Íþróttir

true

Skagamenn töpuðu stórt gegn Hamri

Fyrsti heimaleikur ÍA í 1. deild karla í körfuknattleik fór fram í gær þegar Skagamenn tóku á móti Hamri frá Hveragerði, en gestirnir voru að spila sinn fyrsta leik á tímabilinu. Nokkur veikindi hrjáðu hóp ÍA og nokkrir leikmenn fjarri góðu gamni af þeim sökum. Eftir jafnan fyrri hálfleik tóku gestirnir öll völd á vellinum og…Lesa meira

true

Liðsheildin var aðalsmerki Snæfells í sannfærandi sigri

Eftir tap gegn nágrönnum sínum í Skallagrími í fyrsta leik Domino‘s deildar kvenna var komið að fyrsta heimaleik Íslandsmeistara Snæfells sem leikinn var í gær.  Gestirnir voru Njarðvíkingar, en liðunum er spáð mjög misjöfnu gengi í deildinni í vetur; Snæfelli efsta sætinu en Njarðvíkingum því neðsta. Í leiknum í gær sást greinilega hví spámennirnir röðuðu…Lesa meira

true

Þurftu að játa sig sigraðar eftir spennandi lokamínútur

Eftir góðan sigur á Snæfelli í fyrsta tímabilsins í Domino’s deild kvenna heimsótti Skallagrímur lið Stjörnunnar á laugardaginn. Leikurinn var fremur jafn en Stjarnan var ívið sterkari lungann úr leiknum og sigraði að lokum með ellefu stigum, 86-75, eftir æsispennandi lokafjórðung. Skallagrímskonur byrjuðu betur og leiddu leikinn framan af fyrsta leikhluta. Stjarnan tók nokkrar mínútur…Lesa meira

true

Tap í fyrsta leik hjá Skallagrími

Nýliðar Skallagríms hófu leik í Domino‘s deild karla í körfuknattleik síðastliðið föstudagskvöld þegar liðið heimsótti Hauka að Ásvöllum í Hafnarfirði. Heimamenn réðu ferðinni stærstan hluta leiksins og Skallagrímsmönnum tókst aldrei að ná yfirhöndinni, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Haukar unnu að lokum tíu stiga sigur, 80-70. Jafnt var á öllum tölum framan af fyrsta leikhluta og…Lesa meira

true

Ungt sundfólk á Litla TYR-móti Ægis

Um helgina var haldið Litla TYR-mót Ægis í Laugardalslaug. Mótið var fyrir sundmenn 12 ára og yngri og sendi Sundfélag Akraness yfir 20 keppendur á aldrinum 10-12 ára til keppni en nokkrir þeirra yngstu voru að keppa í fyrsta sinn á sundmóti í Reykjavík. Keppt var í aldursflokkum 8-9 ára, 10-11 ára og 12 ára.…Lesa meira

true

Grundarfjörður sigraði Kormák

Grundarfjörður tók á móti Kormáki frá Hvammstanga í fyrsta heimaleik í þriðju deildinni í körfunni á laugardaginn. Leikurinn var nokkuð jafn og spennandi og skiptust liðin á að taka forystu. Heimamenn áttu svo góðan kafla í byrjun fjórða leikhluta þar sem þeir náðu tíu stiga forystu og héldu frumkvæðinu eftir það. Gestirnir náðu aðeins að…Lesa meira

true

Þrír á leið á Evrópumót í hópfimleikum

Þrír ungir menn sem eiga rætur í Fimleikafélagi Akraness, FIMA, eru nú á morgun á leið með öðru landsliðsfólki á Evrópumót í hópfimleikum. Mótið er haldið í Maribor í Slóveníu. Þetta eru þeir Logi Örn Axel Ingvarsson, Helgi Laxdal Aðalgeirsson og Guðmundur Kári Þorgrímsson sem allir æfa nú með Stjörnunni í Garðabæ. Þeir Logi og…Lesa meira

true

Fyrsti heimaleikur Grundfirðinga í körfunni á morgun

Grundfirðingar hófu leik í 3. deild karla í körfuknattleik sunnudaginn 2. október síðastliðinn þegar þeir heimsóttu lið Álftnesinga en töpuðu með níu stiga mun, 87-78 . „Fyrsti heimaleikurinn er síðan á morgun, laugardaginn, 8. október, á móti Kormáki frá Hvammstanga sem er skemmtilegt og vel skipulagt lið,“ segir Aðalsteinn Jósepsson, spilandi framkvæmdastjóri liðsins í samtali…Lesa meira

true

Slæm byrjun í síðari hálfleik reyndist Skagamönnum dýrkeypt

Keppni í 1. deild karla í körfuknattleik hófst í gær með tveimur leikjum. Annar þeirra var viðureign ÍA og FSu sem fram fór á Selfossi. Leiknum lauk með sigri FSu, 82-65. Heimamenn byrjuðu betur í leiknum en leikmenn ÍA þurftu smá tíma til að komast almennilega í gang. Jafnt var á með liðunum frá miðjum…Lesa meira

true

Snæfell tapaði stórt í fyrsta leik

Keppni í Domino‘s deild karla í körfuknattleik hófst í gærkvöldi með tveimur leikjum. Snæfell heimsótti ÍR í Breiðholti og Hólmarar riðu ekki feitum hesti frá þeirri viðureign. ÍR-ingar voru sterkari meira og minna allan leikinn og ungt lið Snæfells náði aldrei að gera neina alvöru atlögu að forystunni. Að lokum fór svo að ÍR-ingar sigruðu…Lesa meira