Íþróttir

true

Skallagrímur sigraði Íslandsmeistarana

Skallagrímur vann góðan baráttusigur á Íslandsmeisturum Hauka í Borgarnesi í gærkvöldi. Eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik náðu Skallagrímskonur undirtökunum og sigruðu að lokum með 67 stigum gegn 53. Liðin skiptust á að leiða í upphafi leiks. Skallagrímskonur náðu síðan góðum kafla seinna hluta fyrsta leikhluta og leiddu að honum loknum, 21-12. En þær áttu erfitt uppdráttar…Lesa meira

true

Dregið í 16 liða úrslit bikarsins

Dregið var í viðureignir í 16 liða úrslitum Geysisbikars karla og kvenna í hádeginu í dag. Skallagrímur og ÍA voru í pottinum karlamegin eftir sigur í fyrstu umferð bikarsins. Bikardrátturinn fór á þá leið að Skallagrímur mætir 1. deildar liði Selfyssinga í Borgarnesi en ÍA heimsækir ÍR. Skagamenn leika sem kunnugt er í 2. deild…Lesa meira

true

Snæfellingar úr leik í bikarnum

Snæfell tók á móti Þór Þ. í fyrstu umferð Geysisbikars karla í körfuknattleik á laugardag. Gestirnir frá Þorlákshöfn, sem leika deild ofar en Snæfellingar, tóku öll völd á vellinum í öðrum leikhluta. Eftir það var leikurinn þeim auðveldur og þeir sigruðu að lokum með 90 stigum gegn 61. Þór Þ. skoraði fyrstu stigin í leiknum…Lesa meira

true

Borgnesingar áfram í bikarnum

Skallagrímur sigraði 1. deildar liði Hattar, 74-97, þegar liðin mættust í fyrstu umferð Geysisbikars karla í körfuknattleik. Leikið var á Egilsstöðum á laugardag. Skallagrímur hafði yfirhöndina í upphafi leiks og leiddu með nokkrum stigum framan af fyrsta leikhluta. En heimamenn gáfu Borgnesingum ekkert eftir, jöfnuðu metin og komust yfir áður en upphafsfjórðungurinn var úti, 19-17.…Lesa meira

true

Amerískur fótboltaleikur á Akranesi á laugardag

Leikinn verður amerískur fótbolti á Akranesi á morgun, laugardag, þegar Einherjar mæta sænska liðinu Tyreso Royal Crowns. Mun þetta verða fyrsti keppnisleikur í amerískum fótbolta sem leikinn er á Akranesi. Amerískur fótbolti nokkuð vaxandi vinsælda um heim allan og æ fleiri utan Bandaríkjanna fylgjast með gangi mála í NFL deildinni bandarísku. Haldið er úti deildarkeppni…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði gegn Breiðabliki

Skallagrímsmenn máttu sætta sig við tap á útivelli gegn Breiðabliki í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Borgnesingar fundu taktinn aldrei almennilega í leiknum og urðu því að sætta sig við tíu stiga tap, 93-83. Blikar réðu lögum og lofum á vellinum í upphafi leiks en Skallagrímsmenn voru heillum horfnir. Einkum var varnarleikur Borgnesinga…Lesa meira

true

Naumt tap Skallagrímskvenna

Skallagrímur tapaði naumlega fyrir KR á útivelli, 65-63, í sjöttu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gær. Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar en þegar leið á upphafsfjórðunginn náði KR undirtökunum og hafði sjö stiga forskot eftir leikhlutann, 19-12. Skallagrímskonur sneru dæminu við í öðrum fjórðungi, tóku forystuna um miðbik hans og leiddu með…Lesa meira

true

Snæfell lagði Íslandsmeistarana í framlengdum leik

Snæfell lagði Íslandsmeistara Hauka, 85-90, í æsispennandi framlengdum leik í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Hafnarfirði í gærkvöldi. Haukakonur byrjuðu af miklum krafti og komust í 14-0 áður en Snæfell komst á blað. En eftir að Snæfellskonur skoruðu fyrstu stigin sín léku þær afar vel og náðu að minnka muninn niður í…Lesa meira

true

Bergdís Fanney á förum frá ÍA

Knattspyrnukonan Bergdís Fanney Einarsdóttir hefur gengið í raðir Pepsi deildar liðs Vals frá ÍA. Skrifaði hún undir þriggja ára samning við Val. Bergdís Fanney er aðeins 18 ára gömul og er í hópi efnilegust knattspyrnukvenna landsins. Hún hefur leikið 57 meistaraflokksleiki fyrir ÍA og skorað í þeim 22 mörk. Bergdís skoraði 15 mörk í 18…Lesa meira

true

Snæfellingar töpuðu stórt

Snæfellingar máttu sætta sig við stórt tap gegn Hamri, 60-89, í fjórðu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi á föstudagskvöld. Gestirnir byrjuðu af miklum krafti og höfðu öll völd á vellinum í upphafi leiks. Allt virtist ganga upp hjá þeim á meðan heimamenn höfðu engin svör. Hamar komst í 19-0 áður…Lesa meira