Fréttir

true

Kvennahlaup ÍSÍ var í dag

Í morgun fór Kvennahlaup ÍSÍ fram á níu stöðum á Vesturlandi. Markmið þess er að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu. Kvennahlaupið er einn útbreiddasti og fjölmennasti íþróttaviðburður sem haldinn er á Íslandi ár hvert. Konur á öllum aldri taka þátt og allir geta hlaupið eða gengið á þeim hraða sem hentar. Mjög algengt er…Lesa meira

true

Reynir að fullnýta afurðir af sauðkindinni með handverki

Nú nýverið hóf sauðfjárbóndinn Þóra Sif Kópsdóttir á Ystu-Görðum í Kolbeinsstaðahreppi að framleiða handverk undir merkinu Eldborgar Kind. Þóra Sif vinnur handverkið úr afurðum sauðkindarinnar; spinnur ull, vinnur ýmislegt úr hornunum og sútar gærur, svo eitthvað sé nefnt. Úr hornunum vinnur Þóra alls kyns hluti eins og t.d. skartgripi og lyklakippur en hún lærði að…Lesa meira

true

Ísbúðin opnuð í Búðardal

Í síðustu viku var Ísbúðin opnuð í Búðardal. Hana reka Baldur Þórir Gíslason og Harpa Sif Ingadóttir. Í sama húsi reka þau einnig veitingastaðinn Veiðistaðinn sem þau opnuðu fyrir ári síðan. Sumaropnunartíminn er frá klukkan 12 til 21 alla daga, en bæði í tilfelli ísbúðarinnar og veitingastaðarins er fyrst og fremst gengið út frá rekstri…Lesa meira

true

Stefnir í veglega Brákarhátíð um aðra helgi

Brákarhátíð verður haldin í Borgarnesi um aðra helgi, dagana 23.- 24. júní. Að venju er allur undirbúningur fyrir hátíðina unninn í sjálfboðaliðavinnu með stuðningi frá fyrirtækjum og sveitarfélaginu Borgarbyggð en Hollvinasamtök Borgarness halda utan um skipulagningu hátíðarinnar. „Þetta er í raun sjálfsprottin hátíð en Hollvinasamtökin sjá um að halda þessu gangandi, að skipuleggja undirbúningsfundi og…Lesa meira

true

Kvennahlaupið í Hvalfjarðarsveit fellur niður

Tekinn hefur verið ákvörðun um það að fella niður fyrirhugað kvennahlaup Hvalfjarðarsveitar á sunnudaginn. Ástæðan er mjög dræm þátttaka. „Það hefur verið lítil sem engin skráning í hlaupið í ár og af fenginni reynslu vitum við að skráning á hlaupadegi er nær engin. Við ákváðum því að fella hlaupið niður í ár. Við viljum þó…Lesa meira

true

Skallagrímur semur við bandarískan leikstjórnanda

Skallagrímur hefur gengið frá samningi við bandaríska leikstjórnandann Zac Carter fyrir keppnistímabilið 2017-2018. Zac útskrifaðist úr Walsh háskólanum í Bandaríkjunum í vor en hann var fjórði stigahæsti leikmaður í 2. deild háskólaboltans síðasta vetur. „Zac hefur verið mikill leiðtogi á velli með þeim liðum sem hann hefur spilað og eru því miklar væntingar [gerðar] til…Lesa meira

true

Myglusveppur fannst á þremur stöðum í Grunnskóla Borgarness

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var lögð fram skýrsla sem verkfræðistofan Efla gerði fyrir Grunnskóla Borgarness í apríl síðastliðnum. Markmið skoðunar Eflu á húsinu var samkvæmt skýrslunni „…að skoða valin rými í húsnæðinu með tilliti til innivistar, kanna hvort rakavandamál séu til staðar og að meta gróflega umfang þeirra og orsök.„  Ekki var allt…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík fékk stig á útivelli

Í Grafarvogi í gær mættust lið Fjölnis og Víkings Ólafsvíkur í sjöundu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu. Fyrir leikinn var Víkingur í neðsta sæti með þrjú stig og Fjölnir tíunda sæti með sjö stig. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli og stóðu liðin því í stað í deildinni. Leikurinn fór fjörlega af stað og eftir tólf…Lesa meira

true

Tvær sumarsýningar í Norska húsinu í Stykkishólmi

Laugardaginn 10. júní kl. 15:00 opnuðu sumarsýningar Norska hússins – BSH. Að þessu sinni eru tvær sýningar, myndlistarsýning eftir Ernu Guðmarsdóttur, Fuglar og Fantasíur og ljósmyndasýning eftir Hjördísi Eyþórsdóttur, Snæfellsnes // 中國 . Erna Guðmarsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1940 og stundaði fyrst listnám við Myndlistaskóla Reykjavíkur og lauk svo prófi með kennsluréttindum frá…Lesa meira

true

Flest öll börn á Vesturlandi fá leikskólavist frá tólf mánaða aldri

Nær öll sveitarfélög á Vesturlandi hafa nú þegar lækkað leikskólaaldur niður í 12 mánaða gömul börn. Eins og kom fram í Skessuhorni fyrir stuttu samþykkti byggðarráð Borgarbyggðar að bjóða níu mánaða börnum leikskólavist frá næsta hausti í þeim tilfellum sem húsrúm og starfsmannahald leyfir. Að sögn Björns Bjarka Þorsteinssonar, forseta sveitarstjórnar Borgarbyggðar, spilar skortur á…Lesa meira