Íþróttir

true

Skallagrímur varð að lúta í gras gegn Íslandsmeisturunum

Skallagrímur varð að játa sig sigraðan gegn Íslandsmeisturum KR í fyrstu umferð Domino‘s deildar karla í gær. Borgnesingar vru sterkir af fyrri hálfleik og höfðu yfirhöndina á löngum köflum. En heimamenn í KR náðu að snúa dæminu í þeim síðari og sigruðu að lokum með 109 stigum gegn 93. Skallagrímsmenn voru ákveðnir í upphafi leiks.…Lesa meira

true

Æfingabúðir í glímu um síðustu helgi

Um helgina voru haldnar æfingabúðir í glímu að Laugum í Sælingsdal fyrir 7.-10. bekk og landsliðið í glímu. Rúmlega 30 iðkendur tóku þátt í æfingunum, frá UÍA, Umf. Njarðvík, GFD, UMSE, HSK og HSÞ. Helginni var varið í fræðsluerindi og fyrirlestra í bland við æfingar þar sem farið var yfir hin ýmsu tæknilegu atriði glímunnar.…Lesa meira

true

Botninn datt úr leik Skallagríms í síðari hálfleik

Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar gegn Val, 71-51, þegar liðin mættust í fyrstu umferð Domino‘s deildar kvenna í gær. Leikurinn á Hlíðarenda fór hægt af stað og liðin höfðu skorað sjö stig hvort þegar komið var fram yfir miðjan fyrsta leikhluta. Eftir það náðu Skallagrímskonur góðri rispu og leiddu með átta stigum fyrir annan fjórðung,…Lesa meira

true

Snæfellskonur sigruðu í tvíframlengdum leik

Snæfell vann góðan útisigur á Breiðabliki, 80-93, í tvíframlengdum leik í fyrstu umferð Domino‘s deildar kvenna í gær. Snæfellskonur náðu sér alls ekki á strik í upphafi leiks og skoruðu aðeins sex stig í fyrsta leikhluta. Á meðan skoraði Breiðablik 14 stig og áttu eftir að bæta þremur við forskotið í upphafi annars fjórðungs. Þá…Lesa meira

true

Vel heppnað Akranesmeistaramót í sundi

Akranesmeistaramótið í sundi fór fram síðastliðinn fimmtudag í sundlauginni við Jaðarsbakka þar í bæ. Alls tóku 33 sundmenn ellefu ára og eldri þátt í mótinu og var það mjög vel heppnað, að því er fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu Sundfélags Akraness. Akranesmeistarar 2018 í flokki 11-12 ára eru þau Guðbjarni Sigþórsson og Freyja Hrönn…Lesa meira

true

Stórt tap í fyrsta leik Skagamanna

ÍA mátti sætta sig við stórt tap gegn Álftanesi, 72-136, þegar liðin mættust í fyrsta leik 2. deildar karla í körfuknattleik á föstudag. Gestirnir frá Álftanesi höfðu undirtökin í upphafi leiks og leiddu með 30 stigum gegn 15 eftir eftir fyrsta leikhluta. En Skagamenn svöruðu fyrir sig í öðrum leikhluta, léku mun betur en í…Lesa meira

true

Tímamótasamkomulag sem tryggir jafnræði

„Aðalstjórn körfuknattleiksdeildar Skallagríms ásamt meistaraflokksráðum karla og kvenna og yngri flokka ráði hafa undirritað samkomulag þess efnis að jöfn skipting verði á öllu styrktar- og samstarfssamningum sem deildin aflar hverju sinni.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. „Með þessu er tryggt jafnræði milli karla og kvennaliða Skallagríms sem og yngri flokka þegar kemur að…Lesa meira

true

Karfan er handan við hornið

Bið körfuknattleiksaðdáenda eftir Íslandsmótinu í körfuknattleik er senn á enda. Keppnistímabilið hefst á næstu dögum, fyrst í neðri deildunum en síðan í Domino‘s deildum karla og kvenna í næstu viku. Vestlendingar eiga sex lið í Íslandsmótinu að þessu sinni eins og undanfarin ár; Skallagrímur sendir lið til keppni í Domino‘s deildum karla og kvenna, Snæfell…Lesa meira

true

Unnur Ýr og Arnar Már valin best á lokahófi ÍA

Lokahóf Knattspyrnufélags ÍA var haldið á Akranesi síðastiðinn laugardag. Gerðu liðsmenn knattspyrnufélagsins sér glaðan dag að loknu góðu sumri, auk þess sem veittar voru viðurkenningar þeim leikmönnum sem þóttu skara fram úr á liðnu sumri. Arnar Már Guðjónsson og Unnur Ýr Haraldsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokkanna. Þau voru jafnframt valin best að mati ÍA…Lesa meira

true

Helena og Aníta áfram með ÍA

Samningur Helenu Ólafsdóttur og Anítu Lísu Svansdóttur við Knattspyrnufélag ÍA um þjálfun meistaraflokks kvenna hefur verið endurnýjaður. Helena og Aníta hafa annast þjálfun liðsins undanfarin tvö ár, Helena sem aðalþjálfari og Aníta sem aðstoðarþjálfari. Munu þær því stýra liðinu í 1. deild kvenna í knattspyrnu næsta sumar. „Árangur liðsins í sumar var mjög góður en…Lesa meira