Fréttir

true

Gjaldskrárbreytingar framundan hjá Veitum

Um áramótin munu Veitur, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, lækka gjöld fyrir raforkudreifingu og kalt vatn, en hækka verð á heitu vatni og fráveitu. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að jafnaði muni vatns,- rafmagns- og fráveitukosnaður lækka fyrir íbúðarhúsnæði í Reykjavík um 4.100 krónur á ári. Þar kemur hins vegar ekki fram hvernig samanlögð breyting allra…Lesa meira

true

Jólaljósin tendruð á Akratorgi

Margt var um manninn á Akratorgi á Akranesi síðdegis í gær þegar ljósin voru tendruð á jólatrénu við hátíðlega athöfn. Skólakór Grundaskóla hóf athöfnina með flutningi á nokkrum jólasöngvum undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur. Sigríður Indriðadóttir, forseti bæjarstjórnar, sagði frá uppruna trésins og aðstoðaði systkinin Wiktoriu Fiszer 8 ára og Przemyslaw Fiszer 12 ára við að…Lesa meira

true

Hvimleiðar vegablæðingar á Holtavörðuheiði

Vegagerðin vekur athygli á því að blæðing er á slitlagi á vegarköflum um Holtavörðuheiði, allt frá Norðurárdal í Borgarfirði og í Hrútafjörð. Þetta getur valdið því að tjara safnast í hjólskálar bíla, en einnig á boddýhluti, raflagnir, fjöðrunarbúnað og hjólbarða. Flutningabílstjórar sem lenda í tjörumengun af þessu tagi hafa í fjölmiðlum bent á að best…Lesa meira

true

Sagnasprek úr Borgarfirði – Sögur og sagnir

Út er komin ný rafbók eftir Braga Þórðarson rithöfund og útgefanda á Akranesi og nefnist hún Sagnasprek úr Borgarfirði – Sögur og sagnir. Þetta er 21. bók höfundar um fólk og mannlíf á Akranesi og í Borgarfirði. Bókaútgáfan emma.is er útgefandi bókarinnar. Bókin er eingöngu fáanleg sem rafbók og seld á á netinu á Amazon.com,…Lesa meira

true

Grindvíkingar stungu Snæfell af í síðari hálfleik

Botnlið Snæfells mætti Grindavík í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var suður með sjó. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik tóku heimamenn öll völd á vellinum í þeim síðari og unnu að lokum 36 stiga sigur, 108-72. Snæfellingar voru sterkari í upphafsfjórðungnum. Þeir náðu tólf stiga forskoti um hann miðjan áður en heimamenn…Lesa meira

true

Stjörnuhrap í Borgarnesi

Skallagrímur tók á móti toppliði Stjörnunnar í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Heimamenn léku afar vel allan leikinn bæði í vörn og sókn, börðumst um hvern bolta og unnu að lokum frækinn sigur á firnasterku liði Stjörnunnar, 78-73. Skallagrímur hafði yfirhöndina framan af fyrsta leikhluta en forysta þeirra var þó aldrei meiri en…Lesa meira

true

Styttist í að ný fráveitumannvirki verði tekin í notkun

Veitur, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, hafa á þessu árið unnið við fráveitu í Borgarnesi og á Akranesi. Að sögn Írisar Þórarinsdóttur tæknistjóra fráveitu Veitna er verkefnið örlítið á eftir áætlun en ráðgert að ný fráveita verði tekin í notkun innan tíðar. Í sumar og haust var unnið að lagningu sjólagna í Borgarnesi. Að sögn Írisar var…Lesa meira

true

Framkvæmdahugur og nýliðun í gangi í Lundarreykjadal

Undanfarin misseri hefur íbúafjölgun verið í Lundarreykjadal í Borgarfirði en þar er ný kynslóð Lunddælinga byrjuð að koma sér fyrir svo eftir hefur verið tekið. Á nokkrum bæjum er verið að byggja ný íbúðarhús á meðan annars staðar er ýmist nýbúið að byggja eða stækka útihús og jafnvel byrjað að ráðgera frekari framkvæmdir. Að sögn…Lesa meira

true

Skammdegið er skollið á – láttu sjá þig!

Slysavarnadeildin Líf á Akranesi leggur áherslu á sýnileika. Við höfum í allmörg ár gefið endurskinsmerki til barna í leik- og grunnskólum á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. Þar að auki gáfum við þúsund endurskinsmerki árið 2015 en þá mönnuðum við vaktir við verslanir á Akranesi og brýndum fyrir fólki að nota þau. En betur má ef…Lesa meira

true

Fjalla um verndaráætlun fyrir búsvæði fugla í Andakíl

Umhverfisstofnun hefur boðað íbúa til almenns kynningar- og samráðsfundar um stjórnunar- og verndaráætlun fyrir búsvæði fugla í Andakíl. Fundurinn verður miðvikudaginn 30. nóvember klukkan 20:00 og verður í Ásgarði, húsnæði Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Á fundinum verður sagt frá gerð stjórnunar- og verndaráætlana almennt og áætlun fyrir verndarsvæðið í Andakíl sérstaklega en unnið er að…Lesa meira