
Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn Hamri, 108-79, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Snæfellingar voru öflugri í upphafi leiks, komust í 4-11 en þá tóku heimamenn við sér. Þeir náðu forystunni í stöðunni 18-17 og leiddu með fjórum stigum eftir fyrsta leikhluta, 29-25. Snæfellingar byrjuðu betur í öðrum fjórðungi.…Lesa meira







