Íþróttir

true

Þunnskipaðir Skagamenn töpuðu mjög stórt fyrir austan

Leikmenn ÍA lögðu land undir fót og mættu Hetti austur á Egilsstöðum í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Skagamenn voru fámennir í gær, aðeins sjö leikmenn á skýrslu og setti það mark sitt á leikinn því Derek Shouse og Áskell Jónsson spiluðu nánast hverja einustu mínútu. Þunnskipaðir og þreyttir Skagamenn áttu aldrei séns…Lesa meira

true

Slæmur síðari hálfleikur varð Snæfelli að falli

Snæfell heimsótti Keflavík í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Hólmarar létu finna fyrir sér í fyrri hálfleik en heimaenn fundu fjölina sína í þeim síðari og unnu að lokum 29 stiga sigur, 111-82. Keflvíkingar byrjuðu betur í leiknum og höfðu yfirhöndina fyrstu mínúturnar. Eftir það hrukku leikmenn Snæfells í gang. Þeir jöfnuðu metin,…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Skallagríms í hús

Skallagrímsmenn gerðu góða ferð norður yfir heiðar í gær þegar þeir sigruðu Þór Ak. í nýliðaslag Domino‘s deildar karla í körfuknattleik. Skallagrímur var sterkara liðið á vellinum, leiddi bróðurpart leiksins og sigraði að lokum með 90 stigum gegn 81. Borgnesingar mætti ákveðnir til leiks og náðu ellefu stiga forskoti eftir aðeins sjö mínútna leik. Þá…Lesa meira

true

Krakkar í Borgarnesi tóku þátt í Norræna skólahlaupinu

Nemendur Grunnskólans í Borgarnesi hlupu Norræna skólahlaupið 17. október síðastliðinn. Norræna skólahlaupið fór fyrst fram á Íslandi árið 1984, en allir grunnskólar á Norðurlöndunum geta tekið þátt í hlaupinu á hverju hausti. Með Norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur til þess að æfa hlaup og auka með því útiveru og hreyfingu og að…Lesa meira

true

Skallagrímskonur urðu að játa sig sigraðar í framlengingu

Skallagrímur mætti Keflavík suður með sjó í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Keflavík hafði yfirhöndina lungann úr leiknum en Skallagrímskonur komu til baka og náði að knúa fram framlengingu. Þær urðu þó á endanum að játa sig sigraðar því Keflavík hafði sigur, 81-70 Skallagrímskonur komu ákveðnar til leiks og höfðu yfirhöndina framan af…Lesa meira

true

Snæfell vann öruggan sigur á Haukum

Heil umferð var leikin í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Snæfell mætti Hauka að Ásvöllum, en liðin mættust síðast í vor í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn þar sem Snæfell hafði betur, eins og kunnugt er. Miklar breytingar hafa orðið á liði Hauka frá því í vor og liðið ekki talið jafn sterkt og þá.…Lesa meira

true

Samið við Jón Þór um áframhaldandi þjálfun hjá KFÍA

Knattspyrnufélags ÍA mun áfram njóta krafta Jón Þórs Haukssonar yfirþjálfara yngri flokka og afreksstarfs og sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla. Jón Þór hefur skrifað undir áframhaldandi samning við Knattspyrnufélag ÍA (KFÍA). Hann hefur starfað hjá félaginu sem þjálfari undanfarin átta ár, tók við starfi yfirþjálfara haustið 2013 en hann hefur síðan þá einnig verið aðstoðarþjálfari mfl.…Lesa meira

true

Spila í Logalandi öll mánudagskvöld

Borgfirskir briddsspilarar eru búnir að dusta rykið af spilastokkunum og farnir að spila vikulega í Logalandi, fyrsta spilakvöldið var 27. september. Þá voru það Sveinbjörn Eyjólfsson og Anna Heiða Baldursdóttir sem skoruðu langmest, eða 72%. Næst var spilað 3. október og þá voru það Jón Einarsson og Ingimundur Jónsson sem skoruðu mest, eða 70%. Mánudaginn…Lesa meira

true

Íslandsmeistararnir of stór biti fyrir Skallagrím

Í gær tók Skallagrímur á móti Íslands- og bikarmeisturum KR síðasta fimmtudag í annarri umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik. Íslandsmeistararnir höfðu yfirhöndina meira og minna allan leikinn en nýliðar Skallagríms gerðu vel í að standa í þeim á köflum. Þeir urðu þó að játa sig sigraða að leikslokum, 76-90. Leikurinn fór fremur hægt af stað.…Lesa meira

true

Gestirnir stungu af rétt fyrir hálfleik

Önnur umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik hófst í gær. Snæfell tók á móti Njarðvík og máttu Hólmarar játa sig sigraða með 83 stig gegn 104 stigum gestanna. Leikurinn var nokkuð jafn framan af fyrsta leikhluta en eftir hann miðjan tóku Njarðvíkingar að síga fram úr og náðu sjö stiga forskoti. En Snæfellsmenn svöruðu strax…Lesa meira