Íþróttir

true

Sigrún með þrennu í sigri Skallagríms

Skallagrímur mætti á Hlíðarenda í gær og vann góðan sigur á Val í Domino’s deild kvenna í körfuknattleik, 68-87, í leik  þar sem Sigrún Sjöfn Ámundadóttir fór á kostum og setti upp laglega þrennu. Skallagrímskonur voru sterkari allan leikinn, allt frá fyrstu mínútu. Þær skoruðu fyrstu stig leiksins og höfðu yfirhöndina allt til leiksloka. Góður…Lesa meira

true

Leik Skallagríms flýtt um einn dag

Viðureign Skallagríms og Njarðvíkur í Domino‘s deild karla í körfuknattleik sem fara átti fram föstudaginn hefur verið flýtt um einn sólarhring. Fer hún því fram á fimmtudaginn, 3. nóvember næstkomandi. Leikurinn verður leikinn í Njarðvík og hefst kl. 19:15.Lesa meira

true

Skagamenn komnir á blað í 1. deildinni

Á föstudag mættust ÍA og Ármann í botnslag 1. deildar karla í körfuknattleik. Fyrir leikinn var hvorugt lið komið á blað í deildinni. Skagamenn höfðu tapað fyrstu fjórum leikjunum í vetur en Ármenningar fyrstu fimm leikjum sínum. Fór að lokum svo að Skagamenn sigruðu 65-88 og nældu sér í fyrstu stig tímabilsins. Jafnt var á…Lesa meira

true

Sefton með stórleik í tapi Snæfells

Snæfell mætti Þór Þorlákshöfn í Domino‘s deild karla síðastliðinn föstudag. Leikið var í Þorlákshöfn og voru það heimamenn sem fóru með sigur af hólmi, 110-85 og Snæfell því enn án sigurs í vetur. Strax í upphafi leiks var ljóst í hvað stefndi. Leikmenn Þórs byrjuðu af miklum krafti, náðu snemma forystunni og létu hana aldrei…Lesa meira

true

Héldu Hrekkjavökumót ÍA í klifri

Klifurfélag ÍA hélt Hrekkjavökumót fyrir iðkendur sína í dýflissunni á Vesturgötu um liðna helgi. Mótið var tvískipt; annars vegar klifruðu 1.-3. bekkingur saman fyrr um daginn og 4.-6. bekkingar saman síðar um daginn. Alls tóku 25 klifrarar þátt og áhorfendastúkan var þéttsetin. Framundan hjá ÍA er mót fyrir klifrara í Reykjavík 20. nóvember og í…Lesa meira

true

Misstu boltann og þar með sigurinn úr greipum sér

Skallagrímur tók á móti ÍR í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Bæði lið höfðu einn sigur hvort eftir þrjá leiki og gátu með sigri lyft sér upp að miðri stigatöflunni. Skallagrímur byrjaði mjög vel en að lokum voru það ÍR-ingar sem fóru með sigur af hólmi 78-84. Skallagrímsmönnum gekk illa að höndla með…Lesa meira

true

Snæfell varð að lúta í gras eftir framlengingu

Á miðvikudagskvöld fóru Snæfellskonur suður með sjó og öttu kappi við Grindavík í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Snæfell lék án Taylor Brown, sem er farin heim til Bandaríkjanna af persónulegum ástæðum og leikur ekki meir með liðinu. Leikurinn á miðvikudag var jafn og spennandi og þurfti að framlengja til að knýja fram sigurvegara. Að…Lesa meira

true

Skallagrímur pakkaði Njarðvík saman

Heil umferð fór fram í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á miðvikudagskvöld. Í Borgarnesi var nýliðaslagur þar sem Skallagrímur tók á móti Njarðvík, en liðin léku einmitt um deildarmeistaratitil 1. deildar síðastliðið vor. Skemmst er frá því að segja að Skallagrímskonur gersamlega pökkuðu Njarðvíkurliðinu saman og sigruðu með 85 stigum gegn 52. Jafnt var á…Lesa meira

true

Snæfell semur við Aaryn Ellenberg

Körfuknattleiksdeild Snæfells hefur samið við bandaríska leikmanninn Aaryn Ellenberg um að leika með liðinu í Domino‘s deild kvenna. Aaryn er 170 cm á hæð og leikur stöðu leikstjórnanda. Hún kemur til með að fylla skarð Taylor Brown, sem hætti með liðinu af persónulegum ástæðum, eins og greint var frá fyrr í vikunni. Aaryn er gríðarlega snöggur…Lesa meira

true

Taylor Brown hætt hjá Snæfelli

  Körfuknattleiksdeild Snæfells hefur rift samningi sínum við bandaríska leikstjórnandann Taylor Brown og leikur hún því ekki meira með liðinu í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Taylor er þegar farin heim til Bandaríkjanna og er brottför hennar af persónulegum ástæðum. Frá þessu var greint á heimasíðu Snæfells í gær. Taylor skoraði 24,1 stig, tók 4,8…Lesa meira