Fréttir

true

Silicor Materials þarf að gangast undir umhverfismat

Árið 2014 komst Skipulagsstofnun að þeirri niðurstöðu að fyrirhuguð sólarkísilverksmiðja Silicor Materials á Grundartanga þyrfti ekki að gangast undir umhverfismat. Sagði Skipulagsstofnun að verksmiðjan „sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð umhverfisáhrifum.“ Ástæðan fyrir þeirri niðurstöðu sagði Skipulagsstofnun vera þá að hún taldi „að áhrif…Lesa meira

true

Selló Stína heldur stofutónleika á Laugum

Kristín Lárusdóttir, Selló Stína, verður með órafmagnaða tónleika í notalegu setustofunni á Hótel Eddu Laugum í Sælingsdal miðvikudaginn 21. júní klukkan 21. Hún mun koma til með að spila og syngja eigin tónlist, rímur og þjóðlög. Frítt er inn en drykkir seldir á bar. -fréttatilkynningLesa meira

true

Hækka laun bæjarfulltrúa og fyrir nefndarsetu á Akranesi

Bæjarstjórn Akraness samþykkti samhljóða á fundi sínum 13. júní síðastliðinn að hækka laun kjörinna bæjarfulltrúa um 9% frá 1. júní síðastliðnum en ekki umfram það til ársloka 2018. Jafnframt segir í bókun frá bæjarstjórnarfundi að Akraneskaupstaður vilji halda launum kjörinna fulltrúa á vegum bæjarins innan marka SALEK-samkomulagsins. Samhliða samþykkti bæjarstjórn að leggja niður biðlaunarétt bæjarfulltrúa…Lesa meira

true

Endurskoða upplýsingaveitur til ferðamanna

Ferðamálastofa, markaðsstofur landshlutanna og Safetravel vinna nú að því að endurskoða upplýsingaveitu til ferðamanna. Í því felst m.a. breytt skipulag upplýsingamiðstöðva og almennt hvernig upplýsingum er miðlað til ferðafólks. Af því tilefni var nýverið haldið málþing í Borgarnesi þar sem stefnt var saman þeim sem eiga aðkomu að málaflokknum með einum eða öðrum hætti. Unnur…Lesa meira

true

Tilfelli af hundamítli kom upp á höfuðborgarsvæðinu

Nýtt tilfelli af brúna hundamítlinum hefur greinst á hundi á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að mítillinn er ekki talinn landlægur á Íslandi og vinnur stofnunin áfram að því að hindra að þessi vágestur nái fótfestu hér á landi. Matvælastofnun vill benda hundaeigendum á að vera vel vakandi fyrir þessari óværu og hafa…Lesa meira

true

Gróður rýr í sjónum vestan við landið

Árlegum vorleiðangri Hafrannsóknastofnunar lauk 31. maí síðastliðinn. Farið var á rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni. Leiðangurinn var liður í langtímavöktun á ástandi sjávar, næringarefnum, gróðri og átu á hafsvæðinu við Ísland og þannig verið að kanna ástand þessa fyrsta hlekkjar í fæðukeðju sjávar. Í samantekt um niðurstöðu leiðangursins segir að hiti og selta í efri sjávarlögum í…Lesa meira

true

Minningarmót Jóhönnu hápunktur skákhátíðar í Árneshreppi

Skákhátíð í Árneshreppi verður haldin dagana 7. til 9. júlí næstkomandi. Þar gefst áhugamönnum kostur á að spreyta sig gegn sumum af bestu skákmönnum Íslands. Meðal þeirra sem þegar eru skráð til leiks eru Guðmundur Kjartansson nýbakaður Íslandsmeistari, stórmeistararnir Jóhann Hjartarson, Jón L. Árnason og Lenka Ptacnikova og landsliðskonan Guðlaug Unnur Þorsteinsdóttir. Hátíðin hefst með…Lesa meira

true

Myglusveppur greinist í Grunnskólanum í Borgarnesi

Verkfræðistofan Efla var í vor fengin til að gera úttekt á húsnæði Grunnskólans í Borgarnesi. Nú liggja niðurstöður þeirrar úttektar fyrir og voru kynntar á fundi byggðarráðs í síðustu viku. Í ljós kemur að af fjórum sýnum sem tekin voru á stöðum þar sem raka hefur orðið vart, fannst í þremur þeirra myglu- og bakteríuvöxtur.…Lesa meira

true

Stoppað þar sem hentar þrátt fyrir hættuna sem því fylgir

Til að auka hættu á slysum í vaxandi umferð um þjóðvegi landsins er til dæmis hægt að gera eins og bílstjóri þessa hópferðabíls sem var á leið sinni um Stafholtstungur í Borgarfirði í dag. Nokkur hross frá Bakkakoti eru þarna á beit utan við veggirðinguna. Rútan er stöðvuð við óbrotna línu og stuttu framar eru…Lesa meira

true

Hreppsnefnd fól SSV að hefja greiningarvinnu fyrir Eyja- og Miklaholtshrepp

Á fundi hreppsnefndar Eyja- og Miklaholtshrepps síðastliðinn fimmtudag var meðal annars rætt um framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið með tilliti til hugsanlegrar sameiningar við önnur sveitarfélög. Í fundargerð frá hreppsnefndarfundi segir að Eggert Kjartansson oddviti hafi flutt inngang og talað fyrir að skoða þyrfti ýmsa kosti áður en farið yrði að ræða eina leið varðandi sameiningarmál. Málið…Lesa meira