
Í dag var skrifað undir í fjármálaráðuneytinu samning varðandi útfærslu á yfirtöku ríkissjóðs á lífeyrisskuldbindinga hjúkrunarheimilisins Höfða á Akranesi, en það er eitt þeirra heimila sem rekið hefur verið með ábyrgð sveitarfélaga. Stærsta einstaka lífeyrisskuldbindingin hér á landi var á Akranesi þar sem allar lífeyrisskuldbindingar vegna starfsfólks Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Höfða voru á ábyrgð Akraneskaupstaðar.…Lesa meira








