Fréttir

true

Kalla eftir hugmyndum íbúa um framtíðarsýn

Miðvikudaginn 22. mars næstkomandi verða liðin 150 ár frá því að Kristján VIII Danakonungur undirritaði skjal þess efnis að Borgarnes hlyti stöðu sem löggiltur verslunarstaður. Í skjalinu er kveðið á um að heimilt sé að reisa sölubúðir og reka verslun við Brákarpoll allt árið. Upphaf byggðar í Borgarnesi er rakið til þessa dags. Stefnt er…Lesa meira

true

Aldrei fleiri Vestlendingar á Mannamóti

Markaðsstofur landshlutanna stóðu fyrir ferðasýningunni Mannamót 2017 fimmtudaginn 19. janúar í flugskýli Ernis við Reykjavíkurflugvöll. Tilgangurinn var að auka dreifingu ferðamanna um landið með því að mynda og efla tengsl milli ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi því þrátt fyrir fjölgun ferðamanna til landsins síðustu ár eru enn mörg ónýtt sóknarfæri á landsbyggðinni og ferðaþjónustan í stakk búin…Lesa meira

true

Hálka og snjóþekja á fjallvegum

Greiðfært er að mestu um vegi á Vesturlandi. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að snjóþekja er á Holtavörðuheiði og hálka á Bröttubrekku. Hálkublettir eru á Vatnaleið og á Fróðárheiði.Lesa meira

true

Stefnt að stærstu útgáfu frá upphafi af ferðablaði um Vesturland

Útgáfuþjónusta Skessuhorns er nú byrjuð af krafti kynningu á væntanlegri útgáfu ferðablaðs fyrir Vesturland, Travel West Iceland 2017-2018. Blaðið verður á ensku og íslensku og gefið út í 50 þúsund eintökum. Jafnframt verður dreifing blaðsins aukin frá fyrri árum og gerð markvissari til að mæta kröfum ferðaþjónustufyrirtækja á Vesturlandi. Meðfylgjandi er auglýsing þar sem fólk…Lesa meira

true

Krambúð opnuð á Akranesi á morgun

Á morgun, fimmtudag klukkan 13:00, verður opnuð ný verslun við Garðagrund 1 á Akranesi þar sem Grundaval og síðast Samkaup Strax hafa verið til húsa. Verslunin er undir nýju vörumerki sem Samkaupskeðjan er að byggja upp og nefnist Krambúð og er verslunin á Akranesi fjórða þessarar tegundar á landinu. Ein er staðsett við Skólavörðustíg í…Lesa meira

true

Óska eftir tilboðum í framkvæmdir við Vesturgötu

Líkt og greint hefur verið frá í Skessuhorni mun endurgerð Vesturgötu á Akranesi hefjast á vormánuðum. Gatan var fræst síðastliðið vor og í framhaldinu kom í ljós að óhjákvæmilegt er talið að endurbyggja götuna að fullu. Jarðvegsskipt verður í götunni og hún malbikuð en jafnframt verða lagnir veitufyrirtækja í götunni endurnýjar eða endurbættar, eftir því…Lesa meira

true

Æfingar í frjálsum hafnar á Akranesi

Frjálsíþróttaæfingar eru hafnar hjá Ungmennafélaginu Skipaskaga á Akranesi. Æft er í Akraneshöllinni á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 17:30-19:00 báða dagana. Æfingarnar miðast við aldurinn 6 ára og uppúr. Þjálfari er Ómar Ólafsson og er síminn hans 841-8065. Allir eru velkomnir að taka þátt, segir í fréttatilkynningu frá Umf. Skipaskaga.Lesa meira

true

Harður árekstur tveggja bíla

Umferðaróhapp varð á Smiðjuvöllum á Akranesi fyrir hádegi í dag, til móts við ÞÞÞ flutningafyrirtækið. Tveir bílar skullu saman á gatnamótum með þeim afleiðingum að önnur bifreiðin valt á hliðina. Að sögn lögreglu urðu engin meiðsl á fólki en báðir bílarnir eru töluvert skemmdir.Lesa meira

true

Skipuleggja dimman föstudag í Borgarbyggð

Þær Eva Hlín Alfreðsdóttir og Heiður Hörn Hjartardóttir í Borgarnesi hafa boðað athyglisvert verkefni í Borgarbyggð föstudaginn 27. janúar. Hvetja þær til að íbúar í sveitarfélaginu taki hvíld frá raftækjum á föstudaginn og taki þátt í Föstudeginum Dimma.  „Um er að ræða algerlega sjálfsprottna viðburði sem ætlað er að hvetja til umhugsunar um raftækjanotkun, skjátíma…Lesa meira

true

Boðið á ráðstefnu um lyfjanotkun í íþróttum

Síðdegis á morgun, fimmtudag, mun Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Íþróttabandalag Reykjavíkur standa fyrir ráðstefnu um lyfjamál í íþróttum. Fer hún fram klukkan 17:30-20:30 í Háskólanum í Reykjavík og er hluti af WOW Reykjavik International Games 2017. Í tilkynningu segir að þetta sé einstakt tækifæri til þess að fá að heyra um eitt stærsta málefni…Lesa meira