Íþróttir

true

Aðventumót eldri borgara í pútti

Eldri borgar í Borgarbyggð hafa æft pútt af kappi innanhúss síðan í byrjun október í Eyjunni í Brákarey. Fimmtán þeirra tóku þátt í Aðventumóti í pútti sem fór fram dagana 22. og 29. nóvember og 6. desember. Samanlagður árangur gilti til verðlauna. Hlutskarpastur án forgjafar varð Þorbergur Egilsson með 182 högg. Í öðru sæti varð…Lesa meira

true

Snæfell lá gegn Íslandsmeisturunum

Botnlið Snæfells mætti KR í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Vesturbæ Reykjavíkur og skemmst er frá því að segja að leikmenn Snæfells áttu aldrei möguleika gegn Íslandsmeisturunum. Þeir rétt náðu að halda í við KR-inga í upphafi leiksins en eftir það réðu heimamenn gangi leiksins og unnu að lokum sannfærandi…Lesa meira

true

Valdís Þóra leikur á úrtökumóti í Marokkó

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, tekur nú þátt í úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina, en mótið fer fram í Marokkó. Nú er fyrsta hring af fjórum lokið á mótinu og spilaði Valdís Þóra á 76 höggum eða 4 höggum yfir pari og er jöfn í 17. sæti þegar nokkrir kylfingar eiga eftir að…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin fá heimaleiki í bikarnum

Nú í hádeginu var dregið í átta liða úrslit Maltbikarsins, bikarkeppni KKÍ. Í pottinum í bikarkeppni kvenna voru tvö Vesturlandslið; ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Snæfells sem báru sigurorð af Val í 16 liða úrslitum og Skallagrímur, sem sat hjá í fyrstu umferð bikarkeppninnar þennan veturinn. Bæði liðin fengu heimaleik þegar dregið var upp úr pottinum.…Lesa meira

true

Skallagrímur féll úr bikarnum eftir spennandi lokamínútur

Skallagrímur mætti 1. deildar liði Vals í 16 liða úrslitum Maltbikars karla í gærkvöldi. Leikið var á Hlíðarenda og voru það heimamenn sem héldu áfram bikarævintýri sínu. Þeir sigruðu nokkuð óvænt, 108-103 og slógu þar með annað úrvalsdeildarliðið út úr bikarnum, en í fyrstu umferð lögðu þeir Snæfell. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi…Lesa meira

true

Nýr kennsluvefur í skák kominn í loftið

Friðrik Ólafsson stórmeistari í skák opnaði í dag formlega nýja vefsíðu, http://skakkennsla.is  Á henni er að finna fjölbreytt úrval kennslumyndbanda í skák.  Markmiðið með gerð vefsíðunnar er að auðvelda aðgengi að náms- og kynningarefni á íslensku um skák sem einkum nýtist börnum sem eru að læra að tefla, skákkennurum í skólum og foreldrum sem vilja…Lesa meira

true

Snæfell vann góðan sigur á Haukum

Snæfell tók á móti Haukum í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik síðastliðinn laugardag. Snæfellskonur höfðu heldur yfirhöndina allan leikinn en gestirnir úr Hafnarfirði létu þær engu að síður hafa fyrir hlutunum. Í síðari hálfleik náðu þær betri tökum á leiknum eftir því sem leið á og að lokum fór svo að Snæfell sigraði með tólf…Lesa meira

true

Ólafía Þórunn skrifar nýjan kafla í golfsögu landans

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir kylfingur úr GR skrifaði nýjan kafla í golfsögu Íslands í gær þegar hún varð önnur á lokaúrtökumótinu fyrir LGPA mótaröðina, keppni fremstu atvinnukylfinga heims. Ólafía lék lokahringinn á einum yfir pari, eða 73 höggum, en Jaye Marie Green frá Bandaríkjunum tryggði sér sigur með því að fá fugl á lokaholunni.  Alls komast…Lesa meira

true

Skallagrímskonur urðu að játa sig sigraðar á afmælisdaginn

Skallagrímur tók á móti toppliði Keflavíkur í Domino‘s deild kvenna á eitt hundrað ára afmæli félagsins sem fagnað var með pompi og prakt síðastliðinn laugardag. Liðið náði þó ekki að sækja sigur gegn toppliðinu á afmælisdaginn. Eftir góðan fyrri hálfleik Skallagríms tóku gestirnir af Suðurnesjunum öll völd á vellinum í síðari hálfleik og sigruðu að…Lesa meira

true

Íslandsmeistaramótið í línuklifri fór fram um helgina

Íslandsmeistarmótið í línuklifri fór fram í Björkinni í Hafnarfirði um helgina en keppt var í þremur aldursflokkum. Klifurfélag ÍA sendi fjóra klifrara til þátttöku og er þetta í fyrsta sinn sem ÍA tekur þátt í slíku móti. Mótið fór þannig fram að klifrarar fara allir tvær leiðir og fjórir efstu í hverjum flokki fara áfram…Lesa meira