Íþróttir

true

Naumt tap eftir spennandi leik

Skallagrímur tapaði naumlega gegn Vestra, 85-89, þegar liðin mættust í spennandi leik í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafsfjórðungnum og þau skiptust á að leiða leikinn. Gestirnir að vestan náðu góðri rispu undir lok leikhlutans og voru fimm stigum yfir að honum loknum,…Lesa meira

true

Lítið mældist af loðnu

Mælingum á loðnustofninum er nokkurn veginn lokið. Einungis á eftir að kanna lítið svæði út af Húnaflóa og mun rannsóknarskipið Árni Friðriksson klára það þegar veður leyfir. Fimm uppsjávarveiðiskip hafa verið við mælingar undanfarið ásamt Árna Friðrikssyni; Heimaey VE, Hákon EA, Aðalsteinn Jónsson SU, Börkur NK og Polar Amaroq. Lauk loðnuleit að í nótt. Endanlegar…Lesa meira

true

Kaflaskiptur hringur hjá Valdísi

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hóf leik á Evrópumótaröðinni í golfi í dag, en fyrsta mót ársins fer fram í Ástralíu um þessar mundir. Gengi Valdísar var upp og ofan á á fyrsta hringnum. Hún fékk skolla á fyrstu tveimur holunum en náði að rétta úr kútnum og var komin aftur á par…Lesa meira

true

Bikarmeistararnir fengu skell

Nýkrýndum bikarmeisturum Skallagríms var kippt rækilega niður á jörðina í gærkvöldi, þegar liðið steinlá gegn Val á útivelli, 107-41. Keira Robinson, Emilie Hesseldal og Maja Michalska léku ekki með Skallagrími í leiknum vegna veikinda, en þær hafa verið lykilmenn í liði Borgnesinga í vetur. Hafði það sitt að segja en tapið var engu að síður…Lesa meira

true

Borgnesingar sigruðu í Vesturlandsslagnum

Skallagrímur vann góðan sigur á Snæfelli, 74-71, þegar liðin mættust í spennandi Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkveldi. Leikið var í Stykkishólmi. Hólmarar höfðu undirtökin í upphafi og skoruðu fyrstu sjö stig leiksins. Eftir það tóku Borgnesingar góða rispu og komust í 13-15 seint í fyrsta leikhluta. En Snæfell átti lokaorðið í…Lesa meira

true

Tvö ný Akranesmet og fjöldi verðlauna

Tvö Akranesmet í sundi féllu á Gullmóti KR sem haldið var í Laugardalslaug um helgina. Sundfélag Akraness sendi 31 sundmann til keppni. Þátttaka í mótinu var mjög góð þar sem yfir 490 keppendur af landinu öllu tóku þátt. Enrique Snær Llorens setti nýtt Akranesmet í 200 m skriðsundi í flokki fullorðinna, en hann synti á…Lesa meira

true

Samið við meistaraflokk

Mánudaginn 10. febrúar síðastliðinn var í fyrsta skipti í sögu Fimleikafélags Akraness undirritaður samningur við iðkendur meistaraflokks félagsins, en um er að ræða iðkendur 18 ára og eldri. Í þeim hópi eru þær Aþena Ósk Eiríksdóttir, Harpa Rós Bjarkadóttir, Marín Birta Sveinbjörnsdóttir, Sóley Brynjarsdóttir, Sylvía Mist Bjarnadóttir, Valdís Eva Ingadóttir og Ylfa Claxton. Það voru…Lesa meira

true

Skallagrímskonur eru bikarmeistarar

Geysisbikar kvenna verður í Borgarnesi næsta árið hið minnsta, eftir magnaðan sigur Skallagrímskvenna á KR í úrslitaleiknum sem lauk nú í kvöld, 66-49. Skallagrímur er því bikarmeistari í körfuknattleik í fyrsta skipti og er þetta fyrsti stóri titill félagsins frá því Borgnesingar urðu Íslandsmeistarar kvenna árið 1964. Vörnin vinnur titla Grunninn að sigrinum lögðu Skallagrímskonur…Lesa meira

true

Bikarinn á leiðinni í Borgarnes!

Kvennalið Skallagríms var rétt í þessu að landa sigri í úrslitaleik Geysisbikarsins í körfubolta 2020. Báru stelpurnar sigurorð af KR með stigatölunni 66-49. Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik, en í upphafi þess síðari sigldu Borgnesingar framúr og litu aldrei til baka, sömuleiðis sá KR liðið ekki til sólar. Bikarinn er því á leið…Lesa meira

true

Bikarúrslitin bíða Skallagríms

Skallagrímskonur mæta KR í úrslitaleik Geysisbikarsins á morgun, eftir frækinn sigur á Haukum, 86-79, í undanúrslitum bikarsins í gærkvöldi. Skallagrímskonur mættu ákveðnar til leiks í Laugardalshöllinni og voru mun sterkara lið vallarins í upphafsfjórðungnum. Keira Robinson fór þar fremst í flokki, en hún skoraði 15 af 27 stigum Skallagríms í fyrsta leikhluta. Borgnesingar léku afar…Lesa meira