Íþróttir

true

„Frábært þegar Pepsi deildin kemur í Ólafsvík“

„Mér líst bara vel á sumarið og við hlökkum til að mótið byrji. Vonandi verður bara gott veður í sumar, segir Ejub Purisevic, þjálfari karlaliðs Víkings Ó, léttur í bragði í samtali við Skessuhorn. Víkingur hefur leik í Pepsi deild karla í knattspyrnu sunnudaginn 30. apríl næstkomandi þegar liðið heimsækir Val á Hlíðarenda. Undirbúningur er…Lesa meira

true

Spænskur miðjumaður til liðs við Víking

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvík hefur samið við spænska knattspyrnumanninn Alonso Sanchez Gonzalez um að leika með liðinu í sumar. Alonso er miðjumaður, fæddur árið 1990, en hann lék seinast með Raufoss í Noregi. Alonso æfði með Víkingi Ó. í æfingaferð á Spáni fyrr í mánuðinum og tók þar þátt í æfingaleikjum gegn Stjörnunni og Keflavík.Lesa meira

true

Snæfell missti af titlinum

Keflavík varð í gærkvöld Íslandsmeistari í körfuknattleik kvenna eftir sigur á Snæfelli í fjórða leik liðanna í úrslitaviðureigninni. Keflavík hafði yfirhöndina frá fyrstu mínútu og gaf aldrei færi á sér. Þær sigruðu að lokum 70-50 og viðureignina þar með 3-1. Það voru því Keflvíkingar sem lyftu Íslandsmeistarabikarnum að leik loknum.   Gangur leiksins Keflavík átti…Lesa meira

true

Inga Elín stefnir á að komast í sitt besta keppnisform

Inga Elín Cryer, sundkonan knáa frá Akranesi, hefur glímt við meiðsli og veikindi síðasta árið eða svo og lítið synt af þeim sökum. Engu að síður tók hún þátt í Íslandsmeistarmótinu í 50m laug sem fram fór í byrjun apríl. Þar hafnaði hún í öðru sæti í 50 og 100 metra flugsundi, háði meðal annars…Lesa meira

true

Kanínurnar hans Arnars hrepptu bronsið

Borgfirðingurinn Arnar Guðjónsson, þjálfari Svendborg Rabbits, stýrði sínu liði til bronsverðlauna í dönsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Kanínur Arnars höfðu öruggan sigur  á SISU í bronsleiknum sem fram fór á mánudagskvöld, 87-72, en sterk hefð er fyrir því í Danmörku að liðin sem falla úr leik í undanúrslitum úrslitakeppninnar leiki einn leik um bronsið. Eru þetta…Lesa meira

true

Fríar ferðir á leik Snæfells og Keflavíkur

Fjórði leikur úrslitaviðureignar Snæfells og Keflavíkur í körfuknattleik kvenna fer fram í Keflavík í kvöld. Snæfell er 2-1 undir í einvíginu og þarf á sigri að halda í kvöld til að knýja fram oddaleik. Körfuknattleiksdeild Snæfells, í samstarfi við fyrirtækin BB & synir og Snæfellsnes Excursions, býður Snæfellingum upp á fríar rútuferðir frá Stykkishólmi á…Lesa meira

true

Valdís Þóra í 53. sæti á Spáni

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hafnaði í 53. sæti á Estrella Damm mótinu á Spáni sem lauk á sunnudag. Mótið er hluti af LET Evrópumótaröðinni, sterkustu mótaröð Evrópu. Valdís byrjaði frekar illa á fyrsta hring síðastliðinn miðvikudag og var á fjórum höggum yfir pari eftir átta holur. Eftir það sneri hún heldur betur…Lesa meira

true

Einar Örn setti Íslandsmet

Íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum í opnum og aldurstengdum flokkum fór fram í Kópavogi síðasta laugardag. Mótið var fámennt að þessu sinni, að því er fram kemur á heimasíðu Kraftlyftingasambands Íslands, en engu að síður voru þónokkur met slegin. Einar Örn Guðnason keppti fyrir hönd Kraftlyftingafélags Akraness og stóð uppi sem sigurvegari í 105 kg flokki. Hann…Lesa meira

true

Snæfell sigraði eftir baráttuleik í Hólminum

Það var að duga eða drepast fyrir Snæfell í úrslitaviðureigninni gegn Keflavík þegar liðin mættust í Stykkishólmi í gær. Gestirnir höfðu sigrað tvo leiki en Snæfell engan og því aðeins um eitt að ræða; Snæfell varð að sigra, ellegar myndu Keflvíkingar hampa Íslandsmeistaratitlinum. Eftir mikinn og jafnan baráttuleik þar sem varnarleikur var aðalsmerki liðanna var…Lesa meira

true

Frábær árangur ÍA á Bikarmóti Íslands í klifri

Brimrún Eir Óðinsdóttir tryggði sér annað sætið í flokki unglingsstúlkna á glæsilegu Bikarmeistaramóti sem fram fór í Klifurhúsinu um helgina. Stúlkurnar klifruðu fjórar leiðir og Brimrún Eir toppaði þrjár leiðir í fjórum tilraunum. Gabríela Einarsdóttir úr Björkinni toppaði þrjár leiðir í þremur tilraunum og fór því með sigur af hólmi. Brimrún Eir hafði áður tryggt…Lesa meira