Íþróttir

true

Tveir vestlenskir markverðir í U17

Tilkynnt hefur verið um landsliðshóp U17 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu sem tekur þátt í undirbúningsmóti UEFA í Edinborg í Skotlandi vikuna 19.-25. febrúar næstkomandi. Í hópinn hafa verið valdar tvær ungar og efnilegar knattspyrnustúlkur af Vesturlandi, þær Birta Guðlaugsdóttir, markvörður Víkings Ó. og Katrín María Óskarsdóttir, markvörður ÍA. Hópurinn kemur saman föstudaginn 17. febrúar…Lesa meira

true

Fjórir Skagamenn í U21

Eyjólfur Sverrisson þjálfari U21 árs landsliðs karla, hefur valið leikmenn til úrtaksæfinga sem fram fara um helgina. Æfingarnar fara fram í Kórnum og eru einungis leikmenn frá íslenskum félagsliðum í úrtakshópnum sem telur 33 leikmenn frá 16 félögum. Í æfingahópnum að þessu sinni eru fjórir leikmenn meistaraflokks ÍA. Þetta eru þeir Albert Hafsteinsson, Aron Ingi…Lesa meira

true

Körfuboltadrengir gerðu það gott um helgina

Um síðustu helgi var leikið í Íslandsmóti 7. flokks drengja í Borgarnesi, Stykkishólmi og á Akranesi. A riðill Íslandsmótsins var leikinn í Borgarnesi og þar keppti lið Skallagríms við Stjörnuna, Breiðablik, Fjölni og Ármann. Var þetta í fyrsta sinn sem lið Skallagríms leikur í A riðli og náðu piltarnir að halda sæti sínu meðal fimm…Lesa meira

true

Valdís Þóra fór vel af stað í Ástralíu

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, lauk á öðrum tímanum í nótt að íslenskum tíma, leik á fyrsta hring á Oaties Vic Open mótinu sem spilað er í Ástralíu. Þetta er fyrsta mót Valdísar á LET Evrópumótaröðinni eftir að hafa unnið sér inn þátttökurétt á mótaröðinni í desember. Valdís Þóra spilaði stöðugt…Lesa meira

true

Skallagrímur sigraði Snæfell í hádramatískum leik

Skallagrímur tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum Maltbikars kvenna í körfuknattleik eftir sigur á ríkjandi bikarmeisturum Snæfells í mögnuðum leik í Laugardalshöll. Leikurinn var hnífjafn og æsispennandi, en alls 14 sinnum í leiknum voru liðin jöfn að stigum. Það var því við hæfi að leikurinn fengi hádramatískan endir, en úrslitin réðust ekki fyrr en…Lesa meira

true

Ungur Skagamaður æfir með Ajax

Ungur knattspyrnumaður frá Akranesi, Ísak Bergmann Jóhannesson, hélt á mánudag til Hollands þar sem hann mun æfa með stórliði Ajax í Amsterdam til loka þessarar viku. Ísak er fæddur árið 2003 og leikur með 3. flokki ÍA. Með honum í för verður annar þjálfara hans, Heimir Eir Lárusson. Ajax er sögufrægt lið í evrópskri knattspyrnu…Lesa meira

true

Valdís Þóra hefur leik í kvöld

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hefur leik á sínu fyrsta móti á Evrópumótaröðinni í golfi þegar Oates Viv Open mótið hefst nærri Melbourne í Ástralíu. Er þetta í fyrsta sinn sem Valdís Þóra leikur á mótaröðinni en hún er þriðja íslenska konan sem tryggir sér keppnisrétt á þessari sterkustu mótaröð Evrópu. Í samtali…Lesa meira

true

Víkingur semur við Liberato

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvík og Cristian Martinez Liberato markvörður hafa framlengt samning hans út keppnistímabilið 2017. Á meðfylgjandi mynd er Cristian og Hilmari Hauksson stjórnarmaður að handsala samninginn. „Það er stjórn Víkings mikið ánægjuefni að skrifa undir framlengingu á samningi við Cristian en hann var valinn besti leikmaður félagsins árið 2016. Cristian hefur leikið með Víking…Lesa meira

true

Ungt sundfólk af Akranesi keppti í Keflavík

Á laugardag fór fram Speedomót IRB í sundi í Keflavík. Mótið er fyrir 12 ára og yngri. Sundfélag Akraness sendi níu keppendur á þetta skemmtilega mót og stóðu krakkarnir sig allir með prýði. Alls voru 27 bætingar hjá þessu framtíðarsundfólki á Akranesi en bestum árangri náði Ingibjörg Svava Magnúsdóttir sem synti til verðlauna í 100m…Lesa meira

true

Leiknir/Skáney efst eftir fyrstu keppni Vesturlandsdeildarinnar

Fyrsta mótið í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum fór fram í Faxaborg í Borgarnesi á föstudagskvöldið. Það var liðið Leiknir/Skáney sem hlaut Fjórgangs – liðaplattann fyrir bestan samanlagðan árangur, en fyrir liðið kepptu þau Randi Holaker liðsstjóri, Haukur Bjarnason og Konráð Valur Sveinsson. Randi og Haukur riðu til úrslita og höfnuðu þar í öðru og þriðja sæti…Lesa meira