Fréttir

true

Engey í togprófunum á Hvalfirði

Nýjasta skip fiskveiðiflotans, Engey RE, var nú í hádeginu í dag siglt inn á Hvalfjörð í fallegu vetrarveðri. Skipið kom til landsins í gærmorgun frá Tyrklandi eftir tæplega 4000 sjómílna siglingu. Nú verða framkvæmdar togprófanir í Hvalfirði en eftir þær er von á skipinu til Akraness þar sem vinnslubúnaður frá Skaganum3X verður settur niður. Í…Lesa meira

true

Ritari verður að dótturfyrirtæki Stay Akranes

Fyrirtækið Ritari var stofnað á Akranesi 2007 af tveimur fjölskyldum. Hjónin Eggert Herbertsson og Ingibjörg Valdimarsdóttir komu inn í fyrirtækið árið 2011 og hafa átt og rekið það síðan, ásamt öðrum hluthöfum sem voru þá fjórar fjölskyldur. Nú hafa þau keypt aðra hluthafa fyrirtækisins út en skrifað var undir kaupsamning síðastliðinn föstudag. Hjónin reka einnig…Lesa meira

true

Leikritið um Línu Langsokk á fjalirnar hjá Sv1 í Borgarnesi

Leikfélagið Sv1 í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi vinnur nú að uppfærslu leikritsins um Línu Langsokk. Áætlað er að frumsýning verði 10. febrúar en til að það náist þurfa leikarar og annað starfsfólk sýningarinnar að vinna hörðum höndum við æfingar og gerð sviðsmyndar á næstu vikum. Ásamt nemendum úr menntaskólanum taka nemendur úr 10. bekk grunnskólans…Lesa meira

true

Runnu á kannabislyktina

Lögreglan á Vesturlandi stöðvaði í gærdag kannabisræktun í húsi á Akranesi og lagði hald á 16 kannabisplöntur. Mbl.is greinir frá því að lykt sem barst frá húsinu hafi gefið lögreglu tilefni til að kanna hvað þar væri að finna. Kom í ljós að í húsinu leyndust 16 kannabisplöntur af öllum stærðum. Einn var handtekinn vegna…Lesa meira

true

Laugargerðisskóli fær góða umsögn Menntamálastofnunar

Skýrsla Menntamálastofnunar um ytra mat á Laugargerðisskóla, sem stofnunin vann fyrir Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Eyja- og Miklaholtshrepp, hefur verið gerð opinber og aðgengileg á vefnum. Í skýrslunni er gerð grein fyrir ytra mati skólans en það fór fram á haustönn 2016. Skólinn er sem kunnugt er samanrekinn leik- og grunnskóli og kannaðir voru fjórir…Lesa meira

true

Covile loksins gjaldgengur með Snæfelli

Eins og greint hefur verið frá áður hefur Snæfelli gengið illa að fá leyfi fyrir Christian Covile, nýjan leikmann karlaliðs félagsins. Fyrst tafðist afgreiðsla inni á borði Útlendingastofnunar milli jóla og nýárs vegna veikinda og fjarveru starfsmanna. Síðar kom í ljós að hann væri á sakaskrá í heimalandinu Bandaríkjunum og fékk hann því ekki atvinnuleyfi…Lesa meira

true

Nokkuð þægilegur sigur Skallagríms

Skallagrímur heimsótti Grindavík þegar leikið var í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Leikurinn var aldrei neitt sérstaklega spennandi. Skallagrímskonur voru sterkari allan tímann en leikur Grindavíkur var mjög kaflaskiptur. Að lokum fór svo að Skallagrímur vann nokkuð þægilegan 16 stiga sigur, 67-83. Í blábyrjun leiksins var nokkuð jafnræði með liðunum en strax um…Lesa meira

true

Flutti inn 700 staflanlega veislustóla

Fyrirtækið GS Import á Akranesi fékk í síðustu viku til landsins 700 nýja stóla og 90 borð. Það var félagið Club 71 sem festi kaup á húsgögnunum og voru þau notuð í fyrsta sinn á þorrablóti Skagamanna, sem fram fór síðastliðinn laugardag. Að sögn Gísla Sigurjóns Þráinssonar hjá GS Import er um að ræða hefðbundin…Lesa meira

true

Snæfell hafði sigur á Val í erfiðum leik

Heil umferð fór fram í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Snæfell tók á móti Val í Stykkishólmi og hafði sigur en þurfti að hafa fyrir honum. Leikurinn var hnífjafn þar til Snæfellskonur tóku að síga fram úr í þriðja leikhluta og sigruðu að lokum með tíu stigum, 82-72. Snæfell skoraði fyrstu tvær körfur…Lesa meira

true

Enginn sótti um starf læknis í Stykkishólmi

Auglýst var eftir lækni til starfa á háls- og bakdeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Stykkishólmi seint á síðasta ári og rann umsóknarfrestur út á áramótum. Þá var þess einnig getið í auglýsingu að starfinu fylgdi möguleiki á tengingu við störf við heilsugæslu. Engar umsóknir bárust þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar og jafnvel þó læknum hafi verið kynnt…Lesa meira