Íþróttir

true

ÍA semur við tvo unga leikmenn

Knattspyrnufélag ÍA hefur gert tveggja ára samning við þá Hlyn Sævar Jónsson og Róbert Ísak Erlingsson. Báðir eru þeir uppaldir hjá ÍA og hafa undanfarin ár leikið með yngri flokkum félagsins. Báðir eru þeir fæddir árið 1999 og voru hluti af liði 2. flokks karla sem varð Íslandsmeistari í sumar. Þá hafa þeir báðir leikið…Lesa meira

true

Góð ferð sundgarpa úr Sundfélagi Akraness á Íslandsmeistaramót

Íslandsmeistaramót í 25m laug fór fram um síðustu helgi í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Átti Sundfélag Akranes þar ellefu keppendur. Alls tók 171 sundmaður þátt frá 12 félögum. Ungmennin úr ÍA áttu mjög góða helgi þar sem persónulegar bætingar voru alls 44 og syntu þau 15 sinnum til úrslita á mótinu. Brynhildur Traustadóttir varð Íslandsmeistari í…Lesa meira

true

Skagamenn misstu af sigrinum

Skagamenn tóku á móti Val B í 2. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Eftir jafnan og spennandi leik missti ÍA liðið gestina fram úr sér á lokamínútunum og þurftu því að sætta sig við tap, 78-89. Þó að leikurinn hafi verið hraður breyttist stigataflan hægt í fyrstu. ÍA pressaði hátt sem getur verið tvíeggja…Lesa meira

true

Afleitur síðari hálfleikur Snæfells

Snæfellingar mættu Selfyssingum á útivelli í 1. deild karla í körfuknattleik á laugardag. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik datt botninn algerlega úr leik Snæfells í þeim síðari og þeir töpuðu að lokum stórt, 96-51. Snæfellingar byrjuðu betur, skoruðu fyrstu fimm stig leiksins, höfðu undirtökin lengst framan af fyrsta leikhluta og leiddu að honum loknum, 17-18.…Lesa meira

true

Tap í kaflaskiptum leik

Skallagrímsmenn máttu sætta sig við tap í kaflaskiptum leik gegn Haukum. 82-80, þegar liðin mættust í sjöttu umferð Domino‘s deildar karla. Leikið var í Hafnarfirði á föstudagskvöld. Borgnesingar byrjuðu leikinn af krafti og voru mun sterkari allan upphafsfjórðunginn. Þeir náðu mest tólf stiga forskoti í stöðunni 10-22 en leiddu með átta stigum eftir leikhlutann, 18-26.…Lesa meira

true

Snæfell á toppnum eftir sigur á Breiðabliki

Snæfell vann góðan sigur á baráttuglöðu liði Breiðablikis, 80-69, í áttundu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi. Bæði lið mættu ákveðin til leiks, spiluðu hratt og voru tilbúin að berjast. Breiðablik hafði heldur yfirhöndina fyrstu mínúturnar. Snæfell komst yfir fyrir miðjan fyrsta leikhluta og leiddi með ellefu stigum að…Lesa meira

true

Misstu dampinn í síðari hálfleik

Skallagrímskonur máttu sætta sig við tap gegn Val þegar liðin mættust í áttundu umferð Domino‘s deildar kvenna í Borgarnesi í gær. Eftir að hafa verið öflugri framan af leik misstu Skallagrímskonur flugið í síðari hálfleik og töpuðu að lokum með 74 stigum gegn 96. Borgnesingar byrjuðu leikinn af miklum krafti, léku þétta vörn og héldu…Lesa meira

true

Þrír Vestlendingar í landsliðshópnum

Ívar Ásgrímsson, landsliðsþjálfari kvenna í körfuknattleik og Hildur Sigurðardóttir aðstoðarþjálfari, hafa valið 14 manna landsliðshóp sem mætir Slóvakíu og Bosníu síðar í þessum mánuði. Liðið hefur æfingar í næstu viku og undirbýr sig fyrir síðustu tvo leikina í undankeppni EuroBasket 2019, sem fer fram í Lettlandi næsta sumar. Þrír Vestlendingar eru í hópnum, systurnar Berglind…Lesa meira

true

Kristinn tekur við þjálfun Skallagríms í fótboltanum

Tilkynnt var í gær að Kristinn Guðbrandsson tekur við þjálfun meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Skallagrími fyrir komandi tímabil. Mun hann hefja störf á næstu dögum og þjálfa liðið sem spilaði sig upp í þriðju deild í haust. Kristinn er 49 ára og hefur komið víða við sem þjálfari. Til að mynda hefur hann þjálfað…Lesa meira

true

Snæfellskonur einar á toppnum

Snæfell er eitt á toppi Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik eftir sannfærandi sigur á Val, 90-74. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi. Liðin fylgdust að fyrstu mínútur leiksins, en um miðjan upphafsfjórðunginn tóku Snæfellskonur öll völd á vellinum og höfðu góða forystu að honum loknum, 27-16. Þær höfðu góð tök á leiknum í öðrum fjórðungi,…Lesa meira