Fréttir

true

VÍS tryggir Borgarbyggð

Sveitarfélagið Borgarbyggð gekk til samninga við tryggingafélagið VÍS að undangengnu útboði á tryggingum sveitarfélagsins. Samningurinn er til tveggja ára með möguleika á framlengingu. Sólrún Fjóla Káradóttir þjónustufulltrúi VÍS í Borgarnesi er ánægð með að tryggja sína heimabyggð. „Helmingur sveitarfélaga á Vesturlandi er nú í viðskiptum hjá VÍS. Við höfum skapað okkur sterka stöðu meðal þeirra…Lesa meira

true

ÍA fær Íslandsmeistarana í heimsókn í fyrsta leik

Búið er að draga í töfluröð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu fyrir komandi sumar og hægt er að sjá alla leiki mótsins á vef KSÍ. Í fyrstu umferðinni fá Skagamenn Íslandsmeistara FH í heimsókn á Akranes en Víkingur Ólafsvík heimsækir Val. Í annarri umferð taka Víkingar á móti KR en ÍA hefur mótið á tveimur heimaleikjum…Lesa meira

true

Erlend kortanotkun fjórðungur heildarveltunnar

Í desember nam erlend greiðslukortavelta 14,9 milljörðum króna samanborið við 9,4 milljarða í desember 2015. Um er að ræða ríflega 58% aukningu frá sama mánuði árið áður. Allt árið 2016 greiddu erlendir ferðamenn 232 milljarða hérlendis með kortum sínum, meira en helmingi meira en árið 2015 þegar greiðslukortaveltan var 154,4 milljarðar. Nærri lætur að erlend…Lesa meira

true

Slæmur síðari hálfleikur varð ÍA að falli

Á föstudagskvöld mættust ÍA og Valur í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikið var í Valshöllinni í Reykjavík. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik tóku heimamenn öll völd á vellinum og báru sigur úr býtum og það örugglega. Þeir sigruðu með 99 stigum gegn 63 stigum ÍA. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn framan af. Valsmenn höfðu…Lesa meira

true

Lánleysi Snæfells heldur áfram

Snæfell heimsótti Njarðvík í Domino‘s deild karla í körfuknattleik að kvöldi síðasta föstudags. Snæfell lék án erlends leikmanns og mun sú verða raunin það sem eftir lifir mótsins, en Christian Covile, sem liðið hafði samið við mun ekki leika með því og hefur verið sendur heim. Ástæðan er sú að hann er á sakaskrá í…Lesa meira

true

Snæfell sendir Covile heim

Botnlið Snæfells mun ljúka yfirstandandi keppnistímabili í Domino‘s deild karla án erlends leikmanns. Eins og áður hefur verið greint frá rifti liðið samningi sínum við Sefton Barrett þegar tímabilið var hálfnað. Í stað hans var fenginn til liðsins Christian Covile, en tafir urðu á leyfamálum hans vegna veikinda og fjarveru starfsmanna Útlendingastofnunar milli jóla og…Lesa meira

true

Sérhæfðir leitarhópar kallaðir út til leitar að Birnu

Leitarfólk úr björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna leitarinnar að Birnu Brjánsdóttur sem saknað hefur verið síðan á aðfararnótt laugardags. Um er að ræða sérhæft leitarfólk sem mun einbeita sér að svæðinu þar sem síðast sást til Birnu og leita skipulega út frá því. Svæðisstjórn björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út…Lesa meira

true

35 umsóknir í Fjarskiptasjóð

UmsóknarferliFjarskiptasjóðs vegna verkefnisins Ísland ljóstengt stendur nú yfir. Ferlið skiptist í A og B hluta. Frestur til að skila inn umsókn og gögnum í A hluta rann út síðasta miðvikudag og alls bárust Fjarskiptasjóði gögn frá 35 sveitarfélögum á landsvísu. Mat á þeim gögnum liggur nú fyrir, að því er fram kemur á vef innanríkisráðuneytisins.…Lesa meira

true

Magnaður Svarti Galdur

Frásagnarlistin var menningarbrunnur á Íslandi forðum og er það greinilega enn ef miðað er við kjarnyrtan flutning Geirs Konráðs Theodórssonar á nokkrum vel völdum íslenskum þjóðsögum í Landnámssetrinu á frumsýningarkvöldið. Tíðindamaður Skessuhorns var á staðnum og naut sýningarinnar: „Þar sýndi Geir Konráð í fyrsta skipti Svarta Galdur fyrir fullum sal og hlaut afar góðar viðtökur.…Lesa meira

true

Bikarmeistararnir komnir í undanúrslit

Snæfell mætti Stjörnunni í átta liða úrslitum Maltbikars kvenna, bikarkeppni KKÍ, í gær. Eftir jafnan og spennandi leik voru það bikarmeistarar Snæfells sem höfðu betur eftir góðan endasprett, 68-63. Stjarnan byrjaði betur og hafði undirtökin í leiknum þar til Snæfell komst í gang og náði forystunni seint í upphafsfjórðungnum. Það varði hins vegar ekki lengi,…Lesa meira