Fréttir

true

Samþykkt að ganga til viðræðna við Ragnar Frank um starf sviðsstjóra

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var samþykkt að ganga til viðræðna við Ragnar Frank Kristjánsson um að taka við stöðu sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs sveitarfélagsins. Átta sóttu um starfið og var ráðgjafi frá Intellecta sem stýrði viðtölum við þá tvo sem metnir voru hæfastir. Byggðarráð var samdóma í niðurstöðu sinni. Ragnar hefur um árabil…Lesa meira

true

Samþykkt að sameina hestamannafélögin Skugga og Faxa

Á aðalfundum í hestamannafélögunum Skugga í Borgarnesi og Faxa í Borgarfirði, sem haldnir voru samtímis í gærkvöldi, var samþykkt með yfirgnæfandi fjölda atkvæða að stofna nýtt hestamannafélag og leggja gömlu félögin niður. Hjá Faxa fór atkvæðagreiðsla um sameininguna þannig að 28 greiddu atkvæði með tillögu sameiningarnefndar og fimm voru á móti. Hjá Skugga fór atkvæðagreiðsla…Lesa meira

true

Snæfell hrifsaði til sín sigurinn

Snæfell vann góðan útisigur á liði FSu, 98-102, í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Selfyssingar höfðu undirtökin lungann úr leiknum en Snæfell náði forystunni í fjórða leikhluta og náði að hrifsa til sín sigurinn eftir æsispennandi lokamínútur. Heimamenn voru heldur sprækari í fyrsta leikhluta. Gott flæði var í sóknarleik þeirra og þeir höfðu…Lesa meira

true

Tók upp jólalag með blönduðum barna- og karlakór

Nýverið var gerð videóupptaka af nýju jólalagi eftir Valgerði Jónsdóttur tónlistarkonu af Akranesi. Lagið er samið við sálm eftir Brynju Einarsdóttur og nefnist Jólasálmur. Barnakór úr Grundaskóla og Karlakórinn Svanir sungu en um undirleik sáu þau Flosi Einarsson og Sigrún Þorbergsdóttir. Valgerður stjórnaði kórunum en Bergur Líndal Guðnason kvikmyndagerðarmaður tók upp. Nánar er rætt við…Lesa meira

true

Forseti Íslands sækir Dalina heim

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mun fara í opinbera heimsókn í Dalabyggð ásamt föruneyti dagana 6. og 7. desember næstkomandi. Af því tilefni verður boðið til fjölskylduhátíðar í Dalabúð að kvöldi fimmtudagsins 7. desember. Á meðan ferð forseta um Dali stendur mun hann heimsækja bæði fyrirtæki og áhugaverða staði í Dalabyggð. Á vefnum budardalur.is er…Lesa meira

true

Ungmennafélagið Stjarnan stendur á tíræðu

Ungmennafélagið Stjarnan var stofnað í Saurbæjarhreppi í Dölum laugardaginn 1. desember árið 1917. Félagið á því aldarafmæli næsta föstudag. Í tilefni þess ætla félagsmenn að halda upp á afmælið í Tjarnarlundi laugardaginn 2. desember næstkomandi kl. 20:00. Arnar Eysteinsson í Stórholti er formaður Umf. Stjörnunnar. „Ungmennafélagið býður öllum til kaffisamsætis í Tjarnarlundi í tilefni dagsins.…Lesa meira

true

„Starfið gefur mér tækifæri til að hitta alls konar áhugavert fólk“

Borgnesingurinn Gréta Sigríður Einarsdóttir tók nýverið við ritstjórn tímaritsins Iceland Review, en það er elsta tímaritið um Ísland sem gefið er út á ensku, stofnað árið 1963. „Fyrsta tölublaðið sem ég ritstýrði kom út í byrjun mánaðarins,“ segir Gréta ánægð í samtali við Skessuhorn. „Tímaritið kemur út sex sinnum á ári og svo erum við…Lesa meira

true

Lionsmenn undirbúa ljósakrossana á Akranesi

Nú þegar líða fer að aðventu, þá förum við Lionsmenn að undirbúa uppsetningu ljósakrossanna í kirkjugarðinum eins og alltaf. Við höfum notið velvilja bæjarbúa og þeirra sem utan bæjarins búa í gegnum árin í þessu verkefni okkar. Í mörg ár höfum við getað keypt tæki og gefið sjúkrahúsinu á grunni velvilja þeirra sem leigja af…Lesa meira

true

Snæfell vann góðan sigur á Haukum

Snæfell vann góðan útisigur á Haukum, 68-77, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Snæfellskonur höfðu yfirhöndina bróðurpart leiksins en Haukar hleyptu þeim aldrei frá sér. Með yfirveguðum leik á lokasprettinum náði Snæfell hins vegar að sigla sigrinum heim. Jafnræði var með liðunum í upphafi en Snæfell hafði heldur undirtökin. Haukar…Lesa meira

true

Hvernig vilt þú hafa kjötið þitt?

Fyrir nokkru komst EFTA-dómstóllinn í Lúxemborg að þeirri niðurstöðu, eins og greint hefur verið frá í Skessuhorni, að bann íslenskra stjórnvalda við innflutningi á hráu kjöti, ógerilsneyddri mjólk eða afurðum úr henni sem og ógerilsneyddum eggjum eða afurðum úr þeim, samræmist ekki EES-samningnum. Þótt dómurinn sjálfur breyti ekki neinu sem slíkur munu stjórnvöld þurfa að…Lesa meira