Fréttir

true

Félag eldriborgara í Grundarfirði er 25 ára

Sunnudaginn 1. október voru 25 ár liðin frá því að Félag eldri borgara í Grundarfirði var stofnað. Var þessara tímamóta minnst á aðalfundi félagsins sem haldinn var á afmælisdaginn í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Aðalhvatamaðurinn og fyrsti formaður félagsins var Guðmundur Runólfsson og með honum í stjórn voru Ólafur Gíslason gjaldkeri og Vigdís Gunnarsdóttir ritari.  Meðstjórnendur voru…Lesa meira

true

Briddsfólk heldur minningarmót um Þorstein Pétursson

Laugardaginn 25. nóvember næstkomandi hefur verið ákveðið að halda tvímenningsmót í bridds til minningar um Þorstein Pétursson frá Hömrum í Reykholtsdal, sem lést síðastliðið sumar 86 ára að aldri. Þorsteinn hafði mikla unun af spilamennsku. Aðallega spilaði hann lomber og bridds og varð m.a. Íslandsmeistari í tvímenningi eldri spilara árið 1994. Hann starfaði talsvert að…Lesa meira

true

Breyta gömlu smíðaverkstæði í íbúðahús

Gamalt smíðaverkstæði í hjarta Ólafsvíkur gengur í gegnum endurnýjun lífdaga um þessar mundir. Húsið, sem stendur við Ennisbraut 1, hefur í gegnum tíðina gegnt ólíku hlutverki. Þar hefur meðal annars verið símstöð, félagsmiðstöð, kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins og Sparisjóður, en nú á að breyta því í íbúðahús. Jóhann Már Þórisson og Þórir Jónsson faðir hans, sem reka…Lesa meira

true

Tvískiptur sorphirðubíll er umhverfisvænni leið við sorphirðu

Gámaþjónusta Vesturlands ehf. tók við sorphirðu á Akranesi og sorpmóttökustöð Gámu á Höfðaseli fyrir um mánuði síðan. Að sögn Lilju Þorsteinsdóttur rekstrarstjóra Gámaþjónustu Vesturlands ehf. hefur gengið mjög vel að sinna þjónustunni. „Við erum svo heppin að hafa á að skipa frábæran hópi starfsfólks og okkur hefur verið tekið mjög vel af íbúum Akraness. Fólk…Lesa meira

true

Eftirherman og orginalinn í Bíóhöllinni laugardaginn 7. október

Þeir Guðni Ágústsson og Jóhannes Kristjánsson munu láta gamminn geysa með skemmtun sína; Eftirherman og orginalinn, í Bíóhöllinni á Akranesi laugardaginn 7. október nk. Þeir boða magnað skemmtikvöld með gamansögum og eftirhermum. Þeir félagar byrjuðu að skemmta saman í fyrravor og komu þá fram á 18 skemmtunum, flestum í Salnum í Kópavogi, Landnámssetrinu í Borgarnesi…Lesa meira

true

Hefur náð góðum árangri í skotfimi

„Ég sá auglýst konukvöld hjá Skotfélagi Snæfellsness sem mig langaði að fara á og dró vinkonu mín með mér. Bæði Eymar maðurinn minn og Guðmundur Andri bróðir minn eru refaskyttur og vinna saman við það,” segir Dagný Rut Kjartansdóttir í Grundarfirði. Umrætt konukvöld var í ágúst fyrir rúmu ári. „Við fengum að prófa nokkrar tegundir…Lesa meira

true

Þjálfari Skallagríms setur markið hátt

Spánverjinn Ricardo Gonzalez Dávila tók við þjálfun kvennaliðs Skallagríms á liðnu sumri. Hann er fluttur í Borgarnes ásamt fjölskyldu sinni og segir þau una hag sínum vel í bænum. „Ég og fjölskyldan mín erum ánægð í Borgarnesi. Fólkið er mjög almennilegt og hjálplegt í einu og öllu,“ segir Ricardo í samtali við Skessuhorn. Æfingar Skallagríms…Lesa meira

true

Markmiðið að komast í úrslitakeppnina

„Veturinn leggst bara vel í mig,“ segir Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, í samtali við Skessuhorn. Kvennalið Snæfells leikur í Domino‘s deildinni á komandi vetur. Liðið var deildarmeistari á síðasta keppnistímabili og komst alla leið í úrslitaviðureignina um Íslandsmeistaratitilinn en varð að játa sig sigrað gegn Keflavík í fjórum leikjum. En lið Snæfells hefur tekið…Lesa meira

true

Segja taprekstri afurðastöðva velt yfir á bændur

Sauðfjárbændur á Íslandi horfa fram á mikla tekjuskerðingu í kjölfar boðaðrar lækkunar afurðaverðs til bænda. Stjórnarslit ríkisstjórnarinnar hafa síðan hleypt málinu í mikla óvissu sem er sauðfjárbændum erfið. Skessuhorn ræddi stöðuna við Davíð Sigurðsson í Miðgarði, formann Félags sauðfjárbænda í Borgarfirði og Þóru Sif Kópsdóttur á Ystu-Görðum, formann Félags sauðfjárbænda á Snæfellsnesi. Þau eru sammála…Lesa meira

true

Spéfuglar á fjalir Bíóhallarinnar

Þeir Guðni Ágústsson og Jóhannes Kristjánsson munu láta gamminn geysa með skemmtun sína; Eftirherman og orginalinn, í Bíóhöllinni á Akranesi laugardaginn 7. október nk. Þeir boða magnað skemmtikvöld með gamansögum og eftirhermum. Þeir félagar byrjuðu að skemmta saman í fyrravor og komu þá fram á 18 skemmtunum, flestum í Salnum í Kópavogi, Landnámssetrinu í Borgarnesi…Lesa meira