúsarekstrinum hafa þær mæðgur sinnt upplýsingagjöf til ferðamanna.…Lesa meira

true

Segir mikið vanta upp á þegar kemur að málefnum fatlaðra

Nokkrir foreldrar fólks með fötlun á Akranesi hafa verið í sambandi sín á milli að undanförnu og rætt málefni aðstandenda sinna, sem búa á sambýlinu við Laugarbraut. Einar Jónsson er einn þessara aðstandenda. Hann segir að aðbúnaður fólks með fötlun hafi verið ræddur innan hópsins að undanförnu, ekki síst eftir umfjöllun fjölmiðla um aðbúnað fólks…Lesa meira

true

Hægt að byrja að telja fram í dag

Opnað er fyrir rafrænt skattframtal einstaklinga á vef Ríkisskattstjóra í dag, miðvikudaginn 1. mars. Fram kemur í frétt frá embættinu að fjöldi framteljenda á grunnskrá er nú um 285 þúsund einstaklingar og hefur þeim fjölgað um 2,6% milli ára. Áætlað er að um 70% þeirra sem telja fram þurfi ekkert að gera annað en að…Lesa meira

true

Kjarasamningum verður ekki sagt upp

Niðurstaða forsendunefndar Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, vegna endurskoðunar kjarasamninga, er að tvær af þremur forsendum standast en ein gerir það ekki. Sú snýst um launaþróun annarra hópa í þjóðfélaginu. Samninganefnd ASÍ hefur engu að síður, m.a. að undangengnum fundahöldum í baklandi stéttarfélaganna, ákveðið að segja ekki upp núgildandi kjarasamningi. Forsendurnar sem voru til skoðunar…Lesa meira

true

Skrifað undir samninga um ljósleiðaravæðingu ársins

Fulltrúar fjarskiptasjóðs og 24 sveitarfélaga víðsvegar um landið skrifuðu í dag undir samninga um styrki sjóðsins til sveitarfélaganna vegna ljósleiðaravæðingar þeirra í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt. Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, staðfesti einnig samningana með undirskrift sinni og fór athöfnin fram á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sveitarfélögin 24 fá samtals 450 milljónir króna í…Lesa meira

true

Loðnuvinnsla hafin á Akranesi

Uppsjávarveiðiskipið Venus NS kom til Akraness í gærkvöldi með nánast fullfermi af fallegri loðnu. Það er jafnframt fyrsta loðnan sem berst á Akranes á þessari vertíð. Aflinn fékkst á miðunum skammt út af Þorlákshöfn en loðnan er nú á hraðri ferð vestur með suðurströndinni. Vinnsla hófst strax eftir komu skipsins og hrognafrysting hefst að vonum…Lesa meira

true

Árlegt togararall hafið

Stofnmæling botnfisks á Íslandsmiðum er hafin og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fjögur skip taka þátt í verkefninu að þessu sinni; togararnir Ljósafell SU og Barði NK og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson. Alls verður togað á um 600 stöðvum á 20-500 m dýpi umhverfis landið. Fram kemur í frétt Hafró að verkefnið, sem…Lesa meira

true

Ók á vegskilti

Fyrir hádegi í dag var fólksbíl ekið út af veginum um Vatnaleið að norðanverðu og hafnaði á bíllinn á lítilli eyju sem heldur uppi umferðarskilti. Fernt var í bílnum og sakaði engan. Bíllinn er hins vegar óökufær.Lesa meira