Íþróttir

true

Gonzalo Zamorano semur við ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur gert tveggja ára samning við spænska sóknarmanninn Gonzalo Zamorano. Mun hann því leika með liðinu í Pepsi deild karla næsta sumar. Gonzalo lék stórt hlutverk í liði Víkings Ó. í 1. deildinni á liðnu sumri og skoraði tíu mörk fyrir Ólafsvíkurliðið sem hafnaði í fjórða sæti deildarinnar. Áður hafði hann raðað inn…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu suður með sjó

Skallagrímskonur máttu sætta sig við tap gegn Keflvíkingum í þriðju umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var suður með sjó í gærkvöldi. Heimaliðið hafði undirtökin meira og minna allan leikinn og vann að lokum tíu stiga sigur, 75-65. Keflavík byrjaði mun betur og komst í 15-4 eftir aðeins fjögurra mínútna leik. Skallagrímskonur komust smám…Lesa meira

true

Snæfell sigraði stórleik umferðarinnar

Snæfell og Stjarnan mættust í stórleik þriðju umferðar Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var á heimavelli Stjörnunnar, Mathús Garðabæjar höllinni. Bæði lið voru taplaus fyrir leik gærkvöldsins og því jöfn að stigum á toppi deildarinnar. Búist var við hörkuleik og sú varð einmitt raunin, en að lokum náðu Snæfellskonur að knýja fram…Lesa meira

true

Ísland án sigurs í Þjóðadeildinni

Ísland er enn án sigurs í A deild Þjóðadeildar UEFA eftir 2-1 tap gegn Sviss á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Fyrri hálfleikur var fremur tíðindalítill og lítið um opnanir. Staðan í hléinu var því 0-0 en Svisslendingar byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti. Þeir komust yfir á 52. mínútu þegar Haris Seferovic skoraði með skalla af stuttu…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í fyrstu umferð bikarsins

Nú í hádeginu var dregið í 32 liða úrslit karla í bikarkeppni KKÍ, sem að þessu sinni kallast Geysisbikarinn. Fjögur Vesturlandslið voru í pottinum; Grundarfjörður, ÍA, Snæfell og Skallagrímur. Drógust tvö þeirra saman, því Grundfirðingar taka á móti ÍA í Grundarfirði. Verður því Vesturlandsslagur í fyrstu umferð bikarsins. Snæfell mætir Þór Þ. í Stykkishólmi og…Lesa meira

true

Snæfell tapaði heima gegn Hetti

Snæfell mátti sætta sig við tap gegn Hetti, 70-83, þegar liðin mættust í annarri umferð 1. deildar karla í körfuknattleik á föstudag. Leikið var í Stykkishólmi. Gestirnir frá Egilsstöðum náðu undirtökunum snemma leiks en Snæfellingar voru aldrei langt undan. Fimm stigum munaði þegar þrjár mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta. Hattarmenn áttu lokaorðið og höfðu…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Skallagríms í hús

Skallagrímsmenn eru komnir á blað í Domino‘s deild karla eftir góðan sigur á liði Grindvíkinga, 93-88 í gær. Leikið var í Borgarnesi og var þetta fyrsti heimaleikur Skallagríms í deildinni í vetur. Skallagrímur hóf leikinn af krafti. Liðið lét finna fyrir sér í vörninni og góð stemning einkenndi leik liðsins. Þeir voru enda sterkari í…Lesa meira

true

Sigur eftir æsispennandi lokamínútur

Skallagrímskonur kræktu í fyrstu stig vetrarins í Domino‘s deild kvenna með naumum sigri á Breiðabliki í Borgarnesi í gær, 76-75. Borgnesingar höfðu undirtökin í upphafi leiks, komust í 11-2 og höfðu átta stiga forskot að loknum fyrsta leikhluta, 25-17. Bæði lið léku þéttan varnarleik í öðrum fjórðungi og stigamunurinn breyttist lítið. Þegar flautað var til…Lesa meira

true

Fór járnkarlinn á tæpum ellefu klukkustundum

Skagamaðurinn Almar Viðarsson er einn af 18 Íslendingum sem tóku þátt í járnkarlskeppninni í Barcelona á Spáni um síðustu helgi. Keppnin er ein fjölmennasta járnkarlskeppni heimsins, en þátttakendur voru rúmlega þrjú þúsund talsins. Járnkarlinn í Barcelona samanstóð af 3,86 km sundi í sjó. Að því loknu tóku við 180,25 km langar hjólreiðar og að endingu…Lesa meira

true

Fyrsti sigurinn í meira en ár

ÍA bar sigurorð af liði Stál-úlfs á útivelli, 91-108, þegar liðin mættust í 2. deild karla í körfuknattleik á sunnudagskvöld. Sigurinn var fyrsti sigur Skagamanna í Íslandsmótinu í körfuknattleik í meira en ár, en liðið tapaði öllum leikjum sínum í 1. deildinni á síðasta keppnistímabili. Eftir tvo leiki hafa Skagamenn því tvö stig í sjötta…Lesa meira