Íþróttir

true

Snæfellskonur unnu – ÍA og Grundfirðingar töpuðu

Keppni í Maltbikarnum, bikarkeppni KKÍ, hófst um liðna helgi. Vestlendingar eiga sína fulltrúa í bikarkeppninni, en sex lið úr landshlutanum taka þátt að þessu sinni. Ríkjandi bikarmeistarar Snæfells hófu titilvörn sína þegar þeir mættu Val í æsispennandi leik í Stykkishólmi í gær. Jafnt var á öllum tölum meira og minna frá fyrstu mínútu og úrslitin…Lesa meira

true

Átta Vestlendingar í U16 og U19 landliðunum

Fimm Vestlendingar hafa verið valdir til úrtaksæfinga með yngri landsliðum Íslands sem haldnar verða dagana 11. – 13. nóvember næstkomandi. Um er að ræða úrtaksæfingar fyrir U19 ára landslið karla annars vegar og U16 ára landslið karla hins vegar. Til æfinga með U19 ára hópnum hafa verið valdir Borgfirðingurinn Helgi Guðjónsson, leikmaður Fram og Skagamennirnir…Lesa meira

true

Skagamenn fundu ekki taktinn í tapleik gegn Val

Skagamenn fengu Val í heimsókn í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Valur hafði fyrir leikinn þrjá sigra en ÍA einn eftir fyrstu fimm leiki vetrarins. Skagamenn voru án tveggja lykilmanna, Fannars Freys Helgasonar og Áskels Jónssonar, sem er rifbeinsbrotinn. Hafði það sitt að segja í leiknum í gær. Gestirnir voru mun einbeittari og…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn skotnir í kaf á lokamínútunum

Skallagrímsmenn mættu Njarðvíkingum í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var suður með sjó. Njarðvíkingar höfðu yfirhöndina heilt yfir og þrátt fyrir að Skallagrímur hafi oft gert atlögu að forskoti heimamanna máttu Borgnesingar á endanum sætta sig við tap, 94-80, eftir lokamínútur þar sem þriggja stiga skyttur Njarðvíkinga fóru mikinn. Njarðvíkingar gáfu tóninn…Lesa meira

true

Snæfell steinlá gegn Stjörnunni

Botnlið Snæfells tók á móti Stjörnunni í Stykkishólmi í gær. Nokkur eftirvænting var fyrir leiknum í Hólminum því með liði gestanna lék að þessu sinni gamla Snæfellshetjan og landsliðsmaðurinn Hlynur Bæringsson, sem sneri nýverið heim eftir atvinnumennsku í Svíþjóð. Hann lék með Snæfellsliðinu sem varð bikarmeistari árið 2008 og hampaði bæði Íslands- og bikarmeistaratitlinum árið…Lesa meira

true

Snæfell sigraði Keflavík í kaflaskiptum baráttuleik

Snæfell tók á móti  Keflavík í Domino’s deild kvenna í körfuknattleik í gær.  Leikurinn var mikill baráttuleikur en að lokum fór svo að Snæfell hafði fjögurra stiga sigur, 72-68. Nokkuð jafnræði var með liðunum framan af fyrsta leikhluta en þegar hann var rétt rúmlega hálfnaður tóku Snæfellskonur góðan sprett og skoruðu tíu stig í röð.…Lesa meira

true

Sigrún með þrennu í sigri Skallagríms

Skallagrímur mætti á Hlíðarenda í gær og vann góðan sigur á Val í Domino’s deild kvenna í körfuknattleik, 68-87, í leik  þar sem Sigrún Sjöfn Ámundadóttir fór á kostum og setti upp laglega þrennu. Skallagrímskonur voru sterkari allan leikinn, allt frá fyrstu mínútu. Þær skoruðu fyrstu stig leiksins og höfðu yfirhöndina allt til leiksloka. Góður…Lesa meira

true

Leik Skallagríms flýtt um einn dag

Viðureign Skallagríms og Njarðvíkur í Domino‘s deild karla í körfuknattleik sem fara átti fram föstudaginn hefur verið flýtt um einn sólarhring. Fer hún því fram á fimmtudaginn, 3. nóvember næstkomandi. Leikurinn verður leikinn í Njarðvík og hefst kl. 19:15.Lesa meira

true

Skagamenn komnir á blað í 1. deildinni

Á föstudag mættust ÍA og Ármann í botnslag 1. deildar karla í körfuknattleik. Fyrir leikinn var hvorugt lið komið á blað í deildinni. Skagamenn höfðu tapað fyrstu fjórum leikjunum í vetur en Ármenningar fyrstu fimm leikjum sínum. Fór að lokum svo að Skagamenn sigruðu 65-88 og nældu sér í fyrstu stig tímabilsins. Jafnt var á…Lesa meira

true

Sefton með stórleik í tapi Snæfells

Snæfell mætti Þór Þorlákshöfn í Domino‘s deild karla síðastliðinn föstudag. Leikið var í Þorlákshöfn og voru það heimamenn sem fóru með sigur af hólmi, 110-85 og Snæfell því enn án sigurs í vetur. Strax í upphafi leiks var ljóst í hvað stefndi. Leikmenn Þórs byrjuðu af miklum krafti, náðu snemma forystunni og létu hana aldrei…Lesa meira