Íþróttir

true

Amerískur fótboltaleikur á Akranesi á laugardag

Leikinn verður amerískur fótbolti á Akranesi á morgun, laugardag, þegar Einherjar mæta sænska liðinu Tyreso Royal Crowns. Mun þetta verða fyrsti keppnisleikur í amerískum fótbolta sem leikinn er á Akranesi. Amerískur fótbolti nokkuð vaxandi vinsælda um heim allan og æ fleiri utan Bandaríkjanna fylgjast með gangi mála í NFL deildinni bandarísku. Haldið er úti deildarkeppni…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði gegn Breiðabliki

Skallagrímsmenn máttu sætta sig við tap á útivelli gegn Breiðabliki í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Borgnesingar fundu taktinn aldrei almennilega í leiknum og urðu því að sætta sig við tíu stiga tap, 93-83. Blikar réðu lögum og lofum á vellinum í upphafi leiks en Skallagrímsmenn voru heillum horfnir. Einkum var varnarleikur Borgnesinga…Lesa meira

true

Naumt tap Skallagrímskvenna

Skallagrímur tapaði naumlega fyrir KR á útivelli, 65-63, í sjöttu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gær. Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar en þegar leið á upphafsfjórðunginn náði KR undirtökunum og hafði sjö stiga forskot eftir leikhlutann, 19-12. Skallagrímskonur sneru dæminu við í öðrum fjórðungi, tóku forystuna um miðbik hans og leiddu með…Lesa meira

true

Snæfell lagði Íslandsmeistarana í framlengdum leik

Snæfell lagði Íslandsmeistara Hauka, 85-90, í æsispennandi framlengdum leik í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Hafnarfirði í gærkvöldi. Haukakonur byrjuðu af miklum krafti og komust í 14-0 áður en Snæfell komst á blað. En eftir að Snæfellskonur skoruðu fyrstu stigin sín léku þær afar vel og náðu að minnka muninn niður í…Lesa meira

true

Bergdís Fanney á förum frá ÍA

Knattspyrnukonan Bergdís Fanney Einarsdóttir hefur gengið í raðir Pepsi deildar liðs Vals frá ÍA. Skrifaði hún undir þriggja ára samning við Val. Bergdís Fanney er aðeins 18 ára gömul og er í hópi efnilegust knattspyrnukvenna landsins. Hún hefur leikið 57 meistaraflokksleiki fyrir ÍA og skorað í þeim 22 mörk. Bergdís skoraði 15 mörk í 18…Lesa meira

true

Snæfellingar töpuðu stórt

Snæfellingar máttu sætta sig við stórt tap gegn Hamri, 60-89, í fjórðu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi á föstudagskvöld. Gestirnir byrjuðu af miklum krafti og höfðu öll völd á vellinum í upphafi leiks. Allt virtist ganga upp hjá þeim á meðan heimamenn höfðu engin svör. Hamar komst í 19-0 áður…Lesa meira

true

Frábær endurkoma Skallagríms

Skallagrímur sigraði á ÍR, 99-96, í æsispennandi leik í Domino‘s deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var í Borgarnesi. Heimamenn byrjuðu leikinn betur og leikur þeirra einkenndist af góðri stemningu. Gestirnir voru þó aldrei langt undan og fjórum stigum munaði eftir fyrsta leikhluta, 27-23. Jafnræði var með liðunum í öðrum fjórðungi. ÍR-ingar jöfnuðu metin…Lesa meira

true

Garðar hættur með ÍA

Knattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugsson og Knattspyrnufélag ÍA hafa komist að samkomulagi um að endurnýja ekki samning Garðars við félagið, sem rennur út um mánaðamótin. „Eftir miklar vangaveltur höfum ég og minn ástkæri klúbbur, ÍA, ákveðið að nú skilji leðir. Vegna vinnu þarf ég að flytjast búferlum til Reykjavíkur og tel að það muni henta mun betur…Lesa meira

true

Snæfell sigraði í framlengdum Vesturlandsslag

Snæfell sigraði Skallagrím, 81-78, í æsispennandi Vesturlandsslag í fjórðu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi. Mikið jafnræði var með liðunum meira og minna allan leikinn. Snæfell náði góðri rispu og sjö stiga forystu seint í fyrsta leikhluta, 19-12 en Skallagrímur minnkaði muninn í fjögur stig áður en upphafsfjórðungurinn var…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í Hólminum í kvöld

Fjórir leikir fara fram í kvöld klukkan 19:15 í fimmtu umferð Domino´s deildar kvenna í körfubolta. Meðal viðureigna kvöldsins er Vesturlandsslagur, en Skallagrímur heimsækir Snæfell í Hólminn. Fyrirfram er búist við hörkuleik enda staðan í deildinni býsna jöfn þegar fjórar umferðir eru búnar. Þannig munar einungis tveimur stigum á fyrsta og sjöunda sæti í deildinni.…Lesa meira