
Samkvæmt nýrri tilkynningu frá Vegagerðinni er ófært í Hvalfirði. Þungfært er í Álftafirði á Snæfellsnesi. Að öðru leyti er færð á Vesturlandi þokkaleg.Lesa meira

Samkvæmt nýrri tilkynningu frá Vegagerðinni er ófært í Hvalfirði. Þungfært er í Álftafirði á Snæfellsnesi. Að öðru leyti er færð á Vesturlandi þokkaleg.Lesa meira

Bænastund verður í Akraneskirkju í dag, sunnudaginn 26. febrúar klukkan 17:00, vegna sviplegs fráfalls Lindu Drafnar Pétursdóttur. Að sögn séra Eðvarðs Ingólfssonar sóknarprests verður samverustundin í hálfa klukkustund. Þar verður farið með bæn, hugleiðingu og heilagt orð og fagrir orgeltónar á milli atriða. Að sögn séra Eðvarðs eru allir hjartanlega velkomnir.Lesa meira

Búið er að opna helstu stofnvegi. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að þungfært sé í Hvalfirði. Þæfingsfærð er í Staðarsveit og eins bæði á Fróðárheiði og Útnesvegi en þungfært í Álftafirði. Aðrar aðalleiðir á Vesturlandi eru þokkalega færar.Lesa meira

Björgunarsveitir á Vesturlandi og af Kjalarnesi voru kallaðar út í morgun til að loka þjóðvegi eitt á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Þá var Björgunarfélag Akraness kallað út til aðstoðar vegna þess að sjúkrabílar komust ekki leiðar sinnar í ófærðinni. Um 15 björgunarsveitarmenn á Akranesi unnu í morgun við að aðstoða heilbrigðisstarfsfólk til að komast til…Lesa meira

Snjó kyngdi niður í nótt og víða er allt að hálfur metri af jafnföllnum snjó á suðvesturhorni landsins. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að allar leiðir til og frá Reykjavík séu lokaðar eða ófærar nema Reykjanesbraut og stofnbrautir á höfuðborgarsvæðinu eru ekki fólksbílafærar. Mikil óvissa er hvenær takist að opna. Vegurinn fyrir Hafnarfjall er lokaður…Lesa meira

Félagar í Björgunarfélagi Akraness eru nú að vinna við að festa þak á húsi við Suðurgötu á Akranesi. Plötur voru teknar að losna og þakið að lyftast. Þótti því tryggast að festa þakið í heilu lagi eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Töluvert suðaustan hvassviðri er nú í bænum.Lesa meira

Vonskuveður er víða á landinu þessa stundina og af þeim sökum hefur Vegagerðin gripið til þess ráðs að loka fyrir umferð á ákveðnum leiðum. „Í dag má búast við að færð spillist mjög víða í dag föstudaginn 24. febrúar og ekkert ferðaveður verði á landinu,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni snemma á fjórða tímanum nú…Lesa meira

Skila lægðarinnar sem búist er við að valdi roki á öllu landinu í dag, eru nú komin upp að suðurströndinni, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Í dag er spáð vonskuveðri á landinu. Vaxaandi suðaustanátt með snjókomu verður um landið suðvestanvertvert, stormur eða rok (20-28 m/s) víða síðdegis. Hlýnar smám saman og fer þá…Lesa meira

Skallagrímur mætti Stjörnunni í æsispennandi leik í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Garðabæ og fór að lokum svo að heimamenn höfðu betur, en sigur þeirra var mjög naumur. Leikurinn var í járnum lengi vel og úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum. Stjarnan hafði þriggja stiga sigur, 83-80. Skallagrímsmenn byrjuðu…Lesa meira

Eftir andlát Georgs Breiðfjörð Ólafssonar í Stykkishólmi eru nú 39 Íslendingar á lífi sem eru hundrað ára eða eldri. Jensína Andrésdóttir í Reykjavík er elst, 107 ára, Guðrún Straumfjörð í Reykjavík er næstelst, 105 ára, og Jón Hannesson í Kópavogi er þriðji elstur, 104 ára. Þetta kemur fram í yfirliti Jónasar Ragnarssonar sem heldur úti…Lesa meira