Íþróttir

true

Strákarnir úr leik í Unglingadeildinni

Sameiginlegt lið ÍA/Kára/Skallagríms í 2. flokki karla er fallið úr leik í Unglingadeild UEFA, eftir 4-1 tap gegn Derby County í Englandi í gær. Fyrri leik liðanna hér heima lauk með 2-1 sigri Englendinganna. Heimamenn voru mun öflugri í fyrri hálfleik og skoruðu þrjú mörk fyrstu 45 mínútur leiksins. Skagamönnum gekk mun betur í seinni…Lesa meira

true

Réðu ekki við Íslandsmeistarana

Snæfellskonur máttu játa sig sigraðar gegn Íslandsmeisturum Vals á heimavelli, 70-93, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Valskonur byrjuðu leikinn mun betur, skoruðu tólf stig gegn tveimur fyrstu fimm mínútur leiksins og leiddu með níu stigum eftir fyrsta leikhluta, 13-22. Þær héldu uppteknum hætti í öðrum fjórðungi, juku forskot sitt…Lesa meira

true

Skallagrímssigur í Grindavík

Skallagrímskonur unnu góðan sigur á Grindavík, 63-73 þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna. Leikið var suður með sjó í gærkvöldi. Borgnesingar voru mun betri í upphafsfjórðungnum, náðu mest ellefu stiga forskoti seint í leikhlutanum og leiddu með sjö stigum að honum loknum, 15-22. Grindavíkurkonur komu til baka í öðrum leikhluta og jöfnuðu metin þegar…Lesa meira

true

Á leið á Norðurlandamót í sundi

Brynhildur Traustadóttir sundkona úr ÍA er í landsliðshópi Sundsambands Íslands sem keppir á Norðurlandameistaramóti í sundi sem haldið verður í Færeyjum um helgina. Á mótinu synda um 210 keppendur frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum Litháen, Lettlandi og Eistlandi. Þar af eru 25 keppendur frá Íslandi. Brynhildur hefur æft mjög vel í haust og á mótinu keppir…Lesa meira

true

Logi og Heiðar sigurvegarar BB

Aðaltvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar lauk síðastliðið mánudagskvöld. Heiðar Árni Baldursson og Logi Sigurðsson leiddu mótið allan tímann og luku keppni með 62,6% skori. Anna Heiða Baldursdóttir og Ingimundur Jónsson komu næst þeim með 59,3% skor og þriðju urðu Rúnar Ragnarsson og Guðjón Karlsson með 56,4%. Við verðlaunaafhendingu kom fram að Baldur í Múlakoti ætti að fá…Lesa meira

true

Bætti fimmtán ára gamalt Akranesmet í sundi

Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir bætti 15 ára gamalt Akranesmet á Haustmóti Fjölnis í sundi sem fram fór á laugardaginn í Laugardalnum. Þangað fór 21 sundmaður frá Sundfélagi Akraness. Mótið var fyrir sundmenn 14 ára og yngri og var gríðarlega stór hópur sem tók þátt þetta árið, 375 sundmenn frá 16 félögum um land allt. Að venju…Lesa meira

true

Íslandsmeistaramótinu í grjótglímu lokið

Íslandsmeistaramótaröðinni í grjótglímu lauk um helgina með flottu móti sem haldið var í Klifurhúsinu í Reykjavík. ÍA mætti með sjö sterka klifrara til móts og þeim fylgdi stór hópur áhorfenda og áhangenda. Mótið var fjórða og síðasta mótið í keppninni um Íslandsmeistartitilinn og spennan því í hámarki þegar mótið hófst. Keppendur klifruðu tuttugu leiðir, sem…Lesa meira

true

Snæfell tapaði gegn Blikum

Snæfellskonur töpuðu naumlega gegn Breiðabliki, 73-68, þegar liðin mættust í spennandi leik í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Kópavogi á laugardaginn. Jafnt var á með liðunum í upphafi leiks, en Snæfell náði síðan góðri rispu og sex stiga forystu um miðjan fyrsta leikhluta. Blikar svöruðu fyrir sig og komust yfir, en Snæfellskonur…Lesa meira

true

Stórsigur Skallagrímskvenna

Skallagrímskonur völtuðu yfir Hauka, 55-83, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Hafnarfirði á föstudagskvöld. Skallagrímskonur voru mjög öflugar í upphafsfjórðungnum, komust í 3-20 og leiddu með 17 stigum eftir fyrsta leikhluta, 5-22. Það var þessi góða byrjun Borgnesinga sem lagði grunn að öruggum sigri liðsins. Í öðrum leikhluta héldu…Lesa meira

true

Aftur á sigurbraut

Skallagrímur er kominn aftur á sigurbraut í 1. deild karla eftir sigur á Sindra, 85-71. Liðin mættust í Borgarnesi í gærkvöldi. Skallagrímsmenn skoruðu fyrstu sex stig leiksins en gestirnir frá Hornafirði jöfnuðu metin og komust síðan yfir. Borgnesingar áttu lokaorðið í upphafsfjórðungnum og leiddu með þremur stigum að honum loknum, 18-15. Þeir voru síðan sterkari…Lesa meira