Íþróttir

true

Skagastelpur færðust nær toppnum

ÍA hafði betur gegn Haukum þegar liðin mættust á Akranesvelli í gær í fimmtu umferð 1. deildar kvenna í fótbolta. Um mikinn baráttuleik var að ræða og jafnræði var í leiknum þar sem bæði lið fengu álitleg marktækifæri. Lítið var þó skorað. Gestirnir úr Hafnarfirði urðu fyrir því óláni á 38. mínútu að skora sjálfsmark…Lesa meira

true

Íslandsmótið í holukeppni á Garðavelli um helgina

Íslandsmótið í holukeppni fer fram á Garðavelli á Akranesi hjá Golfklúbbi Leyni um helgina. Mótið hefst á föstudaginn og fara úrslitaleikirnir fram eftir hádegi á sunnudaginn. Um 75 kylfingar hafa skráð sig í mótið en mótstjórn hefur ákveðið að framlengja skráningarfrest til klukkan 17:00 í dag. Í fyrra voru það Rúnar Arnórsson úr Golfklúbbi Keili…Lesa meira

true

Valdís Þóra keppir á Evrópumótaröðinni

Skagakonan og atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir út Golfklúbbnum Leynis hefur keppni í fyrramálið á Ladies European Thailand meistaramótinu sem er hluti af Evrópumótaröð kvenna í golfi og fer fram í Taílandi. Eins og er þá er Valdís í 67. sæti á stigalista mótaraðarinnar eftir níu mót á tímabilinu. Meðalskor hennar er 73,95 högg sem er…Lesa meira

true

Stöngin út og stöngin inn

Víkingur Ó. tapaði gegn Keflavík með einu marki gegn engu þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu í gær, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Leikið var í Ólafsvík. Liðin mættu ákveðin inn á völlinn og nokkur harka var í leiknum í upphafi. Ólafsvíkingar voru meira með boltann í fyrri hálfleik en tókst ekki að skapa…Lesa meira

true

Tap hjá Skallagrími

Skallagrímur tapaði gegn toppliði KA er liðin mættustu í sjöundu umferð í 3. deildar karla í knattspyrnu. Leikið var í Borgarnesi á föstudagskvöld. Heimamenn byrjuðu betur og áræðni einkenndi leik þeirra. Fyrsta mark leiksins kom á 31. mínútu þegar Marteinn Theódórsson kom Borgnesingum yfir og leiddu Skallagrímsmenn með einu marki þegar gengið var til búningsklefanna.…Lesa meira

true

Tap gegn erkifjendunum

Skagamenn riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni gegn erkifjendunum í KR í dag. Liðin mættust á Akranesi í áttundu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. KR-ingar voru sterkari allan leikinn og sigruðu að lokum með þremur mörkum gegn einu. Skagamenn byrjuðu af krafti og fengu aukaspyrnu rétt við vinstra vítateigshornið strax á fyrstu…Lesa meira

true

Kvennahlaupið í þrítugasta sinn á morgun

Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í þrítugastas inn á morgun, laugardaginn 15. júní. Hlaupið er stærsti almenningsíþróttaviðburður sem haldinn er hér á landi á ári hverju. „Konur á öllum aldri koma saman á hlaupadegi og eiga skemmtilega stund þar sem sumir hlaupa en aðrar ganga. Í 30 ár ahfa þúsundir kvenna um allt land notið þess…Lesa meira

true

Ólafsvíkingar tylltu sér á toppinn

Víkingur Ó. tyllti sér á topp 1. deildar karla í knattspyrnu eftir góðan útisigur á Fjölni í gærkvöldi, 1-3. Ólafsvíkingar byrjuðu af miklum krafti og sköpuðu strax hættu upp við mark heimamanna. Þeir héldu áfram að sækja og komust yfir á 14. mínútu leiksins. Sallieu Tarawallie fékk boltann fyrir utan teig Fjölnismanna. Hann var ekkert…Lesa meira

true

Bergþór semur við Skallagrím

Skallagrímur hefur endurnýjað samning sinn við Bergþór Ægir Ríkharðsson til tveggja ára. Bergþór kom til Skallagríms fyrir ári síðan og lék með liðinu í Domino‘s deildinni þar sem hann var með 2,1 stig að meðaltali í leik. Bergþór er 21 árs gamall og leikur stöðu framherja. Áður en hann kom í herbúðir Skallagrímsmanna fyrir ári…Lesa meira

true

Sterkari frá fyrstu mínútu

ÍA vann öruggan sigur á ÍR með þremur mörkum gegn engu þegar liðin mættust í fjórðu umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu. Leikið var í Reykjavík í gærkvöldi. Skagkonur voru mun sterkari meira og minna frá fyrstu mínútu leiksins en ÍR-liðið átti erfitt uppdráttar. Skagakonur skapaði sér nokkur ákjósanleg marktækifæri og komust yfir á 22.…Lesa meira