
Skallagrímur vann góðan baráttusigur á Íslandsmeisturum Hauka í Borgarnesi í gærkvöldi. Eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik náðu Skallagrímskonur undirtökunum og sigruðu að lokum með 67 stigum gegn 53. Liðin skiptust á að leiða í upphafi leiks. Skallagrímskonur náðu síðan góðum kafla seinna hluta fyrsta leikhluta og leiddu að honum loknum, 21-12. En þær áttu erfitt uppdráttar…Lesa meira








