Íþróttir

true

Grundfirðingar og Skagamenn töpuðu

ÍA og Grundarfjörður léku í Íslandsmótinu í körfuknattleik um helgina. Ekki urðu úrslitin eins og liðin vonuðust eftir fyrirfram, því bæði máttu þau sætta sig við tap að þessu sinni. Skagamenn fengu B lið Fjölnis í heimsókn í 2. deild karla á föstudagskvöld. Gestirnir höfðu yfirburði í leiknum og sigruðu að lokum stórt, 65-107. Eftir…Lesa meira

true

Sekúndum frá sigrinum

  Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn Hamri, 103-100, í æsispennandi viðureign liðanna í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikið var í Hveragerði síðastliðið föstudagskvöld. Snæfellingar voru öflugri í uphafi leiks, komust í 7-13 en gestirnir minnkuð muninn í eitt stig seint í fyrsta leikhlutanum. Snæfell átti lokaorðið í upphafsfjórðungnum og leiddi með þremur stigum…Lesa meira

true

Tap gegn Vestra

Skallagrímur laut í lægra haldi gegn sterku liði Vestra, 90-110, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Vestramenn skoruðu fyrstu fimm stig leiksins áður en Skallagrímur breytti stöðunni í 6-5. Eftir það náðu gestirnir yfirhöndinni og leiddu með fimm stigum eftir fyrsta leikhluta, 20-15. Gestirnir höfðu yfirhöndina…Lesa meira

true

Manuel rekinn frá Skallagrími

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur sagt upp samningi sínum við Spánverjann Manuel Rodriguez. Frá þessu er greint í tilkynningu á Facebook-síðu Skallagríms. Manuel tók við þjálfun meistaraflokks karla í sumar og stýrði liðinu í fyrstu þremur leikjum vetrarins, sem allir töpuðust. Áður hafði Manuel þjálfað kvennalið Skallagríms með góðum árangri, frá 2015 til 2017. Atli Aðalsteinsson, sem…Lesa meira

true

Öflugri á lokamínútunum

Snæfellskonur unnu góðan sigur á Grindavík, 63-66, í hörkuleik í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Grindavík í gærkvöldi. Heimaliðið hafði undirtökin lengi vel en í lokafjórðungnum sneru Snæfellskonur taflinu sér í vil og höfðu að lokum sigur. Snæfell hafði undirtökin í fyrsta leikhluta, komst mest níu stigum yfir en leiddi með þremur…Lesa meira

true

Töpuðu á lokasprettinum

Skallagrímskonur máttu sætta sig við tap gegn KR, 68-83, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Borgarnesi. Gestirnir höfðu yfirhöndina í fyrsta leikhluta og leiddu með átta stigum að honum loknum, 17-25. Þær juku forskotið í ellefu stig í upphafi annars fjórðungs en þá tók Borgarnesliðið heldur betur…Lesa meira

true

Skallagrímur semur við bandarískan miðherja

Körfluknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við bandaríska miðherjann Kenneth Simms. Kenneth mun því leika með liðinu í 1. deild karla í vetur, en hann er reynslumikill leikmaður með tíu ára feril sem atvinnumaður með félagsliðum um allan heim. Hann er 33 ára gamall og 206 cm á hæð. „Hann hefur m.a. leikið í Svíþjóð, Litháen, Belgíu,…Lesa meira

true

Snæfell hafði betur gegn Skallagrími á föstudaginn

Snæfell hafði betur gegn Skallagrími í Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudaginn, en lokatölur urðu 73-69. Skallagrímur komst fljótlega í fyrsta leikhluta fimm stigum yfir en Snæfell var ekki lengi að jafna. Leikhlutinn var nokkuð jafn allan tímann en það var ekki fyrr en um miðjan annan leikhluta sem Snæfell náði aðeins…Lesa meira

true

Skagamenn Vesturlandsmeistarar í boccia

Vesturlandsmót í boccía fór fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi síðastliðinn laugardag. Til leik mættu að þessu sinni aðeins tólf sveitir; ein kom frá Hvammstanga, ein frá Borgarbyggð, fjórar frá Aftanskini í Stykkishólmi, en heimamenn voru fjölmennir og tefldu sex sveitum fram. „Ljóst er að félög eldri borgara í Stykkishólmi og á Akranesi ná…Lesa meira

true

Sigurður Jónsson ráðinn afreksþjálfari ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur gert samning við Sigurð Jónsson um að taka að sér starf afreksþjálfara hjá KFÍA. Sigurður hefur verið lykilmaður í starfi félagsins undanfarin ár, sem aðstoðarþjálfari mfl. karla, þjálfari 2. flokks karla ásamt því að sinna öðrum verkefnum á vegum KFÍA. „Með starfi afreksþjálfara vill KFÍA leggja enn meiri áherslu á afreksþjálfun og…Lesa meira