Fréttir

true

Rætur reifaðar og tengsl toguð í Borgfirðingasögum

Þriðjudaginn 7. febrúar nk. verður fyrsta námskeiðskvöld vetrarins á vegum Snorrastofu, Landnámsseturs Íslands og Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi. Það er upphaf námskeiðs í höndum Óskars Guðmundssonar rithöfundar í Véum, sem flytur fyrirlestra með hefðbundnu sniði og efnir til umræðna meðal þátttakenda. Þetta fyrsta kvöld verður í Landnámssetrinu í Borgarnesi og hefst kl. 20. Stofnanirnar þrjár hafa…Lesa meira

true

Á þriðja tug framúrskarandi fyrirtækja á Vesturlandi

Síðdegis í gær tilkynnti Creditinfo hvaða félög eru á lista Framúrskarandi fyrirtækja árið 2016. Að þessu sinni munu 621 fyrirtæki hljóta viðurkenningu sem er tæplega 2% af skráðum fyrirtækjum hérlendis. Þar af eru 22 fyrirtæki á Vesturlandi. „Þessi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að sýna stöðugleika í rekstri og skapa þannig sjálfbær verðmæti og eru því…Lesa meira

true

Hefja kjötvinnslu í Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey

Eins og kunnugt er hófst í lok október á liðnu ári starfsemi í Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi. Þá hafði tekið nokkur ár fyrir eigendur gamla stórgripasláturhússins að fá öll vinnsluleyfi til að mega hefjast handa. En um leið og sláturleyfi fékkst var jafnframt útgefið leyfi til kjötvinnslu fyrir allt nema hakk. Það leyfi…Lesa meira

true

„Það er alltaf þörf fyrir gott fólk í björgunarsveitirnar“

Erling Pétursson er 26 ára Grundfirðingur og jafnframt starfandi formaður Björgunarsveitarinnar Klakks. Hann starfar einnig sem sjúkraflutningamaður ásamt því að vera í slökkviliðinu og er að ljúka námi til stúdentsprófs um næstu áramót. Erling hefur verið í björgunarsveitinni síðan í lok árs 2009 en hann kom inn í sveitina á nokkuð óvenjulegan hátt. „Já, það…Lesa meira

true

“Munum stóla á okkar stelpur að mynda kjarnann í liðinu“

Helena Ólafsdóttir var ráðin þjálfari kvennaliðs ÍA síðasta haust og hóf formlega störf þegar æfingar liðsins hófust í nóvembermánuði. Hún á að baki farsælan feril, varð margfaldur Íslandsmeistari með KR og bikarmeistari með bæði KR og ÍA. Þá hefur hún sömuleiðis hampað þremur bikarmeistaratitlum sem þjálfari; tveimur með KR og einum með Val. Síðast þjálfaði…Lesa meira

true

Hestakerra valt við Borgarnes

Umferðaróhapp varð skammt norðan við Borgarnes um hálf ellefuleytið í morgun. Mbl.is greinir frá. Ökumaður pallbíls með hestakerru í eftirdragi missti stjórn á bifreiðinni vegna hálku með þeim afleiðingum að kerran valt. Ökumaður náði að forða bílnum frá veltu og er ómeiddur en nokkrar skemmdir eru á bifreiðinni. Engir hestar voru í kerrunni þegar óhappið varð…Lesa meira

true

Hættir í næstu viku eftir 46 ár samfleytt í tryggingabransanum

Tímamót verða á skrifstofu Sjóvá á Akranesi nú um mánaðamótin en þá lætur af störfum Ólafur Grétar Ólafsson eftir hvorki fleiri né færri en 46 ár hjá fyrirtækinu. Við starfi hans hefur nú tekið Haraldur Ingólfsson, en auk þeirra hefur starfað á skrifstofunni frá árinu 2002 Harpa Hrönn Finnbogadóttir. Opið hús verður þriðjudaginn 31. janúar…Lesa meira

true

Falast eftir Hellisheiðarvirkjun

Einkahlutafélagið MJDB vill kaupa Hellisheiðarvirkjun af Reykjavíkurborg, Akraneskaupstað og Borgarbyggð. Sagt er frá þessu í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál. Fyrr í mánuðinum fengu sveitarfélögin þrjú tilboð í eignarhluti sína en Orkuveita Reykjavíkur hafnaði tilboði sama félags í virkjunina um miðjan desember í annað sinn. Á næstu vikum munu forsvarsmenn sveitarfélaganna funda um…Lesa meira

true

„Fáir verða eins fegnir og ég að verða fimmtíu ára“

“Nei, ég hefði aldrei trúað því að ég yrði svona gamall. Þetta kemur algjörlega flatt upp á mig,“ segir fjölmiðlamaðurinn Gísli Einarsson en hann fagnar 50 ára afmæli sínu á morgun, fimmtudaginn 26. janúar. „Reyndar get ég trúað þér fyrir því að ég var eiginlega alveg viss um að ná alls ekki þessum aldri. Þannig…Lesa meira

true

Gengu að Akranesvita í heilsueflingarátaki

Síðdegis í gær fóru nemendur og starfsfólk Fjölbrautaskóla Vesturlands í gönguferð að Akranesvita. Göngunni fylgdi að sjálfsögðu skoðunarferð í vitanum. Lagt var upp frá FVA kl. 16, gengið sem leið lá niður Kirkjubraut, yfir Akratorg að Suðurgötu og síðan sem leið lá niður að Akranesvita á Breið. Góð þátttaka var í göngunni. Viðburðurinn var liður…Lesa meira