Fréttir

true

Jómfrúarsigling Akraness í gær – Áætlunarferðir hefjast á mándudaginn

Um klukkan hálf sex í gærdag lagði ferjan Akranes af stað í jómfrúarsiglingu sína til Akraness. Ferjan mun síðan hefja áætlunarsiglingar á milli Reykjavíkur og Akraness mánudaginn næstkomandi, 19. júní og með því hefjast fyrstu ferjusiglingar á milli sveitarfélaganna frá því Akraborgin hætti að ganga árið 1998. Mikill hátíðarbragur var yfir jómfrúarsiglingunni og tók mikill…Lesa meira

true

Á fjórða hundrað hross væntanleg á Fjórðungsmót Vesturlands

Hestamenn í Borgarnesi og raunar Vesturlandi öllu undirbúa nú af krafti Fjórðungsmót Vesturlands sem haldið verður á félagssvæði hestamannafélagsins Skugga í Borgarnesi vikuna 26. júní til 2. júlí næstkomandi. Þar er nú búið að endurbyggja kynbótabraut sem síðast var notuð fyrir um 20 árum. Brautin var endurvígð í síðustu viku með kynbótasýningu og var almenn…Lesa meira

true

Myndlistarsýning í Munaðarnesi

Kristján Finnsson hefur opnað myndlistarsýninguna Hús, fólk og bátar í Munaðarnesi í Borgarfirði. Kristján er fæddur 1943 í Reykjavík og lærði húsgagnasmíði hjá Ingvari og Gylfa. Hann fór síðan í áframhaldandi húsasmíðanám og var byggingameistari á mörgum byggingum víða um land. Kristján er hættur störfum, hefur snúið sér að myndlist en nýtur  auk þess lífsins…Lesa meira

Þjóðbúningafræðsla í Norska húsinu – BSH

Gestir frá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands koma í heimsókn í Norska húsið mánudaginn 19. júní kl. 17-20. Þetta eru þær Oddný Kristjánsdóttir klæðskeri og kennari í þjóðbúningasaumi, Inda Dan Benjamínsdóttir kennari í baldýringu og flauelsskurði og Guðbjörg Inga Hrafnsdóttir kniplkennari. Boðið verður upp á fræðslu um þjóðbúninga og þá sérstaklega geymslu þeirra og varðveislu. Gestum býðst að…Lesa meira

true

Hafmeyjan mætt að nýju í Skallagrímsgarð

Steinsmiðurinn Gerhard König hefur að undanförnu unnið að endurgerð á styttunni Hafmeyjunni eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal, en listaverkinu var upphaflega komið fyrir í grosbrunninum í Skallagrímsgarði í Borgarnesi árið 1962. Það var Kvenfélag Borgarness sem gaf verkið á 25 ára afmæli félagsins. Var Hafmeyjan jafnframt fyrsta listaverkið sem komið var fyrir í garðinum. Í…Lesa meira

true

Reikigjöld eiga að falla niður frá deginum í dag

Frá og með deginum í dag, 15. júní, munu sérstök gjöld á reiki innan EES-svæðisins falla niður. Eftir að sú breyting tekur gildi munu símnotendur frá þeim löndum sem tilheyra svæðinu borga það sama fyrir símanotkun og gagnamagn á ferðalögum innan EES-svæðisins og þeir greiða heima fyrir. Þetta er samkvæmt reglugerð ESB sem tekin hefur…Lesa meira

true

Nýir meðeigendur komnir að Krauma og framkvæmdir að hefjast

Búið er að skrifa undir samning um kaup nýrra fjárfesta á 66,6% hlut í Krauma við Deildartunguhver. Fyrri eigendur halda þriðjungshlut í fyrirtækinu en fyrirtækið Jökull Invest kaupir meirihlutann. Það er sama félag og stendur á bak við rekstur Hótel Hafnar í Hornafirði. Pétur Jónsson rekstrarhagfræðingur hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Krauma. Hann segir í…Lesa meira

true

Opnað fyrir veiði á Arnarvatnsheiði

Í dag var opnað fyrir sölu veiðileyfa á Arnarvatnsheiði. „Útlitið á heiðinni er óvenju gott eftir mildan vetur og gott vor, samt er vatnsstaðan í vötnunum fín. Vonumst við því eftir að aflinn verði feitur og flottur eftir gott vor,“ segir í frétt frá veiðifélaginu. Nú í byrjun veiðitímans eru því allir vegarslóðar færir og…Lesa meira

true

Manchester City og West Ham mætast á Laugardalvelli

Hin frægu knattspyrnulið Manchester City og West Ham munu mætast í æfingaleik á Laugardalsvelli í The Super Match föstudaginn 4. ágúst kl. 14 en lið úr ensku úrvalsdeildinni hafa aldrei áður mæst hér á landi. The Super Match skipuleggur stóra knattspyrnuleiki á Norðurlöndunum en þar keppa tvö af bestu liðum veraldar hverju sinni. Lið eins…Lesa meira

true

Skagamenn gerðu markalaust jafntefli

Leikið var í sjöundu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu í gær. Skagamenn héldu til Akureyrar til að mæta nýliðum KA. Skagamenn hafa verið í basli í deildinni það sem af er sumri og aðeins sigrað einn leik og voru því í næstneðsta sæti fyrir leikinn með þrjú stig. KA hefur farið betur af stað og…Lesa meira