Íþróttir

true

Æsispennandi blakleikur í Grundarfirði

Ungmennafélag Grundarfjarðar tók á móti Ými í fyrstu deild kvenna í blaki fimmtudaginn 14. nóvember síðastliðinn. Liðin voru í sitthvorum hluta deildarinnar en Ýmir er við toppinn á meðan Grundarfjörður er í neðri hlutanum. Ljóst var frá byrjun að heimamenn ætluðu að selja sig dýrt og byrjuðu af miklum krafti. Grundfirsku stelpurnar komust í 9-2…Lesa meira

true

Mættu ofjörlum sínum

Snæfellskonur mættu ofjörlum sínum þegar þær sóttu Keflavík heim í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Heimakonur náðu undirtökunum í fyrri hálfleik og unnu að lokum öruggan sigur, 89-66. Keflvíkingar voru sterkari framan af fyrsta leikhluta en Snæfellskonur voru þó aldrei langt undan. Seint í leikhlutanum náði Keflavík tíu stiga forskoti sem Snæfell minnkaði…Lesa meira

true

Víkingur Ó byrjar vel í Futsal

Íslandsmótið í innanhússfótbolta, eða Futsal, hófst um síðustu helgi. Víkingur í Ólafsvík tekur þátt í Futsalinu eins og áður og spilar liðið að þessu sinni í D-riðli ásamt Kríunni og Elliða en Björnin dró sig úr keppni. Fór þessi fyrri umferð riðilsins fram í Íþróttahúsi Snæfellsbæjar sunnudaginn 17. nóvember. Strákarnir í Víkingi mættu vel stemmdir…Lesa meira

true

Einstefna í Kópavoginum

Snæfellingar þurftu að lúta í gras gegn Breiðabliki, 116-85, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Kópavogi. Blikar voru mun öflugri í upphafsfjórðungnum og náðu snemma leiks afgerandi forystu. Snæfell kom aðeins til baka seint í leikhlutanum en heimamenn áttu lokaorðið og leiddu með 14 stigum þegar leikhlutinn…Lesa meira

true

Borgnesingar rændir sigrinum

Skallagrímur tapaði naumlega gegn Hetti, 92-89, í æsispennandi leik í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var austur á Egilsstöðum. Heimamenn byrjuðu leikinn með látum og leiddu með tíu stigum eftir fjögurra mínútna leik. Þá tóku Skallagrímsmenn við sér, minnkuðu muninn snarlega og voru aðeins þremur stigum á eftir þegar upphafsfjórðungurinn var úti,…Lesa meira

true

Gestirnir höfðu sigur

Skagamenn máttu sætta sig við tap gegn Val B, þegar liðin mættust í 2. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var á Akranesi. Leikurinn var hraður og mikið skorað, eins og svo oft áður í vetur í leikjum Skagamanna. Þegar lokaflautan gall höfðu gestirnir skorað skorað 116 stig gegn 97 stigum ÍA og höfðu…Lesa meira

true

Tap gegn Álftnesingum

Snæfell beið lægri hlut gegn Álftanesi, 70-77, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikurinn fór fram í Stykkishólmi. Fyrsti leikhluti var kaflaskiptur. Gestirnir skoruðu fyrstu sex stig leiksins áður en Snæfellingar komust í 7-6. Þá tóku Álftnesingar við sér, komust aftur sex stigum yfir en Snæfell minnkaði muninn í eitt…Lesa meira

true

Misstu af lestinni eftir hléið

Skallagrímur tók á móti Hamri í 1. deild karla í körfuknattleik á miðvikudagskvöld. Eftir jafnan fyrri hálfleik náðu gestirnir úr Hveragerði yfirhöndinni í þeim síðari og sigruðu að lokum með 15 stigum, 89-104. Liðin skiptust á að leiða framan af fyrsta leikhluta. Undir lok hans náðu Hamarsmenn smá rispu og leiddu með fjórum stigum að…Lesa meira

true

Amerískur fótbolti á Akranesi á laugardaginn

Leikinn verður amerískur fótbolti í Akraneshöll á laugardag, þegar Einherjar mæta þýska liðinu Pforzheim Wilddogs. Er þetta í annað skipti sem amerískur fótboltaleikur fer fram á Akranesi, en Einherjar sigruðu sænska liðið Tyreso Royal Crowns í Akraneshöllinni í nóvember í fyrra. Amerískur fótbolti nýtur nokkuð vaxandi vinsælda um heim allan og stöðugt fleiri utan Bandaríkjanna…Lesa meira

true

Sundfélag Akraness náði góðum árangri í Hafnarfirði um helgina

Á Íslandsmeistaramóti í 25 m laug, sem fram fór um í Ásvallalaug í Hafnarfirði um síðustu helgi, var einn Íslandsmeistari frá Sundfélagi Akraness auk þess sem fjögur silfur komu á Akranes. Alls voru 188 keppendur frá 15 félögum á mótinu og þar af komu átta frá Akranesi. „Sundkrakkarnir áttu mjög góða helgi og stemningin í…Lesa meira