Íþróttir

true

Svavar Örn er Norðurlandameistari í klassískum kraftlyftingum

Svavar Örn Sigurðsson úr Kraftlyftingafélagi Akraness varð um helgina Norðurlandameistari unglinga í klassískum kraftlyftingum í -74 kg flokki, en Norðurlandamótið var haldið á Akureyri. Svavar gerði sér lítið fyrir og lyfti 210 kg í hnébeygju, 140 kg í bekkpressu og 222,5 kg í réttstöðulyftu. Samanlagt lyfti Svavar því 572,5 kg og skilaði það honum Norðurlandameistaratitlinum.…Lesa meira

true

Skagamenn enduðu tímabilið á toppnum

Meistaraflokkur karla í knattspyrnu hjá ÍA endaði tímabilið á jafntefli gegn Þrótti í gær í síðustu umferð Inkassodeildarinnar. Þrátt fyrir jafntefli á Skaganum náðu heimamenn að verða á toppi deildarinnar og fögnuðu því Deildarmeistaratitli í lok leiks. Skagamenn gátu ekki gengið að titlinum vísum áður en liðin mættust því þeir þurftu að ná annað hvort…Lesa meira

true

Víkingur endaði tímabilið með sigri

Víkingur Ólafsvík sigraði Fram á Laugardalsvelli í síðustu umferð Inkassodeildar í gær og kláraði þannig tímabilið í fjórða sæti deildarinnar með 42 stig. Liðin byrjuðu leikinn þétt til baka og náðu sóknir hvorugs liðs að skapa umtalsverða hættu. Leikurinn var með svipuðum brag þar til um miðbik hálfleiksins en á 25. mínútu sofnuðu Ólsarar á…Lesa meira

true

ÍA Íslandsmeistari í 2. flokki karla

Strákarnir í öðrum flokki í knattspyrnu hjá ÍA urðu í gær Íslandsmeistarar eftir frækinn 7:0 sigur gegn Fylki í Árbænum. Liðið er skipað piltum sem fæddir eru árabilið 2000-2002. Með ÍA spiluðu einnig í sumar drengir úr Kára og Skallagrími í Borgarnesi. Þetta er fyrsti Íslandsmeistarasigur liðsins í 13 ár. Þjálfari er Sigurður Jónsson og…Lesa meira

true

Yngstur Íslendinga í Meistaradeild Evrópu

Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson varð í vikunni yngsti Íslendingurinn til að leika í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Arnór kom inn á fyrir CSKA Moskva gegn Viktoria Plzen í gærkvöldi. Arnór er aðeins 19 ára gamall, fæddur árið 1999 og er því tveimur árum yngri en Kolbeinn Sigþórsson var þegar hann lék sinn fyrsta leik í meistaradeildinni…Lesa meira

true

Viðurkenningar veittar á lokahófi yngri flokka ÍA

Lokahóf yngri flokka knattspyrnufélags ÍA var haldið í Akraneshöllinni um helgina. Hófið gekk afar vel fyrir sig og var góð stemning meðal iðkenda og foreldara þeirra, að því er fram kemur á heimasíðu KFÍA. Að venju voru engin einstaklingsverðlaun veitt í 6. og 7. flokki karla og kvenna heldur fengu allir iðkendur viðurkenningarskjal fyrir góða…Lesa meira

true

Nýr leikstjórnandi í raðir Skallagríms

Meistaraflokkur karla í körfuknattleik í Skallagrími hefur samið við króatíska leikstjórnandann Ivan Mikulic um að leika með liðinu í vetur. Ivan er 27 ára gamall. Hann spilaði síðasta tímabil með rúmenska úrvalsdeildarliðinu SCM U Craiova. Þar skoraði hann 11,4 stig, tók 4 fráköst og gaf 4 stoðsendingar að meðaltali í leik. Í tilkynningu frá Skallagrími…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn lutu í gras gegn Reyni Sandgerði

Eftir að hafa nýlega tryggt sér sæti í þriðju deild á næsta tímabili þá þurfti Skallagrímur að sætta sig við stórt tap gegn Reyni Sandgerði þegar liðin mættust í úrslita viðureign fjórðu deildar á laugardaginn. Leikurinn fór fram á hlutlausum velli í Keflavík. Fyrsta mark kom frá Sandgerðismönnum strax á sjöttu mínútu þegar Magnús Þórir…Lesa meira

true

Skagastelpur sigruðu í síðasta leik tímabilsins

Meistaraflokkur ÍA kvenna í knattspyrnu gerði góða ferð til Akureyrar þegar þær sigruðu lið Hamranna síðasta föstudag í 18. umferð Inkassodeildar. Leikurinn var jafnframt síðasti leikur Íslandsmótins. Fyrir viðureignina var ljóst að ÍA náði ekki að tryggja sér sæti í efstu deild að ári og þess vegna leikurinn einungis til að enda tímabilið vel. Aftur…Lesa meira

true

Aldarfjórðungur síðan ÍA lagði Feyenoord

Á morgun, laugardaginn 15. september, verða liðin 25 ár síðan ÍA sigraði hollenska stórliðið Feyenoord í 1. umferð Evrópukeppni meistaraliða. Liðin mættust á Laugardalsvelli þennan dag árið 1993 og lauk leiknum með 1-0 sigri ÍA. Sigur ÍA á Feyenoord hefur lengi verið talinn einn sá fræknasti sem íslenskt félagslið hefur nokkru sinni unnið. Fáir bjuggust…Lesa meira