Íþróttir

true

ÍA semur við fjóra efnilega leikmenn

Knattspyrnufélag ÍA hefur gengið frá samningum við fjóra unga og efnilega leikmenn. Þetta eru þær Ásta María Búadóttir, Erla Karitas Jóhannesdóttir, Katrín María Óskarsdóttir og Sigrún Eva Sigurðardóttir. Allar voru þær að skrifa undir sinn fyrsta samning við félagið. Þær leika allar með 3. flokki en stigu sín fyrstu skref með meistaraflokki á nýliðnu undirbúningstímabili.…Lesa meira

true

Kári féll úr bikarnum

Káramenn hafa lokið keppni í Borgunarbikar karla í knattspyrnu að þessu sinni. Þeir mættu 1. deildar liði Selfoss í 32 liða úrslitum í gær og máttu sætta sig við 3-2 tap. Alfi Conteh Lacalle kom Selfyssingum yfir á 13. mínútu og tveimur mínútum síðar bæti James Mack við öðru marki heimamanna. Andri Júlíusson minnkaði muninn…Lesa meira

true

Skallagrímspiltar Faxaflóameistarar

Skallagrímspiltar í 5. flokki tryggðu sér á laugardag sigur í C riðli B liða í Faxaflóamótinu. Þeir sigruðu Ægi/Hamar 6-1 í lokaleik mótsins, kræktu í sitt 19 stig í mótinu og náðu þar með eins stigs forskoti á Breiðablik 3 sem hafnaði í öðru sæti.Lesa meira

true

Víkingar sigruðu Grindavík örugglega

Víkingur Ó. krækti í fyrstu stig sumarsins í Pepsi deild karla þegar liðið sigraði nýliða Grindavíkur 1-3 í þriðju umferð mótsins í gærkvöldi. Leikurinn fór fram í Grindavík. Jafnt var á með liðunum og mikil barátta einkenndi fyrri hálfleikinn. Vindurinn var leikmönnum nokkuð erfiður í fyrri hálfleik, en töluvert rok var í Grindavík í gær.…Lesa meira

true

ÍA tapaði gegn erkifjendunum

ÍA mætti erkifjendum sínum úr KR í þriðju umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikurinn fór fram á heimavelli KR í Frostaskjóli í Vesturbæ Reykjavíkur. Lauk honum með 2-1 sigri heimamanna sem voru sterkara lið vallarins allan leikinn. KR-ingar mættu ákveðnir til leiks og komust yfir strax á 9. mínútu. Pálmi Rafn Pálmason…Lesa meira

true

Jafntefli í fyrsta leik Víkings

Víkingur Ólafsvík hóf keppni í 1. deild kvenna í knattspyrnu síðasta laugardag. Víkingskonur ferðuðust norður yfir heiðar og mættu liði Hamranna í Boganum á Akureyri. Nokkuð jafnræði var með liðunum allan leikinn sem lauk með markalausu jafntefli. Bæði lið náðu að skapa sér ágætis marktækifæri þó hvorugu hafi tekist að skora. Víkingskonur voru heldur skæðari…Lesa meira

true

Skagakonur hófu mótið með látum

Keppni í 1. deild kvenna í knattspyrnu hófst á föstudagskvöld þegar ÍA tók á móti Tindastóli. Leikurinn fór fram í Akraneshöll, en dómari leiksins taldi veður ekki vænlegt til knattspyrnuiðkunar og færði leikinn því undir þak. ÍA var miklu betra liðið allan tímann og leikurinn fór að mestu leyti fram á vallarhelmingi gestanna. Skagakonur byrjuðu…Lesa meira

true

Skagakonur hefja leik í kvöld

ÍA leikur sinn fyrsta leik í 1. deild kvenna í knattspyrnu í kvöld þegar liðið tekur á móti Tindastóli í Akraneshöllinni. Upphaflega stóð til að leikurinn færi fram á Akranesvelli en vegna slæmrar veðurspár var hann færður undir þak. Rætist hins vegar úr veðrinu getur dómari leiksins tekið ákvörðun um að færa leikinn út að nýju.…Lesa meira

true

Víkingur Ó. semur við tvo miðjumenn

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvíkur samdi í gær við tvo leikmenn um að leika með liðinu í Pepsi deild karla í sumar. Það eru miðjumennirnir Kwame Quee og Eric Kwakwa. Kwame er sókndjarfur miðjumaður frá Síerra-Leóne, fæddur árið 1996 og leikur með FC Johansen í heimalandinu. Þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki tólf landsleiki fyrir…Lesa meira