Fréttir

true

Siguroddur leiðir einstaklingskeppnina en Leiknir/Skáney liðakeppnina

Lið Leiknis/Skáneyjar jók forustu sína eftir annað keppniskvöld í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum, en að þessu sinni var keppt í slaktaumatölti í Faxaborg. Allir fjórir liðsmenn Leiknis/Skáney raða sér nú meðal sex efstu manna í einstaklingskeppninni, en hana leiðir þó Siguroddur Pétursson. Það eru þó enn mörg stig í pottinum. Fjögur efstu liðin í deildinni halda…Lesa meira

true

Norðurálsmótið verður síðustu helgina í júní

Norðurálsmótið í knattspyrnu fyrir 7. flokk drengja hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn stærsti íþróttaviðburður landsins og er orðinn fastur liður í menningarlífi Akranesbæjar. Norðurálsmótið 2017 verður haldið helgina 23.-25. júní næstkomandi. Verður mótið með hefðbundnu sniði. Þátttakendur úr 7. flokki karla leika í sjö manna liðum en úrslitin eru ekki skráð.…Lesa meira

true

Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2016

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2016. Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af…Lesa meira

true

Sjómenn samþykktu – fyrstu skipin fóru strax til veiða

Talningu lauk í atkvæðagreiðslu sjómanna um nýjan kjarasamning við SFS á níunda tímanum í kvöld. Samningurinn var samþykktur með naumum meirihluta og lýkur því verkfalli sem hófst 14. desember sl. Atkvæði fóru þannig að 52,4% samþykktu samninginn en 46,9% greiddu atkvæði gegn honum. Auðir og ógildir atkvæðaseðlar voru átta. Á kjörskrá voru 2.214 og kusu…Lesa meira

true

Atkvæði talin í kvöld

Eins og fram hefur komið náðist á föstudagskvöldið kjarasamningur milli Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og var samningurinn undirritaður rétt eftir miðnætti sama kvöld. Samningurinn er nú í kynningu og atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna aðildarfélaga SSÍ. Atkvæði um samninginn verða talin í kvöld klukkan 20:00 á skrifstofu ríkissáttasemjara. kjarasamningur_2017Lesa meira

true

Slökkvilið kallað út vegna elds í plastbáti

Slökkvilið Grundarfjarðar var kallað út í gærmorgun í iðnaðarhúsnæði við Nesveg. Þar hafði verið unnið við viðgerð á plastbáti og talið að kviknað hafi í út frá hitablásara sem var í botni bátsins. Enginn var staddur í þessum hluta hússins þegar eldurinn kom upp en maður í öðru iðnaðarbili varð var við reyk og kallaði…Lesa meira

true

Útskrifað frá Háskólanum á Bifröst

Í gær voru 82 nemendur útskrifaðir frá Háskólans á Bifröst á háskólahátíð. Nemendur þessi koma úr öllum háskóladeildum, verslunarstjórnun og úr Háskólagátt. Vilhjálmur Egilsson rektor sagði í útskriftarræðu að Bifrestingum gangi almennt mjög vel á vinnumarkaði, enda séu þeir fólk sem leysi vandamál og kunni að vinna með öðrum. Samfélagið nú sem í framtíðinni gengi…Lesa meira

true

Til hamingju með daginn konur!

Konudagurinn er í dag. Dagurinn er ætíð sunnudagur í 18. viku vetrar þegar Þorrinn hefur kvatt og góan gengið í garð. Góan færir okkur einmitt birtu og inngang í vorið, líkt og konur gera reyndar allt árið. Konur; til hamingju með daginn og takk fyrir að vera til!Lesa meira

true

Tvöfaldur Vesturlandsslagur framundan í Borgarnesi

Nú um helgina er á dagskrá tveggja daga Vesturlandsorrusta í körfuknattleik í Borgarnesi. Skallagrímur og Snæfell mætast í Domino’s deildum karla og kvenna. Konurnar ríða á vaðið í dag, laugardaginn 18. febrúar, kl. 16:30 með stórleik umferðarinnar í Domino’s deild kvenna. Liðin mættust síðast í undanúrslitum bikarsins þar sem Skallagrímur hafði betur, eins og þekkt er. Snæfell á því…Lesa meira

true

Rúmlega 600 nýjar íbúðir

  Opinn kynningarfundur á skipulagslýsingum Sements- og Dalbrautarreits var haldinn á Akranesi að kvöldi síðasta fimmtudags. Fundurinn fór fram í sal Grundaskóla og var hann vel sóttur. Fundarstjóri var Rakel Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður starfshóps um Sementsreit. Efni fundarins var tvíþætt, í fyrsta lagi voru kynntar skipulagslýsingar fyrir Dalbrautarreitinn svokallaða og í öðru lagi fyrir…Lesa meira