Íþróttir

true

Fyrsti sigur Skallagríms í hús

Skallagrímsmenn eru komnir á blað í Domino‘s deild karla eftir góðan sigur á liði Grindvíkinga, 93-88 í gær. Leikið var í Borgarnesi og var þetta fyrsti heimaleikur Skallagríms í deildinni í vetur. Skallagrímur hóf leikinn af krafti. Liðið lét finna fyrir sér í vörninni og góð stemning einkenndi leik liðsins. Þeir voru enda sterkari í…Lesa meira

true

Sigur eftir æsispennandi lokamínútur

Skallagrímskonur kræktu í fyrstu stig vetrarins í Domino‘s deild kvenna með naumum sigri á Breiðabliki í Borgarnesi í gær, 76-75. Borgnesingar höfðu undirtökin í upphafi leiks, komust í 11-2 og höfðu átta stiga forskot að loknum fyrsta leikhluta, 25-17. Bæði lið léku þéttan varnarleik í öðrum fjórðungi og stigamunurinn breyttist lítið. Þegar flautað var til…Lesa meira

true

Fór járnkarlinn á tæpum ellefu klukkustundum

Skagamaðurinn Almar Viðarsson er einn af 18 Íslendingum sem tóku þátt í járnkarlskeppninni í Barcelona á Spáni um síðustu helgi. Keppnin er ein fjölmennasta járnkarlskeppni heimsins, en þátttakendur voru rúmlega þrjú þúsund talsins. Járnkarlinn í Barcelona samanstóð af 3,86 km sundi í sjó. Að því loknu tóku við 180,25 km langar hjólreiðar og að endingu…Lesa meira

true

Fyrsti sigurinn í meira en ár

ÍA bar sigurorð af liði Stál-úlfs á útivelli, 91-108, þegar liðin mættust í 2. deild karla í körfuknattleik á sunnudagskvöld. Sigurinn var fyrsti sigur Skagamanna í Íslandsmótinu í körfuknattleik í meira en ár, en liðið tapaði öllum leikjum sínum í 1. deildinni á síðasta keppnistímabili. Eftir tvo leiki hafa Skagamenn því tvö stig í sjötta…Lesa meira

true

Snæfell steinlá gegn Vestra

Snæfell tapaði stórt gegn Vestra, 80-47, þegar liðin mættust á Ísafirði í fyrstu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Snæfellingar skoruðu fyrstu stig leiksins, sem fór rólega af stað, en ekki leið á löngu þar til heimamenn í Vestra náðu undirtökunum og leiddu með sex stigum að loknum fyrsta leikhluta, 14-8. Snæfellingar héldu…Lesa meira

true

Snæfell sigraði Íslandsmeistarana

Snæfellskonur gerðu sér lítið fyrir og lögðu Íslandsmeistara Keflavíkur, 87-75, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna á laugardag. Leikurinn var jafnframt fyrsti heimaleikur Stykkishólmsliðsins í vetur. Snæfellskonur byrjuðu af krafti og komust í 10-0 áður en gestirnir komust á blað. Þær höfðu yfirhöndina allan fyrsta leikhlutann og höfðu afgerandi forystu að honum loknum, 34-18.…Lesa meira

true

Skallagrímur varð að lúta í gras gegn Íslandsmeisturunum

Skallagrímur varð að játa sig sigraðan gegn Íslandsmeisturum KR í fyrstu umferð Domino‘s deildar karla í gær. Borgnesingar vru sterkir af fyrri hálfleik og höfðu yfirhöndina á löngum köflum. En heimamenn í KR náðu að snúa dæminu í þeim síðari og sigruðu að lokum með 109 stigum gegn 93. Skallagrímsmenn voru ákveðnir í upphafi leiks.…Lesa meira

true

Æfingabúðir í glímu um síðustu helgi

Um helgina voru haldnar æfingabúðir í glímu að Laugum í Sælingsdal fyrir 7.-10. bekk og landsliðið í glímu. Rúmlega 30 iðkendur tóku þátt í æfingunum, frá UÍA, Umf. Njarðvík, GFD, UMSE, HSK og HSÞ. Helginni var varið í fræðsluerindi og fyrirlestra í bland við æfingar þar sem farið var yfir hin ýmsu tæknilegu atriði glímunnar.…Lesa meira

true

Botninn datt úr leik Skallagríms í síðari hálfleik

Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar gegn Val, 71-51, þegar liðin mættust í fyrstu umferð Domino‘s deildar kvenna í gær. Leikurinn á Hlíðarenda fór hægt af stað og liðin höfðu skorað sjö stig hvort þegar komið var fram yfir miðjan fyrsta leikhluta. Eftir það náðu Skallagrímskonur góðri rispu og leiddu með átta stigum fyrir annan fjórðung,…Lesa meira

true

Snæfellskonur sigruðu í tvíframlengdum leik

Snæfell vann góðan útisigur á Breiðabliki, 80-93, í tvíframlengdum leik í fyrstu umferð Domino‘s deildar kvenna í gær. Snæfellskonur náðu sér alls ekki á strik í upphafi leiks og skoruðu aðeins sex stig í fyrsta leikhluta. Á meðan skoraði Breiðablik 14 stig og áttu eftir að bæta þremur við forskotið í upphafi annars fjórðungs. Þá…Lesa meira