Íþróttir

true

Að duga eða drepast hjá Borgnesingum

Skallagrímur tapaði gegn Þór Þ. þegar liðin mættust í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Borgarnesi. Eftir jafnan fyrri hálfleik voru gestirnir einfaldlega sterkari í þeim síðari og fóru að lokum með sigur af hólmi, 74-89. Borgnesingar höfðu yfirhöndina í framan af fyrsta leikhluta en Þórsarar voru aldrei langt undan. Seint…Lesa meira

true

Leikur í Lengjubikarnum spilaður í Ólafsvík

Með tilkomu gervigrass á knattspyrnuvöllinn í Ólafsvík hefur verið hægt að æfa og leika knattspyrnu í sveitarfélaginu mun lengur en áður var unnt. Því var fyrsti heimaleikur ársins hjá Víkingi í Lengjubikarinum spilaður á laugardaginn í hæglætisveðri. Þróttur Reykjavík sótti Víking heim, en bæði lið leika í riðli 2 í A deildinni. Leikurinn var bráðfjörugur…Lesa meira

true

Gatnamót malbikuð á Akranesi

Í dag er verið að malbika á gatnamótum Esjubrautar, Akranesvegar og Kalmansbrautar á Akranesi. Framkvæmdir hafa staðið yfir við endurgerð Kalmanstorgs, hringtorgsins sem stendur á gatnamótunum, frá því síðasta haust. Samhliða endurgerð hringtorgsins hafa lagnir verið endurnýjaðar. Upphaflega stóð til að verkinu yrði lokið nálægt áramótum, en en vegna veðurs hefur töf orðið á framkvæmdum.…Lesa meira

true

Voru stungnar af í síðari hálfleik

Skallagrímskonur þurftu að játa sig sigraðar gegn Val þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Borgarnesi. Valur hafði yfirhöndina í fyrri hálfleik en Skallagrímsliðið fylgdi þeim eins og skugginn. Skallagrímskonur voru fáliðaðar, með aðenis sjö leikmenn á skýrslu og á endanum kom það í bakið á þeim. Þær…Lesa meira

true

Stórsigur Snæfellskvenna

Snæfell vann stórsigur á Breiðabliki, 93-56, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi. Snæfellskonur voru sterkari frá fyrstu mínútu. Þær komust í 11-1 snemma í fyrsta leikhluta. Blikar minnkuðu muninn í fjögur stig áður en Snæfell tók góðan sprett og 14 stiga forystu áður en leikhlutinn var…Lesa meira

true

ÍA valtaði yfir Stjörnuna

ÍA vann stórsigur á Stjörnunni, 6-0, þegar liðin mættust í Lengjubikar karla á þriðjudagskvöld. Leikið var í Kórnum í Kópavogi. Skagamenn mættu ákveðnir til leiks og voru betra lið vallarins allan fyrri hálfleikinn. Stjarnan skapaði sér nokkur færi en alltaf voru Skagamenn mun hættulegri. Gonzalo Zamorano og Þórður Þorsteinn Þórðarson skoruðu fyrir ÍA, auk þess…Lesa meira

true

Guðjón og Ágústa Íslandsmeistarar í keilu

Guðjón Gunnarsson og Ágústa K. Jónsdóttir úr ÍA urðu í gærkvöldi Íslandsmeistarar einstaklinga í keilu með forgjöf. Sigurður B. Bjarkason úr ÍR hafnaði í öðru sæti í karla flokki og Svavar Þór Einarsson, einnig úr ÍR, varð þriðji. Í kvennaflokki varð Geirdís H. Kristjánsdóttir úr ÍR önnur og Jóna Gunnarsdóttir úr KFR hreppti bronsið. Alls…Lesa meira

true

Valdís Þóra komst ekki áfram

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, komst ekki áfram á Australian Ladies Classic mótinu sem hófst í Ástralíu fyrir helgi. Mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna í golfi. Valdís lék fyrstu tvo hringina í mótinu á samtals níu höggum yfir pari og var tveimur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. Einkum náði…Lesa meira

true

Kepptu í fyrsta sinn í A deild meistaraflokks

Bikarmótið í hópfimleikum var haldið á Selfossi um síðustu helgi. Fimleikafélag Akraness sendi meistaraflokk kvenna til keppni í mótinu og var þetta í fyrsta sinn sem lið frá ÍA keppir í A deild meistaraflokks. Fór svo að lokum að ÍA hafnaði í 4. sæti á mótinu með 42.500 stig. Stjarnan stóð uppi sem sigurvegari með…Lesa meira

true

Brianna Banks hætt hjá Skallagrími

Bandaríska körfuknattleikskonan Brianna Banks hefur yfirgefið Skallagrím. Mun hún því ekki leika með liði Borgnesinga í Domino‘s deild kvenna það sem eftir lifir tímabils. Það er Karfan.is sem greinir frá. Þar er haft eftir Ragnheiði Guðmundsdóttur, sem situr í meistarflokksráði hjá Skallagrími, að Brianna hafi gerst sek um samningsbrot. Í framhaldi af því hafi hún…Lesa meira