
Skagastelpur þurftu að sætta sig við tap gegn toppliði Þróttar R. þegar liðin mættust í sjöttu umferð fyrstu deildar kvenna í Laugardalnum í gærkvöldi. Munaði einungis einu stigi á liðunum fyrir viðureignina og mátti því búast við hörku leik. Það voru heimastúlkur sem byrjuðu mun betur og voru staðráðnar í að endurtaka ekki leikinn frá…Lesa meira








