Íþróttir

true

Stórsigur Snæfellskvenna

Snæfell vann stórsigur á Breiðabliki, 93-56, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi. Snæfellskonur voru sterkari frá fyrstu mínútu. Þær komust í 11-1 snemma í fyrsta leikhluta. Blikar minnkuðu muninn í fjögur stig áður en Snæfell tók góðan sprett og 14 stiga forystu áður en leikhlutinn var…Lesa meira

true

ÍA valtaði yfir Stjörnuna

ÍA vann stórsigur á Stjörnunni, 6-0, þegar liðin mættust í Lengjubikar karla á þriðjudagskvöld. Leikið var í Kórnum í Kópavogi. Skagamenn mættu ákveðnir til leiks og voru betra lið vallarins allan fyrri hálfleikinn. Stjarnan skapaði sér nokkur færi en alltaf voru Skagamenn mun hættulegri. Gonzalo Zamorano og Þórður Þorsteinn Þórðarson skoruðu fyrir ÍA, auk þess…Lesa meira

true

Guðjón og Ágústa Íslandsmeistarar í keilu

Guðjón Gunnarsson og Ágústa K. Jónsdóttir úr ÍA urðu í gærkvöldi Íslandsmeistarar einstaklinga í keilu með forgjöf. Sigurður B. Bjarkason úr ÍR hafnaði í öðru sæti í karla flokki og Svavar Þór Einarsson, einnig úr ÍR, varð þriðji. Í kvennaflokki varð Geirdís H. Kristjánsdóttir úr ÍR önnur og Jóna Gunnarsdóttir úr KFR hreppti bronsið. Alls…Lesa meira

true

Valdís Þóra komst ekki áfram

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, komst ekki áfram á Australian Ladies Classic mótinu sem hófst í Ástralíu fyrir helgi. Mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna í golfi. Valdís lék fyrstu tvo hringina í mótinu á samtals níu höggum yfir pari og var tveimur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. Einkum náði…Lesa meira

true

Kepptu í fyrsta sinn í A deild meistaraflokks

Bikarmótið í hópfimleikum var haldið á Selfossi um síðustu helgi. Fimleikafélag Akraness sendi meistaraflokk kvenna til keppni í mótinu og var þetta í fyrsta sinn sem lið frá ÍA keppir í A deild meistaraflokks. Fór svo að lokum að ÍA hafnaði í 4. sæti á mótinu með 42.500 stig. Stjarnan stóð uppi sem sigurvegari með…Lesa meira

true

Brianna Banks hætt hjá Skallagrími

Bandaríska körfuknattleikskonan Brianna Banks hefur yfirgefið Skallagrím. Mun hún því ekki leika með liði Borgnesinga í Domino‘s deild kvenna það sem eftir lifir tímabils. Það er Karfan.is sem greinir frá. Þar er haft eftir Ragnheiði Guðmundsdóttur, sem situr í meistarflokksráði hjá Skallagrími, að Brianna hafi gerst sek um samningsbrot. Í framhaldi af því hafi hún…Lesa meira

true

Snæfell lá gegn Hamri

Snæfell og Hamar mættust í Stykkishólmi í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik tóku gestirnir öll völd á vellinum í þeim síðari. Fór svo að lokum að Hamar vann stórsigur, 63-99. Gestirnir frá Hveragerði voru öflugri í fyrsta leikhluta og leiddu með 27 stigum gegn 13 að honum loknum. Snæfellingar…Lesa meira

true

Einstefna í Stykkishólmi

Snæfellskonur náðu sér ekki á strik gegn Val þegar liðn mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Stykkishólmi. Gestirnir náðu yfirhöndinni snemma leiks og stjórnuðu ferðinni allan tímann. Að lokum fór svo að Valur sigraði með 80 stigum gegn 65 stigum Snæfells. Snæfellskonur fundu sig ekki í upphafsfjórðungnum, skoruðu aðeins…Lesa meira

true

Grundarfjörður sigraði Kormák örugglega

Grundarfjörður tók á móti liði Kormáks frá Hvammstanga í körfunni á laugardaginn. Heimamenn höfðu töluverða yfirburði í leiknum og voru miklu ákveðnari í öllum sínum aðgerðum. Grundfirðingar leiddu með töluverðum mun í hálfleik og það sama var uppi á teningnum í þeim síðari. Stigabilið jókst jafnt og þétt og að endingu var staðan 85-60 heimamönnum…Lesa meira

true

Slök byrjun og slæmur endir

Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar gegn Haukum,  59-72, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Borgarnesi. Leikurinn fór hægt af stað og engin stig voru skoruð fyrstu þrjár mínúturnar, eða þar til gestirnir úr Hafnarfirði komust á blað. Skallagrímskonur fundu sig hins vegar engan veginn í fyrsta leikhluta.…Lesa meira