Fréttir

true

Misstu sigurinn úr greipum sér

Botnlið Snæfells mætti Grindvíkingum í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Stykkishólmi. Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, mátti horfa á leikinn úr stúkunni en hann tók út leikbann sem hann fékk í Vesturlandsslagnum gegn Skallagrími í síðustu umferð. Eftir að hafa leitt fyrstu þrjá leikhlutana misstu Snæfellingar forskotið í hendur gestanna…Lesa meira

true

Harður árekstur í Helgafellssveit

Nokkuð harður árekstur varð um klukkan 14 í gær í Stórholtunum í Helgafellssveit á Snæfellsnesi. Fólksbíll rann í hálku framan á tönn á snjóruðningsbíl. Báðir bílarnir köstuðust út af veginum og eru taldir ónýtir. Ökumaður fólksbílsins slasaðist nokkuð og var fluttur með sjúkrabíl undir læknishendur í Reykjavík. Ökumann snjóruðningsbílsins sakaði ekki.Lesa meira

true

Skallagrímur sigraði í kaflaskiptum leik

Skallagrímur mætti Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á miðvikudagskvöld. Leikið var í Garðabæ. Fyrir leikinn í gær hafði Skallagrímsliðið tapað síðustu þremur leikjum en ljóst er að tapleikirnir verða ekki fleiri í röð. Skallagrímur sigraði í spennandi en kaflaskiptum leik, 79-84. Upphafsfjórðungurinn gaf tóninn fyrir það sem á eftir kom. Stjarnan byrjaði betur…Lesa meira

true

Lést í umferðarslysi á Reykjanesbraut

Konan sem lést í umferðarslysi á Reykjanesbraut austan við Brunnhóla síðastliðinn þriðjudagsmorgun hét Linda Dröfn Pétursdóttir. Linda var 54 ára gömul, fædd 23. apríl 1962. Hún var búsett á Akranesi og starfaði á Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Linda og eiginmaður hennar voru á suðurleið á fólksbíl þegar slysið átti sér stað. Þau lenda í árekstri við jeppabifreið…Lesa meira

true

Snæfell fór létt með Njarðvík

Snæfell situr sem fastast á toppi Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik eftir auðveldan sigur á Njarðvík á miðvikudag. Liðin mættust í Stykkishólmi og Snæfell einfaldlega rúllaði gestunum upp. Lokatölur urðu 82-55, Snæfelli í vil. Njarðvíkurliðið hafði heldur yfirhöndina í upphafi leiks og komst í 5-11 seint í fyrsta leikhluta. Þá breyttu Snæfellskonur um takt í…Lesa meira

true

Reiknaðar afurðir í sauðfjárrækt hafa aldrei verið meiri

Uppgjöri skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir árið 2016 er nú að mestu lokið. Á nýjum vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins er sagt að uppgjör ársins 2016 komi „glimrandi vel út og hafa reiknaðar afurðir eftir hverja kind í skýrsluhaldinu aldrei verið meiri í sögu skýrsluhaldsins en formleg uppgjör eru til frá árinu 1954.“ Reiknaðar afurðir síðasta árs eru…Lesa meira

true

Ferðaþjónustufólk hvatt til að vara ferðafólk við

Þorsteinn Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir í samtali við ruv.is að björgunarsveitarfólk vonist til að fólk verði ekki á ferðinni í dag að óþörfu. „Hluti af okkar forvarnarstarfi gagnvart ferðamönnum var virkjað í gær. Þá sendum við varnaðarupplýsingar um veðrið á tæplega þrjú þúsund ferðaþjónustufyrirtæki víða um land sem þau geta prentað út og hengt upp.…Lesa meira

true

Ófært um Kjalarnes

Hvassviðri sem spáð var færist hraðar inn á landið en áætlað var. Veginum um Kjalarnes hefur nú verið lokað, en þar er mjög hvasst og hált og ekkert ferðaveður, að sögn vegfarenda sem höfðu samband við Skessuhorn. Veðrið mun verða slæmt í dag um allt land, fyrst á suðvesturhorni landsins og síðan munu skil lægðarinnar …Lesa meira

true

Ógna náttúrulegu lífríki

„Stjórn Veiðifélags Norðurár í Borgarfirði lýsir áhyggjum sínum af ástandinu í fiskeldismálum við Íslandsstrendur vegna þess að fiskur hefur sloppið úr eldiskvíum og ógnar þar með náttúrulegu lífríki í íslenskum ám,“ segir í ályktun sem stjórn veiðifélagsins samþykkti á fundi 19. febrúar síðastliðinn.Lesa meira

true

Iðnnám er líka fyrir stelpur

Helga Dögg Lárusdóttir og Sólveig María Arnórsdóttir eru meðal þeirra kvenna sem eru í iðnnámi við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þær eru báðar á sinni fjórðu og jafnframt síðustu önn í grunnnámi málmiðngreina. Þeim líkar námið vel, segja það fjölbreytt og skemmtilegt. „Ég var búin að ákveða að læra þetta þegar ég var enn í grunnskóla. Mig…Lesa meira