Fréttir

true

Nýsköpunarsmiðja hjá Auðarskóla í Dölum

Nemendur unglingastigs Auðarskóla í Dölum lögðu leið sína í félagsheimilið Árblik síðastliðinn þriðjudag til að taka þátt í nýsköpunarsmiðju um ferðamál í Dölum. Smiðjan var undir leiðsögn Bjarnheiðar Jóhannsdóttur ferðamálafulltrúa Dalabyggðar og Eyjólfs Eyjólfssonar frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Markmið smiðjunnar var að skoða þarfir markaðarins og auðlindir á svæðinu og vinna út frá því að þróun…Lesa meira

true

Nýr löndunarkrani bætir aðstöðu í Ólafsvíkurhöfn

Nýr löndunarkrani, sem er staðsettur efst á Norðurtanga, var tekinn í notkun í Ólafsvíkurhöfn á dögunum. Kraninn er góð viðbót og mun hann nýtast vel en oft hefur verið erfitt að landa á gömlu krönunum sérstaklega í sunnanáttum vegna sjógangs í höfninni. Þessi krani er búinn fjarstýringu sem er til mikilla þæginda fyrir þá sem…Lesa meira

true

Gáfu öllum nemendum endurskinsvesti

Í liðinni viku fengu nemendur og starfsfólk Reykhólaskóla heimsókn. Þá litu við fulltrúar Þörungaverksmiðjunnar, þau Finnur Árnason framkvæmdastjóri, Birna Björnsdóttir framleiðslustjóri og Bjarni Þór Bjarnason. Færðu þau Reykhólaskóla að gjöf endurskinsvesti sem verksmiðjan hafði látið útbúa handa öllum 70 nemendum leik- og grunnskóladeildarinnar, með nafni hvers og eins á bakinu. Starfsfólk skólans fékk einnig vesti.…Lesa meira

true

Aldís Inga og Katrín Lea eru hátónsbarkar Akraness

Hátónsbarkinn, söngkeppni Brekkubæjarskóla og Grundaskóla og félagsmiðstöðvarinnar Arnardals á Akranesi, var haldinn að kvöldi síðasta þriðjudags. Keppnin fór fram fyrir fullu húsi í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Þar kepptu fjögur atriði frá hvorum skóla fyrir sig til úrslita. Flytjendur stóðu sig með stakri prýði, stemningin var góð og almenn ánægja með keppnina. Um undirleik…Lesa meira

true

Árleg garðfuglahelgi framundan

Fuglavernd stendur fyrir árlegri talningu garðfugla næstu daga og hvetur íbúa landsins til þátttöku. „Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma dagana 27. – 30. janúar. Athugendur velja hvaða dag þeir fylgjast með garðfuglunum eftir veðri og aðstæðum. Þátttakendur skrá hjá sér hvaða…Lesa meira

true

Loðnukvótinn verður 57 þúsund tonn

Sem kunnugt er bentu haustmælingar Hafrannsóknastofnunar á loðnustofninum til þess að veiðistofn loðnu fyrir komandi vertíð yrði afar lítill. Því var, í samræmi við samþykkta aflareglu, ákveðið að engar loðnuveiðar yrðu stundaðar nema vetrarmælingar gæfu tilefni til endurskoðunar. Þær fóru fram dagana 11. – 20. janúar sl. og þá var stærð veiðistofnsins endurmetin 446 þúsund…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður vill ekki selja hlutinn í Hellisheiðarvirkjun

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar í dag var lagt fram tilboð um kaup á hlut Akraneskaupstaðar í Hellisheiðarvirkjun. Tilboðsgjafi óskaði eftir því að með tilboðið yrði farið sem trúnaðarmál. Sambærilegt tilboð var sent til Reykjavíkurborgar og Borgarbyggðar en var í gær, þegar Skessuhorn leitaði upplýsinga, ekki búið að taka erindin þar fyrir formlega. Bæjarráð Akraneskaupstaðar ákvað…Lesa meira

true

Björn Þorsteinsson rektor LbhÍ boðar starfslok

Dr. Björn Þorsteinsson, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ), hefur óskað eftir lausn frá starfi sem rektor af persónulegum ástæðum. Mun hann hverfa aftur til prófessorsstarfa innan skólans. Háskólaráð LbhÍ mun í kjölfarið undirbúa auglýsingu um ráðningu nýs rektors í samstarfi við menntamálaráðuneytið. Fram að því mun Björn gegna starfinu. Björn hefur starfað sem rektor LbhÍ frá…Lesa meira

true

Borgarbyggð, Reykhólasveit og Dalabyggð hljóta sérstaka ljósleiðarastyrki

Jón Gunnarsson, nýr samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur ákveðið með vísan til markmiða byggðaáætlunar og umsagnar stjórnar Byggðastofnunar að verja allt að 100 milljónum króna úr fjárveitingu byggðaáætlunar til að styrkja sérstaklega uppbyggingu ljósleiðarakerfis í strjálbýlum sveitarfélögum. Á Vesturlandi fá sveitarfélögin Borgarbyggð, Dalabyggð og Reykhólasveit úthlutun úr pottinum. Þessi fjárveiting kemur til viðbótar 450 m.kr. úthlutun…Lesa meira

true

Krambúð opnuð á Akranesi í dag

Dyr Krambúðarinnar voru rétt í þessu opnaðar fyrsta sinni fyrir viðskiptavinum á Akranesi, eða klukkan 13 í dag. Verslunin er undir nýju vörumerki sem Samkaupskeðjan er að byggja upp og nefnist Krambúð og er verslunin á Akranesi fjórða þessarar tegundar á landinu. Verslunin er til húsa að Garðagrund 1, þar sem Grundaval og nú síðast…Lesa meira