Fréttir

true

Jólaverslun fór fyrr af stað en áður

Rannsóknasetur verslunarinnar tekur saman ýmsar gagnlegar upplýsingar um þróun verslunar í landinu. Þar kemur fram að í takti við aukinn kaupmátt og vöxt í einkaneyslu jókst verslun í desember eins og við hafði verið búist. Neyslumynstrið í jólaversluninni hefur samt breyst nokkuð og fer hún nú fyrr af stað en áður. Þannig var hærra hlutfall…Lesa meira

true

Varað við hvassviðri og umhleypingum

Veðurfræðingar Veðurstofunnar benda á að þeir spá suðvestan hvassviðri eða stormi með éljagangi og kólnandi veðri fram á nótt. Hvassast verður norðvestan til. Nánar segir í veðurspá fyrir næsta sólarhring að gert erráð fyrir suðvestanátt, 10-18 m/s, en 15-23 m/s um landið norðvestanvert þegar kemur fram á daginn. Él, einkum vestan til, en léttir til…Lesa meira

true

Sveit Guðmundar Ólafssonar er Vesturlandsmeistari í bridds

Vesturlandsmóti í sveitakeppni var spilað um síðustu helgi og tóku aðeins fjórar sveitir þátt að þessu sinni. Vesturland á þrjú sæti í undankeppni og jafnframt fyrstu varasveit og þykir því líklegt að allar fjórar sveitirnar mæti í undankeppni Íslandsmótsins. Vesturlandsmeistarar þetta árið var sveit Guðmundar Ólafssonar, en ásamt honum spiluðu í sigursveitinni Hallgrímur Rögnvaldsson, Karl…Lesa meira

true

Rýma hluta höfuðstöðva OR vegna skemmda

Komið hefur í ljós að rakaskemmdir í hluta höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur við Bæjarháls í Reykjavík eru meiri en áætlað var. Rýma þarf vesturhluta hússins meðan gert er við og verða nauðsynlegar viðgerðir boðnar út á næstunni. Alls óvíst er um kostnað en fram til þessa hefur þurft að lagfæra húsið fyrir um 200 milljónir króna.…Lesa meira

true

Samstöðufundur sjómanna og fiskvinnslufólks í dag

Boðað er til samstöðufundar sjómanna og fiskvinnslufólks á Austurvelli í dag klukkan 16-19. „Þar ætlum við að sýna fram á að báðar starfsstéttirnar standa við bakið á hvor annarri þar sem þær mynda ákveðna atvinnukeðju. Fari önnur stéttin í verkfall verður hin verkefnalaus. Við ætlum að hittast á Austurvelli mánudaginn 16. janúar kl. 16:00,“ segir…Lesa meira

true

Sigrún Sjöfn er Íþróttamaður Borgarfjarðar 2016

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir körfuknattleikskona í Skallagrími og landsliðskona var í gær kjörin Íþróttamaður Borgarfjarðar 2016. Athöfnin fór fram í félagsheimilinu Lyngbrekku og var það Ungmennasamband Borgarfjarðar sem stóð að henni. Í öðru sæti í valinu á Íþróttamanni Borgarfjarðar var Helgi Guðjónsson knattspyrnumaður úr Reykholti og leikmaður með Fram. Þriðju urðu dansararnir Daði Freyr Guðjónsson frá…Lesa meira

true

Lýst eftir tvítugri stúlku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Birnu Brjánsdóttur sem er fædd árið 1996. Birna er 170 cm há, um það bil 70 kg og með sítt rauðleitt hár. Birna var klædd í svartar gallabuxur, ljósgráa peysu, svartan flísjakka með hettu og svarta Dr. Martin skó. Síðast er vitað um ferðir Birnu í miðborg Reykjavíkur um kl.…Lesa meira

true

„Ekki Free the Nipple dagur í dag“

Engar opinberar reglur eru um sundfatnað kvenna í Jaðarsbakkalaug á Akranesi. Þrátt fyrir það var ungri konu vísað úr lauginni um helgina fyrir þá sök að fara á skýlunni einni fata í sund. Þótt hún hafi bent á að karlmenn væru jafn mikið/lítið klæddir kom það ekki að sök og var henni tjáð að það…Lesa meira

true

Snæfell og Skallagrímur leika í bikarnum

Um helgina er leikið í átta liða úrslitum Maltbikarsins, bikarkeppni Körfuknattleikssambands Íslands. Vestlendingar eiga tvo fulltrúa í bikarkeppni kvenna, Snæfell og Skallagrím. Önnur lið vestlensk eru fallin úr leik. Snæfell mætir Stjörnunni á morgun, laugardaginn15. janúar. Leikurinn fer fram í Stykkishólmi og hefst kl. 15:00. Skallagrímur keppir á mánudag, 16. janúar, þegar liðið mætir KR.…Lesa meira

true

Sólarhringsvakt lögreglu að nýju á Akranesi og í Borgarnesi

Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri Vesturlands hefur gert þá breytingu á vaktkerfi fyrir útkallslið lögreglunnar á Akranesi og í Borgarnesi að svokallaðri sólarhringsvakt hefur að nýju verið komið á. Breytingin tók gildi 1. janúar síðastliðinn. Vegna hagræðingar í rekstri embættisins um mitt síðasta ár var það fyrirkomulag ekki viðhaft. Að sögn Úlfar verður á ný keyrt á…Lesa meira